Skessuhorn - 27.11.2019, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 201926
Í aprílhefti Kiwanisfrétta 1972 var
þessi frétt: „Klúbbur er kominn á
veg í Borgarfirði. Mánudaginn 24.
apríl fóru nokkrir kiwanisfélagar úr
Reykjavík og frá Akranesi að Loga-
landi í Borgarfirði. Þar voru saman
komnir 15 Borgfirðingar. Var þar
haldinn fræðslu- og undirbúnings-
fundur að stofnun kiwanisklúbbs
og voru 13 þegar tilbúnir til þátt-
töku. Þyrill á Akranesi vinnur að
þessari klúbbstofnun“.
Það fer um hugann ferill langur,
því fertugs aldur Jökla gangur
vekur spurn en varla svör.
Þyrilsbræður þekkja sporin.
Þeir eru kátir mjög á vorin.
Þokkaleg var þeirra för.
Þeir komu upp að Kleppjárnsreykj-
um,
krakkar voru þar í leikjum.
Vorpróf, vottur annríkis.
Eins og gengur fátt að frétta.
en ferðanestið aðeins þetta
að kynna okkur kiwanis.
Klúbbur fór í aðlögun
Það var hverju orði sannara að Þyr-
ill ynni að þessu verki. Hinn 15. maí
1972 var væntanlegum klúbbfélög-
um boðið til Akraness og þar var
haldinn fundur klúbbs í aðlögun og
honum gefið nafnið Jöklar. Í bráða-
birgðastjórn voru kjörnir Hjört-
ur Þórarinsson forseti, Guðmund-
ur Kjerúlf ritari og féhirðir Stein-
grímur Þórisson. Þá var klúbbur-
inn kominn í aðlögun með 15 fé-
laga, síðan fjölgaði þeim í 25 fram
að vígsludegi.
Klúbbur stofnaður
Hinn 10. mars 1973 var klúbburinn
vígður með 25 stofnfélaga í Loga-
landi. Stuðningi við okkur var ekki
þar með lokið. Bráðabirgðastjórn-
in fékk fullgildingu. Samfylgd og
kynningu var haldið áfram. Á fundi
í Logalandi 2. maí 1973 var mætt-
ur Þórir Hall svæðisstjóri. Árnaði
hann klúbbnum allra heilla og vel-
gengni í störfum en bætti svo við:
„Það sveitarfélag sem hefði kraft-
mikinn og góðan kiwanisklúbb inn-
an sinna vébanda væri betra sveit-
arfélag.“ Nældi hann síðan kiwan-
ismerkið í barm okkar allra. Með
þetta veganesti var lagt af stað í
óvissuferð hins nýja klúbbs.
Kiwanisklúbburinn Jöklar hefur
verið kraftmikill og góður og bætt
sveitarfélag sitt. Þessi fullyrðing
og heillaósk verður nánar tekin til
meðferðar og verkefni Jökla dreg-
in fram og tíunduð í nokkrum orð-
um. Hvaða styrktarverkefni hafa
verið hjá klúbbfélögum? Hvernig
hafa þau verið fjármögnuð? Hvaða
önnnur störf og umræðuefni hafa
verið á dagskrá?
Hver eru markmið
kiwanisklúbbanna?
Mannleg kjör og mannsins sál er
meira virði
en verðmæti sem verða unnin
úr veraldlegum toga spunnin.
Eins og þú vilt aðrir gjöri eða breyti
áttu að gera einatt hér.
Æðsta markmið þetta er.
(HÞ)
En hvernig ætli Jöklafélögum
hafi gengið að fylgja þessu eftir?
Björgunar- og slysa-
varnastyrkir
Strax á fyrsta ári var farið að veita
styrki vegna björgunar- og slysa-
varna. Fyrstu styrkirnir voru til
Björgunarsveitanna Oks og Heið-
ars. En brátt kom að því að teknar
voru djarfari ákvarðanir. Árið 1977
var Björgunarsveitinni Ok afhent
sjúkrabifreið, sem kostaði 1.678.043
krónur. Á núvirði 3.251.708 krónur.
