Skessuhorn - 11.12.2019, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 11. DeseMbeR 2019 23
Löng hefð er fyrir því að nem-
endur í brekkubæjarskóla á Akra-
nesi haldi nokkrar morgunstund-
ir á hverju skólaári og þar af er
ein jólamorgunstund sem haldin
var síðastliðinn föstudagsmorgun.
„Líkt og venjulega sáu nemendur
um öll skemmtiatriði og þau léku
undir öllum söng,“ segir Hjörv-
ar Gunnarsson, kennari í brekku-
bæjarskóla. Að þessu sinni voru
það nemendur í fyrsta, sjöunda og
áttunda bekk sem fluttu atriði fyr-
ir foreldra og aðra gesti sem komu
til að njóta stundarinnar með nem-
endum. Auk þess sem húsbandið,
skipað nemendum af unglingastigi,
lék undir hópsöng. „Fyrsti bekkur
söng Jólasveinninn kemur í kvöld,
sjöundi bekkur söng enn jólin og
áttundi bekkur söng Ég hlakka svo
til. Auk þess söng kór brekkubæj-
arskóla lagið Dansaðu vindur. Það
voru þær Heiðrún Hámundardótt-
ir og Gunnhildur Vilhjálmsdótt-
ir sem sáu um stjórn húsbands og
kórs og höfðu umsjón með æfing-
um,“ segir Hjörvar og bætir því við
að nemendur hafi einnig fengið af-
hentar viðurkenningar fyrir að iðka
góðar dygðir á árinu. „Hefð er fyrir
því að nemendur og starfsfólk endi
á dansi og engin breyting var á því.
Í lok Morgunstundar tóku allir upp
hald og dönsuðu enskan vals,“ segir
Hjörvar. arg
Frá jólamorgunstund í Brekkubæjarskóla á föstudaginn. Ljósm. Hjörvar Gunnarsson.
Jólamorgunstund í Brekkubæjarskóla
Það getur verið vandasamt að skera út laufabrauð.
Það var notaleg jólastemning á Brákarhlíð.
Hægt var að gæða sér á piparkökum á meðan laufabrauðin voru skorin út.
Starfsfólkið skar líka út laufabrauð.
Laufabrauðsgerð í Brákarhlíð.
Svo var setið og spjallað þegar búið var að skera út nokkur laufabrauð.
Sumir létu sér nægja að hluta á jólatónlistina og gæða sér á piparkökum.