Skessuhorn


Skessuhorn - 11.12.2019, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 11.12.2019, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 11. DeseMbeR 2019 27 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Athygli er vak- in á því að ný krossgáta er birt í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem vilja geta sent skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@ skessuhorn.is fyrir klukkan 15:00 á mánudögum, 12 dögum eftir að hún birtist. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að hún birt- ist). Dregið er úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bók að launum. Lausnin á síðustu krossgáta var: „Fullt hús“. Heppinn þátttakandi er: Guðmundur Garðarsson, Jörundarholti 120, 300 Akranesi. Máls- háttur Stök Fé Þröng Rest Megin Hæðir Sér eftir Inn Neyta Fæða Lyfseðill Not Aðstoð Samið Band Ferð Sk.st. Tónn Ekki Eyðsla Upphr. Skjal Flan Blaður Snagi Kall Örn Korn Sk.st. Hrukka Púki Óhóf Depill Norður For Glaðar Endist 8 Lok Vangá Sæti 1 Blað Læti Grípa Veðja Húð Tútta Safi Syllur 5 Flöktir Tuð Fugls magi Falleg Fjöldi Far- angur Dregur Þegar Harður Píla Arfberi Samhlj. Forkur Fjötur Stó Atorka Gæði Hak Bráðum Loforð Rasar 7 Grípa Loftop Mynni 3 Kvikur Hvel Tóm Tónn Hróp Rödd Lokka Reið Ákoma Gerast Sk.st. Villtur Upphr. Hljóm Mót Fák Illgresi 2 Skál Ræðu- stóll Brún 9 Aðseta Bók Amstur Egna Skjól Á flík Vetrar- mán. Óska Ornar Drif 4 Band Háski Skófla 6 Vær Reim Baun Skelin Duft Ekrur Rusl 1 2 3 4 5 6 7 8 9 O F J Ö L S K Y L D A N Á L I T U N I R F Á K Ú T A R D R Ó T T H V A R T I F S A T E I R Æ R Í S E V A N A I Ð J A T Á K N I K U N N L A Á T T Æ S T O R N A L O T A T Á R Á S T Æ F A F L G Á S Ó P T A L A N Á U N G I F L A U T A R D A M A Æ Ð A R K R Ú N A I M Á T A R Ó K R Ý R L Á I L M A R U M R M O L D Ó A R A R I N Æ Y F I R L Æ T I Ð N Á Á T N A L I Ú Ð A I N N I Ð A D R Ó F R A K T V I N I R F U L L T H Ú S L A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I Pennagrein Verkefni okkar sem sveitarfélags er að festast ekki í fortíðinni og hræðast ekki breytingar og áskor- anir sem fylgja framtíðinni. sveit- arstjórnarfólk má ekki vera ákvarð- anafælið og óttast að styggja þá sem vilja toga í tauminn þegar framtíð- in er rædd. Til að hægt sé að taka ábyrgar ákvarðanir inn í framtíðina þarf langtímasýn að liggja fyrir. Í þeirri framkvæmdaáætlun sem nú liggur fyrir til afgreiðslu með fjárhagsáætlun sveitarfélagsins til næstu 4 ára er gert ráð fyrir 550 milljónum í skólahúsnæði og er það viðbót við milljarð sem þegar hefur verið framkvæmt fyrir síðustu 2-3 ár. Þrátt fyrir það liggur engin áætl- un fyrir hjá meirihluta sveitarstjórn- ar um framtíðarskipulag skólamála í sveitarfélaginu. Nú liggur fyrir mat hönnuða um að húsnæði Grunn- skólans á Kleppjárnsreykjum sé það illa farið að hagkvæmast sé að rífa það og byggja nýtt skólahúsnæði, en áætlanir hafa legið uppi síðustu ár um að fara í nauðsynlegar end- urbætur á grunnskólanum á Klepp- járnsreykjum. Kostnaðaráætlanir síðustu tveggja ára í framkvæmda- áætlun hafa farið langt fram úr öll- um áætlunum, skortur er á aðhaldi og yfirsýn og útlit fyrir að sveitar- félagið sé komið langleiðina með efni í nýtt „braggamál“ hér í borg- arbyggð. engin áætlun eða framtíðarsýn hefur verið lögð fram af meirihluta sveitarstjórnar um nýtingu eigna sveitarfélagsins, en næstum all- ar