Þetta var sérútbúin tvegga drifa bif-
reið. Oks-menn voru búnir að út-
búa upphitað húsrými fyrir bifreið-
ina þegar þeir tóku við henni og
þökkuðu fyrir sig. Tveimur árum
síðar var röðin komin að Björgun-
arsveitinni Heiðari. Þeir fengu af-
henta snjóbifreið „Snow-Trac“ sem
kostaði 5.953.750 krónur. Safnað
hafði verið fyrir henni en auk þess
styrktu slysavarnadeildir í héraði
söfnunina. Á núvirði var styrkur-
inn 7.374.662, kr. Þessu til viðbót-
ar hafa björgunarsveitirnar feng-
ið bæði farsíma og fjárstyrki. Sum-
um fannst nóg komið þegar hér var
komið sögu. „Og þó“.
Báðar þessar bifreiðar
til bjargar verði slysið
En verði þyrlan þriðja far
þá mun hækka risið.
Hamfarastyrkir
Söfnun var gerð og fjármagn sent
til Vestmannaeyja vegna eldgossins
1973. Þá var víðtæk söfnun sett af
stað vegna snjóflóðanna í Neskaup-
stað 1974. Söfnunin hófst sama
kvöldið og tilkynning barst um
snjóflóðið. Það söfnuðust í frjáls-
um samskotum 708.500 krónur. Á
núvirði 3.072.332 krónur. Kiwanis-
klúbburinn Gerpir á Neskaupsstað
annaðist úthlutun fjárins.
Vegna Snjóflóðsins í Súðavík
1995 var sent framlag Jökla þeim til
hjálpar 250.000 krónur.
Hvað var gert f
yrir börnin?
Styrkur var veittur til Leikskól-
anna Hnoðrabóls og Hvanneyrar
100.000 til hvors þeirra. Styrkur á
móti öðrum vegna kaupa á píanói á
Hvanneyri. Manntöfl í Kleppjárns-
reykjaskóla. Í mörg ár fengu yngstu
nemendur grunnskólanna endur-
skinsmerki, sérstaklega merkt Jökl-
um.
Aðrir styrkir
Veikindi og sjúkrakostnaður er
mörgum þungbær. Oft hefur klúbb-
urinn hlaupið þar undir bagga og
rétt fram smáupphæð til hjálpar
mörgum. Þá lagði klúbburinn fram
100.000 krónur þegar keyptur var
flygill í Reykholtskirkju. Sumar-
dvölin Holti fékk 100.000 krónur.
Íþróttafélag fatlaðra fékk sendingu
1985. Smásjá var gefin til lækn-
ishéraðsins. Þá var Hixon orðan
veitt fyrsta forseta klúbbsins. Þetta
er ekki tæmandi listi yfir verkefni
klúbbsins.
Hvernig voru þessi
verkefni öll fjármögn-
uð?
Framreiknað til verðlags í dag eru
þetta margar milljónir króna. Þess-
ar tölur segja aðeins hluta af verk-
efninu. Vinnuframlagið er hér
hvergi talið fram. Eitt árið þeg-
ar mest var að gera og fjáröflunin
á hámarki þá skiluðu félagarnir allt
að 500 vinnustundum. Klúbbnum
hafa borist góðar gjafir.
Flugeldasalan hefur gefið drýgst-
ar tekjurnar allt frá fyrsta ári. Eftir
tveggja áratuga sölu var þetta verk-
efni fært yfir til björgunarsveit-
anna, enda voru þær hæstu styrk-
þegar Jökla. Ýmsar fleiri vörur voru
seldar fyrir jólin. Þegar bifreiða-
kaupin stóðu yfir þá voru ýmsar
leiðir farnar til hjálpar. Stofnað var
til happdrættis, sem gaf af sér góð-
an hlut, spilað var bingó nokkur ár
til fjáröflunar. Þá var fengið leyfi
fyrir almennri fjársöfnun í öllu hér-
aðinu. Farið var heim á hvern bæ.
Viðtökurnar voru ógleymanlegar.
Það söfnuðust hjá 270 heimilum
og 28 fyrirtækjum 1.766.476 krón-
ur. Núvirði 3,5 miljónir. Félagarn-
ir fóru yfir á verkkaupamarkaðinn.
Þá var Skattskrá Borgarfjarðar gef-
in út í tvö ár ívafin auglýsingum.
Endurnýjuð var miðstöðvarlögn
í Brún, einangraðir 4 km í hita-
veitulögninni. Tekið var eins hekt-
ara skógræktarsvæði á leigu í landi
Fitja í Skorradal árið 1980. Plant-
að var þar út næstu þrjú árin 3.450
plöntum af rauðgreni og stafafuru.
Í fyllingu tímans varð trjásalan góð
tekjulind.
