Skessuhorn - 11.12.2019, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 11. DeseMbeR 201928
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Mikilvægasta hlutverk minnihluta
sveitarstjórnar hverju sinni er að
veita meirihluta aðhald og reyna
af fremsta megni að leiða hann á
réttar brautir, sé þess þörf. bæjar-
fulltrúar sjálfstæðisflokksins í bæj-
arstjórn Akraness taka hlutverk sitt
í minnihluta mjög alvarlega og hafa
staðið vörð um þá skýru framtíðar-
sýn sem sköpuð var í síðustu bæjar-
stjórn og að ráðist verði í þau nauð-
synlegu verkefni sem undirbúin
hafa verið af kostgæfni.
bæjarfulltrúar sjálfstæðisflokks-
ins hafa bent á að ákveðið stefnu-
leysi hefur ríkt í bæjarstjórn Akra-
neskaupstaðar á þessu kjörtímabili.
Vinnubrögð núverandi meirihluta
við gerð upphaflegra fjárhagsáætl-
ana hafa einkennst af skorti á lang-
tímasýn því eingöngu er horft til
eins árs í senn við gerð hennar. Með
skýrri framtíðarsýn, vel ígrundaðri
þarfagreiningu og góðri þekkingu á
fjárfestingar- og rekstrargetu sveit-
arfélagsins getur bæjarstjórn betur
tekið stefnumótandi ákvarðanir um
þjónustu við íbúa og fjárfestingar til
framtíðar.
Fjárhagsáætlun 2020
Í undirbúningi bæjarráðs að fjár-
hagsáætlun 2020 hafa fulltrú-
ar sjálfstæðisflokksins lagt áherslu
á að efla lögbundna þjónustu sem
og á þau verkefni sem skapað geta
sveitarfélaginu auknar framtíðar-
tekjur. bæjarstjórnin var samstíga í
því að virða Lífskjarasamningana og
tilmæli sambands íslenskra sveitar-
félaga um að hækka gjaldskrár ekki
umfram 2,5%. Þar sýnum við gott
fordæmi og gerum í raun betur en
mörg önnur sveitarfélög.
Fjárhagsáætlun Akraneskaup-
staðar fyrir árið 2020 og fram-
kvæmdaáætlun fyrir árin 2020-2023,
sem samþykktar voru í bæjarstjórn í
gær, bera þess skýrt merki að gott
aðhald minnihluta er nauðsynlegt.
Verkefni sem undirbúin voru á síð-
asta kjörtímabili, svo sem fimleika-
hús við Vesturgötu, reiðskemma
hestamannafélagsins Dreyra, upp-
bygging á Dalbrautarreit og ný
grunnsýning á byggðasafni ættu
því að óbreyttu að verða að veru-
leika á árunum 2020 og 2021.
Lækkun fasteignaskatts
Á undanförnum árum hefur fast-
eignamat á Akranesi hækkað mik-
ið. Óbreytt álagningarprósenta
hefði leitt af sér stórhækkun fast-
eignaskatts á heimili og fyrirtæki
í bænum. Á síðasta kjörtímabili,
undir forystu sjálfstæðisflokksins
og bjartrar framtíðar, var ákveðið
að lækka álagningarprósentuna. Í
undirbúningi fjárhagsáætlunar fyrir
árið 2020 lagði sjálfstæðisflokkur-
inn til lækkun fasteignaskatts á at-
vinnuhúsnæði um 11,4%. Tillag-
an var samþykkt og varð ein af for-
sendum við áætlunargerðina. sjálf-
stæðisflokkurinn telur þetta vera
mikilvægt skref í eflingu atvinnulífs
á Akranesi og til þess fallið að auka
samkeppnisforskot sveitarfélagsins.
Velferð framar
gæluverkefnum
Til stóð að leggja hagræðingarkröfu
á velferðarsvið sem þýðir á manna-
máli lækkun fjárframlaga til vel-
ferðarmála. Því voru bæjarfulltrú-
ar sjálfstæðisflokksins mótfalln-
ir og lögðu þess í stað til að fallið
yrði frá verkefnum á borð við flóa-
siglingar og bætta aðstöðu til keilu-
iðkunar í íþróttahúsinu að Vestur-
götu. Hvorugt þeirra verkefna telst
til lögbundinnar þjónustu sveita-
félagsins. Nokkuð skorti á að und-
irbúningur vegna þeirra verkefna
væri nægilegur og þurfti meirihlut-
inn því að kalla eftir frekari gögn-
um frá Keilufélaginu á milli fyrri
og seinni umræðu um fjárhagsáætl-
unina!
