Skessuhorn - 27.11.2019, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 27. NóVEMBER 2019 27
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Athygli er vak-
in á því að ný krossgáta er birt í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@
skessuhorn.is fyrir klukkan 15:00 á mánudögum, 12 dögum eftir að
hún birtist. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með
lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á:
„Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja
þarf lausnir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að hún birt-
ist). Dregið er úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn
bók að launum.
Lausnin á síðustu krossgáta var: „Mánudagur“. Heppinn þáttta-
kandi er: Leifur Þór Ingólfsson, Skúlagötu 12, 340 Stykkishólmi.
Heilla-
drjúgt
Mjöður
Kvakar
Suður
Álegg
Skraut-
leg
Hátt-
vís
Unaður
Tala
Maðkur
Val
Laðaði
Kvöld
Nál
Ferskur
Gista
Bor
Korn
Mat
Dvelur
Hljóta
Tunnur
Fólk
5
6 Röst
Óhóf
Afa
Flökt
Stærð
Þófi
Skjól
Tipl
Hvíldi
Snjór
1
Kopar
Kind
Frera
Kona
Átt
Kæpa
Ferð
Starf
Merki
Þekkt
Fjör
Hagur
Tónn
Elfur
Samhlj.
Beita
Röð
Ólm
Ylja
Spil
8
Törn
Dropi
Afbragð
Elska
Æst
Fæddi
Magn
Gelt
Röst
Kusk
Þjóta
Kall
Mæla
Sk.st.
3
Með-
bróðir
2 Pípir
Auma
Grip
Kona
Leiðsl-
ur
Skalli
Grunaði
Vinir
Hælir
Keyrði
Örn
Mjór
Hug-
skot
Land-
bára
Anga
Risa
Fjúk
4
Skyld Étandi
Jarð-
vegur
Óttast
Stó
Blund
Hvíldi
Dramb
Grípa
Veisla
Samhlj.
Átt
51
Ýra
7
Utan
Röst
Laðaði
Farm-
gjald
Félagar
1 2 3 4 5 6 7 8
B A U G U R B A R D Ú S A R
E F N I N A U T U R E Ð A
S T I N N U R Ó Ð U R I N N
T A N N A Ð I M U N Ú Ð A N
N A A F L Ð R U M M M M
E N D A L A U S T R Ó A J
R Ö D D A U R L Ó A G G A
K L A U F A M A N Ó T
I L U M S L A G Á S A L
L I N Ó T A L B Ó K K Ö S
L Ö G N U G L U R L A U S T
U N I R A T L E I K U R
D R A L L K R A M
H A S V O F L Ó A M U N
F Á K A G N D U L R U K U
L L Á R Ý L U R G L X
O F L A Á A N G A F L Ó A
K V A R Ð I G A R P A A R
I Ð G U M A R Ó A R T R Ó
M Á N U D A G U R
L
A
U
S
N
Ú
R
S
ÍÐ
A
S
T
A
B
L
A
Ð
I
Pennagrein
Eldvarnaátak Landssambands
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna (LSS) fer fram um allt land
um þessar mundir. Slökkviliðs-
menn heimsækja þá börnin í 3. bekk
grunnskólanna og fræða þau um
eldvarnir. Börnin fá með sér heim
handbók Eldvarnabandalagsins um
eldvarnir heimilisins og söguna af
Brennu-Vargi og Loga og Glóð.
Að þessu sinni fá börnin einnig að
sjá í fyrsta sinn nýja teiknimynd um
Loga og Glóð og baráttu þeirra við
Brennu-Varg. Þeim gefst jafnframt
kostur á að taka þátt í Eldvarnaget-
rauninni en heppnir þátttakendur í
henni fá afhent vegleg verðlaun á
112-deginum, 11. febrúar.
Hlustið á börnin
Reynslan sýnir að átta ára börn eru
mjög móttækileg fyrir fræðslu um
eldvarnir og við þekkjum fjölmörg
dæmi um að þeim hafi tekist að
hafa vit fyrir foreldrum sínum um
eldvarnir heimilisins eftir að hafa
fengið slökkviliðið sitt í heimsókn.
Fræg er til dæmis sagan af strákn-
um sem tókst að fá móður sína ofan
af því að stökkva vatni á eld sem
logaði í olíu í potti af því að hann
vissi betur en mamman.