Fátt óviðkomandi
Hvers vegna er fólk í Kiwanis? Er
ekki gaman að vera þar? Fundir
voru hálfsmánaðarlega átta mánuði
ársins. Á fundunum voru málefni
líðandi stundar tekin til umræðu. Ef
litið er í fundargerðirnar þá kemur
í ljós að Jöklamönnum var ekkert
óviðkomandi. Málaflokkarnir voru
næstum óteljandi: Sveitarstjórnar-,
íþrótta- og landbúnaðarmál, björg-
unar-, samgöngu- og trygginga-
mál, heilbrigðis-, æskulýðs- og um-
hverfismál. Dreifibréf var sent á öll
heimili í héraðinu til hvatningar á
góðri umgengni. „Hreint land er
fagurt land, Hrein jörð um Borg-
arfjörð.“ Þá var klúbburinn aðili að
verðlaunaveitingu til snyrtilegustu
býla í sýslunum.
Kiwanisfólkið kunni líka að
skemmta sér. Heimsóknir til ann-
arra klúbba voru alltaf á dag-
skrá. Eftirminnileg var heimsókn
til Helgafells í Vestmannaeyjum
Skemmtiferðir voru farnar. Farið
var í sérstaka ferð í siglingu á Rín
í tilefni 10 ára afmælisins. Innsti
kjarni félagsins var og er í stuttu
máli þessi:
Gakktu á undan gerðu rétt með
góðu fasi.
Efldu það á ýmsan hátt
að allir lifi í góðri sátt.
(HÞ)
Starfslok klúbbsins
Allt tekur enda. Nú er störfum lok-
ið hjá Jöklum og einn hlekkur í
kiwaniskeðjunni numinn á brott.
Minningin um starfssama drengi
lifir áfram. Flestir stofnfélaganna
eru búnir að kveðja. Blessuð sé
minning góðra félaga. Að verkalok-
um bera Jöklafélagar fram hrein-
an skjöld. Við megum vera stoltir
yfir þeim verkefnum sem við höf-
um lagt til samfélagsins. Við minn-
umst orða Þóris Hall svæðisstjóra
sem tilgreind voru í upphafi: „Það
sveitarfélag sem hefði kraftmik-
inn og góðan kiwanisklúbb innan
sinna vébanda væri betra sveitar-
félag.“ Aðstæður breytast, hlýnun
umhverfis, jöklar hopa og hverfa.
Kiwanisklúbburinn Jöklar lifir í
minningu þeirra sem notið hafa
áhrifa hans og góðra verka. Að lok-
um kemur þakkarkveðja, sem Jak-
ob Jónsson á Varmalæk sendi okk-
ur: „Mér ber að þakka, en orð mig
óðar þrýtur samt óska ég að skjöld-
ur ykkar megi jafnan verða eins
hreinn og mjallahvítur og hvolfþak
jökulsins á björtum degi.“
Markmið kiwanis
Í meginkafla munu tryggðir
merkir þættir, æðstu dyggðir
um mennsk og mannleg kjör.
En verðmæti sem verða unnin
af veraldlegum toga spunnin
verða að víkja úr för.
Eins og þú vilt aðrir geri
athöfn þín í sannleik veri
æðsta markmið þetta er.
Varúð skaltu í verkum sýna
vanda ávallt hegðan þína
og félagþroskinn fylgir þér.
Varanlegu vinaböndin
veitast þér og bróðurhöndin
góðvildin til grannans kemst.
En fyrst af öllu fram skal tekið
og framar eigingirni rekið
Börnin okkar fyrst og fremst.
(HÞ)
Hjörtur Þórarinsson
Árið 1979 afhentu félagar í Jöklum Björgunarsveitinni Heiðari Snow-Trac snjóbíl
að gjöf. Reyndist hann sveitinni vel. Meðal annars voru félagar í Heiðari fyrstir á
honum að vettvangi flugslyssins í Ljósufjöllum í apríl 1986.
Klúbbur í Borgarfirði
Farið yfir sögu Kiwanisklúbbsins Jökla í Borgarfirði
Hjörtur Þórarinsson fyrrum skólastjóri
á Kleppjárnsreykjum rifjar upp sögu
Kiwanisklúbbsins Jökla.
Frá afhendingu Kiwanisklúbbnum á nýrri björgunarbifreið. Jón Þórisson formaður björgunarsveitarinnar Oks tekur við
lyklunum úr hendi Kiwanismannsins Finnboga Arndal.