eignir sveitarfélagsins hafa ver- ið í mikilli viðhaldsþörf síðust ár. Mikill tími, fjármagn og orka hef- ur farið í það síðustu ár að stofna vinnuhópa sem hafa skilað af sér ágætum skýrslum um nýtingu hús- næðis í eigu sveitarfélagsins og eru hópar starfandi í dag í tengslum við skipulag leikskólamála og framtíð- arskipulag íþróttahússins í borgara- nesi. Ljóst er að núverandi meiri- hluta skortir sameiginlega sýn á framtíðina og því dettur botninn sí- fellt úr umræðunni þegar kemur að þeim hluta að taka ákvarðanir. Þrátt fyrir að íbúar hafi haft aðkomu að öllum vinnuhópum og skýrslum síðustu ár hefur það engu breytt um ákvarðanatökufælni meirihlutans. sveitarstjórnarfulltrúar meiri- hlutans forðast allar umræður sem krefjast niðurstöðu um langtíma- sýn þar sem ljóst er að þverpólitískt samkomulag næst ekki um málefni er snerta hagsmuni sveitarfélagsins til framtíðar. Þau hafa nýtt tímann vel frá síðustu kosningu til að þakka sjálfum sér fyrir jákvæða fjárhags- stöðu sveitarfélagsins, sem helgast eingöngu af jákvæðum hagrænum áhrifum sem auknar útsvarstekjur og aukið framlag úr jöfnunarsjóði hafa haft síðustu ár, ásamt því að klappa sér á bakið fyrir þau verkefni sem var unnið að á síðasta kjörtíma- bili eins og undirbúning að bygg- ingu skólahúsnæðis Grunnskóla borgarness, nýtt deiliskipulag og ljósleiðaraverkefnið svo eitthvað sé nefnt. Ég óttast að ekkert af þeim fjölmörgu málum sem legið hafa í loftinu ókláruð síðustu ár verði af- greidd á þessu kjörtímabili, tækifæri til uppbyggingar verði ekki nýtt og engar ákvarðanir teknar sem koma okkur á braut vaxtar fyrir sveitar- félagið. Meirihlutanum hefur ekki ennþá tekist að fanga nema lítið brot af þeim ágætu málum sem þau settu fram í málefnasamning sínum árið 2018. Á meðan engin sýn er til staðar og engin geta og eldmóður til þess að leiða verkefni áfram og klára dæmið munum við fylgjast með tekjum sveitarfélagsins ausið stefnulaust. Við fulltrúar Framsóknarflokks- ins í sveitarstjórn erum orðnir lang- þreyttir á að sitja fundi þar sem mik- ið er talað um vilja til móta stefnu um hin ýmsu mál en ekkert gerist. Fyrirtækjum er ekki að fjölga, eng- in áform um uppbyggingu leigu- húsnæðis og engar framkvæmdir í gangi. Þær tillögur sem nú liggja fyrir Alþingi um styrkingu sveitar- stjórnarstigsins kalla enn fremur á það að sýn sveitarstjórnarfulltrúa á heildarhagsmuni sé skýr. Tillög- ur sveitarstjórnarráðherra fela í sér tækifæri til styrkingar á fjárhags- legri stöðu sveitarfélaga ásamt því að hafa jákvæð áhrif á styrk sveit- arfélaganna til að takast á við þró- un og eflingu á hverju svæði. Við sveitarstjórnarmenn þurfum einnig að móta okkur sýn í tengslum við þær tillögur sem liggja fyrir í sam- ráði við íbúa. Við getum sem sveitarfélag, hvar sem landfræðileg mörk okkar munu liggja á næstu árum, verið í fremstu röð. Mikilvægt er að stöð- ugt endurmat sé á nýtingu tækifæra til að hagræða og framsýni sé við- höfð í að takast á við nýjar áskoran- ir og byggja upp til framtíðar. Það er lykilatriði að skýr framtíðarsýn liggi fyrir til grundvallar ákvörð- unum með heildarhagsmuni íbúa að leiðarljósi . Verum ábyrg, á tán- um, full af eldmóði og óhrædd við að vera framsækin. Guðveig Lind Eyglóardóttir. Höfundur er oddviti Framsóknar- manna í Borgarbyggð. Borgarbyggð í fremstu röð til framtíðar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.