Foreldrar barna á þessum aldri
eru yfirleitt fremur ungir að árum.
Rannsóknir sem Gallup hefur gert
fyrir LSS og Eldvarnabandalagið
sýna ótvírætt að ungt fólk allt að 35
ára aldri býr við miklu lakari eld-
varnir en aðrir. Og þar með börnin
á viðkomandi heimilum.
Alltof algengt er að fólk á þess-
um aldri hafi aðeins einn eða jafn-
vel engan reykskynjara á heim-
ilinu. Fólk að 35 ára aldri er jafn-
framt ólíklegra en aðrir til að vera
með slökkvitæki og eldvarnateppi
á heimili sínu. Þó er margreynt að
þessi einfaldi slökkvibúnaður get-
ur komið í veg fyrir stórtjón þeg-
ar eldur kemur upp. Slökkvitæki og
eldvarnateppi eiga að sjálfsögðu að
vera á hverju heimili.
Til öryggis
Efling eldvarna er liður í því að auka
öryggi jafnt barna sem fullorðinna
á heimilinu. Þegar börnin koma
heim úr skólanum eftir að hafa feng-
ið slökkviliðið sitt í heimsókn er því
upplagt að foreldrar setjist niður
með barninu sínu, kynni sér fræðslu-
efnið og fari skipulega yfir eldvarnir
heimilisins.
Erum við með nógu marga, virka
og rétt staðsetta reykskynjara til að
tryggja að fjölskyldan vakni og nái
að forða sér út ef eldur kæmi upp til
dæmis að næturlagi? Höfum við gert
og rætt við börnin áætlun um hvern-
ig við yfirgefum heimilið á neyðar-
stundu? Hvar ætlum við að hittast
þegar allir eru komnir út? Er til-
skilinn slökkvibúnaður á heimilinu?
Kunnum við að nota hann? Er eitt-
hvað í daglegri umgengni á heimilinu
sem við getum breytt til að draga úr
líkum á að eldur komi upp?
Leiðbeiningar um eldvarnir
heimila er að finna í handbók Eld-
varnabandalagsins sem börnin fá
með sér heim. Við biðlum til for-
eldra að kynna sér þær og fylgja
þeim. Þannig verður heimilið miklu
öruggari staður til að vera á.
Garðar H. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Eldvarnabandalagsins
og verkefnastjóri Eldvarnaátaksins
Þráinn Ólafsson, slökkviliðsstjóri
Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðar-
sveitar
Espólín bókaforlag hefur gefið út
bókina Uppskriftir eftirstríðsáranna
- matur úr íslenskum eldhúsum eft-
ir stríð. Þar er á ferðinni öðruvísi
matreiðslubók með aðkomu fjög-
urra kvenna. „Með henni er hald-
ið á lofti merki þeirra sem löngum
komu við sögu þar sem matur var
gerður. Matargerð hefur breyst
í aldanna rás og mun áfram taka
breytingum. En sagan má aldrei
gleymast,“ segir í tilkynningu frá
höfundi. Í bókinn eru 50 uppskriftir
upp úr matreiðslubókum systranna
Sigurlaugar og Guðbjargar Sveins-
dætra frá Tjörn á Skaga sem stund-
uðu báðar nám við Kvennaskólann
á Blönduósi á stríðsárunum. Sig-
urlaug Björnsdóttir frá Kornsá var
matreiðslukennari og Sólveig Sövik
skólastýra.
„Það er býsna langur vegur frá
eldhúsi Kvennaskólans á Blönduósi
á tímum síðara heimsstríðs til nú-
tímaveitingahúss. Samt er einhver
samhljómur, einn og sami streng-
urinn gengur gegnum allt ferlið.
Uppskriftunum frá Blönduósi er
fylgt úr hlaði af höfundum með
textum dagsins. Textar, m.a. um
það sem efst er á baugi í samtíman-
um eða hjá höfundum, rifjaðir upp
þættir úr sögu kvennafræðslu og
saga réttanna. Uppskriftirnar urðu
kveikjan að samtali milli höfunda
við leit að formi nýrrar matreiðslu-
bókar sem nú lítur dagsins ljós.“
mm
Ungir eldvarnafulltrúar
heimilanna
Uppskriftir
eftirstríðsáranna