Lærdómssamfélagið
á Akranesi
Að tillögu sjálfstæðisflokksins var
haldið vel heppnað íbúaþing um
lærdómssamfélagið á Akranesi nú
í haust og er ætlunin að leggja af
stað í endurskoðun skólastefnu
kaupstaðarins á nýju ári í samvinnu
allra flokka í bæjarstjórn. sjálfstæð-
isflokkurinn hefur jafnframt tek-
ið þátt í undirbúningi að ákvörðun
um byggingu á nýjum leikskóla og
hefur verið horft til hugmynda frá
síðasta kjörtímabili um að nýta hús-
næði leikskólans Garðasels til að
auka rými í Grundaskóla sem býr
við þröngan kost. sjálfstæðisflokk-
urinn styður við uppbyggingu sem
styrkir stoðir fjölskyldunnar í sam-
félaginu hér á Akranesi. Þá hefur
sjálfstæðisflokkurinn lagt til breyt-
ingar á skipan mötuneytismála í
stofnunum bæjarins og er starfs-
hópur að störfum þar að lútandi
undir forystu sjálfstæðisflokksins.
Leiðarljósið er að auka fjölbreytni,
gæði og öryggi þegar kemur að fæði
fyrir nemendur, starfsfólk og skjól-
stæðinga bæjarins.
Uppbygging
á Jaðarsbökkum?
sjálfstæðisflokkurinn vakti at-
hygli á því við fyrri umræðu fjár-
hagsáætlunar fyrir skömmu að
uppbyggingu á Jaðarsbökkum var
slegið á frest. slíkt er óásættan-
legt. Verkefnið er mjög metnað-
arfullt og mun mannvirkið nýtast
vel skólasamfélaginu, íþróttahreyf-
ingunni og styður við stefnu um
heilsueflandi samfélag sem Akra-
nes er nú þátttakandi í. samþykkt
var um síðir að verja fjármunum á
árinu 2021-2023 til verksins. sjálf-
stæðisflokkurinn fagnar því en bet-
ur má ef duga skal, því þeir fjár-
munir duga skammt.
Nýframkvæmdir
í gatnagerð
Þá lagði sjálfstæðisflokkurinn til
að auknir fjármunir yrðu settir í
nýframkvæmdir gatna í skógar-
hverfi fyrir seinni umræðu fjár-
hagsáætlunar enda annars yfirvof-
andi skortur á nýjum einbýlis-,
par- og raðhúsalóðum á Akra-
nesi strax á næsta ári. slíkt er ekki
ásættanlegt fyrir bæjarfélag í þeirri
sókn sem Akraneskaupstaður á að
vera. Gengið var að þeirri tillögu
okkar.
Forvarnarmál
unga fólksins
Á dögunum var haldinn 18. bæjar-
stjórnarfundur unga fólksins. Þar
var kallað eftir auknu fjármagni
í forvarnarmál, svokallaða jafn-
ingafræðslu. sjálfstæðisflokkur-
inn lagði til að verja einni milljón í
þetta mikilvæga verkefni og stefna
að því gera slíkt hið sama næstu
ár. Tillagan var samþykkt í bæjar-
ráði sem er gott fyrsta skref í þessu
mikilvæga verkefni.
Fingraför meirihlutans
Á milli umræðna óskaði meiri-
hlutinn eftir frekari greiningu á
málefnum Keilufélagsins. Niður-
staða þeirra var að verja 40 millj-
ónum króna á árinu 2020 í þetta
verkefni. sjálfstæðisflokkurinn er
algjörlega mótfallinn þessari for-
gangsröðun fjármuna. Ástæða þess
liggur í þeim fjölmörgu verkefnum
sem fagráð sveitarfélagsins lögðu
áherslu á í undirbúningi fjárhags-
áætlunar og fá ekki brautargengi
núverandi meirihluta. Fyrir þessa
fjárhæð væri hægt að efla lög-
bundna þjónustu sveitarfélagsins,
sem fagráðin kölluðu eftir og bæn-
um ber að sinna.
Fingraför
Sjálfstæðisflokksins
bæjarfulltrúar sjálfstæðisflokksins
hafa miklar áhyggjur af búsetuúr-
ræðum fyrir fatlaða einstaklinga
á Akranesi og hafa komið þeim
áhyggjum á framfæri í bæjarráði.
Hafa þarf hraðar hendur á fyrstu
mánuðum nýs árs og leggja grunn
að þeirri stefnu sem bærinn hyggst
taka til framtíðar í málaflokknum.
Það þolir að okkar mati enga bið.
Fulltrúar minnihlutans eru ánægð-
ir með fingraför sín á fjárhagsáætl-
un ársins 2020. Þau atriði sem
nefnd eru hér að framan falla öll að
þeirri stefnu sem sjálfstæðisflokks-
ins mótaði á síðasta kjörtímabili og
í kosningabaráttu sinni árið 2018.
Lögbundnum verkefnum verður
alltaf að sinna fyrst og fremst. Að-
eins þannig sköpum við eftirsókn-
arvert samfélag.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjórn Akraness,
Rakel Óskarsdóttir,
Sandra Margrét Sigurjónsdóttir,
Einar Brandsson,
Ólafur Adolfsson.
Leiðsögn og fingraför minnihluta
Sjálfstæðisflokksins