Skessuhorn - 11.12.2019, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 11. DeseMbeR 201914
Ævintýraheimur jólanna mun ráða
ríkjum í Garðalundi á Akranesi
næstkomandi laugardagskvöld. Þá
verður haldin hin árlega Jólagleði
í Garðalundi. Hefst hún kl. 19:00
þegar kveikt verður á ljósunum
hans Gutta, en að svo búnu tekur
ævintýraheimur jólanna við.
sem fyrr er jólagleðin ætluð öl-
lum sem vita að jólasveinninn er
til sem og aðstandendum þeirra.
Viðburðurinn hefur fest sig í sessi
sem fastur liður í aðdraganda jólan-
na á Akranesi. Gestir eru hvattir til
að mæta með vasa- eða ennisljós
því það er aldrei að vita hvaða skó-
garverur leynast í ævintýraheimi
jólanna, verur sem betra er að geta
lýst upp.
kgk
Veðrið var ekki mjög jólalegt í
snæfellsbæ fyrsta sunnudag í að-
ventu. Festa varð að kveikja á jóla-
trjánum á Hellissandi og í Ólafsvík
vegna mikils roks og rigningar. Á
öðrum sunnudegi í aðventu viðraði
mun betur þó kalt væri, og var þá
kveikt á jólaljósum á trjánum. Það
voru þau elisabeth Halldóra Ro-
loff og bjarki Már Mortensen sem
aðstoðuðu við að kveikja ljósin og
töldu niður, en þau eru bæði nem-
endur í 1. bekk. sungin voru jóla-
lög og gengið í kringum jólatréið á
báðum stöðum og sáu Trausti Leó
og Kristbjört Ásta um að syngja og
spila fyrir bæjarbúa. Jólasveinarnir
létu það ekki trufla sig þó snjólétt
væri og kalt og höfðu laumast til
byggða að hitt börnin. Þegar búið
var að ganga í kringum jólatréin
glöddu sveinarnir börnin með góð-
gæti úr pokum sínum áður en þeir
héldu aftur til fjalla. en þeir vildu
ekki að Grýla kæmist að því að þeir
hefðu farið og stoppuðu því stutt.
þa
Jólatrjáasala skógræktarfélag borg-
arfjarðar og björgunarsveitarinnar
Heiðars fer fram um næstu helgi.
Félagar í skógræktarfélagi borgar-
fjarðar standa vaktina í Höskuldar-
gerði í Reykholti laugardaginn 14.
desember milli kl. 11 og 16. Fé-
lagar í björgunarsveitinni Heiðari
verða í Grafarkotsskógi í Norð-
urárdal bæði laugardag og sunnu-
dag um komandi helgi milli kl. 11
og 16 og laugardaginn 21. desemb-
er milli kl. 12 og 15. „skógarferð
er skemmtileg afþreying til að velja
jólatré. Fólk fer um skóginn og leit-
ar uppi sitt fegursta jólatré og hegg-
ur/sagar það. Tilvalið fyrir börn-
in velja sitt tré,“ segir í tilkynningu
frá skógræktarfélagi borgarfjarðar.
Hægt verður að fá lánaðar sagir á
staðnum og í boði verður að setja
tréin í net svo auðveldar sé að flytja
þau heim. boðið verður upp á ket-
ilkaffi og kókó með smákökum auk
þess sem hægt verður að hlýja sér
við varðeld. Öll jólatréin verða seld
fyrir 7000 krónur, óháð stærð.
arg/ Ljósm. kgk.
Andi jólanna mun svífa yfir vötn-
um í Tónbergi á Akranesi að kvöldi
fimmtudagsins 19. desember næst-
komandi. Kór Akraneskirkju blæs
þá til jólatónleika, sem hefjast kl.
20:30.
Kórstjóri er sem fyrr sveinn
Arnar sæmundsson. Hann segir
að áheyrendur megi búast við fjöl-
breyttri og skemmtilegir efnisskrá.
„efnisskráin er uppbyggð af út-
setningum og lögum eftir írskt tón-
skáld sem heitir Michael McGlynn.
Hann er írskur kórstjóri, tónskáld
og útsetjari sem ég kynntist fyrir
kannski tíu árum síðan, þegar ég
byrjaði að kaupa af honum nótur,“
segir sveinn Arnar í samtali við
skessuhorn. „Hann hefur komið
til Íslands, tekið ástfóstri við landi
og þjóð og vill allt fyrir mann gera.
Lögin sem við flytjum núna eftir
hann og í hans útsetningum hafa
keltneskt yfirbragð. Þetta er kelt-
nesk jólamúsík, bæði lög sem hann
hefur samið sjálfur og síðan útsett,
þannig að áheyrendur mega eiga
von á því að heyra þekkt jólalög í
nýjum búningi, í bland við hefð-
bundin íslensk jólalög og erlend,“
segir hann.
Undirleikarar á tónleikunum
verða viðar Guðmundsson á píanó
og Gunnar Hrafnsson á kontra-
bassa. „Auk þess munu félagar úr
kórnum annast undirleik, grípa í
hljóðfæri við og við í ýmsum lög-
um,“ segir sveinn og bætir því við
að Viðar muni einnig bregða sér
í hlutverk kynnis á tónleikunum.
„Þetta verður allt saman á léttu nót-
unum, lifandi kynningar frá Viðari,
spjall og sögur og skemmtun,“ seg-
ir sveinn Arnar. „Félagar úr kórn-
um munu taka lagið og í einhverj-
um lögum mun ég skipta röddun-
um, láta karlana syngja sér og kon-
urnar sér. einnig er von á leyni-
gesti og verður það kynnt þegar
nær dregur,“ bætir hann við. „Þetta
verður allt saman létt og skemmti-
legt. boðið verður upp á kaffi og
piparkökur í hléinu og jólastemn-
ingin mun svífa yfir vötnum,“ segir
sveinn Arnar að endingu.
Áhugasömum er bent á að miða-
sala hefst í versluninni bjargi á
Akranesi á föstudaginn, 13. des-
ember en einnig verða seldir miðar
á tix.is. kgk
Á mánudaginn tóku 57 ungir sund-
menn á aldrinum 7-10 ára frá
ÍA og Aftureldingu þátt í sund-
móti í bjarnalaug á Akranesi. Var
þetta annað mótið þeirra af fjór-
um í mótaröð ÍA og Afturelding-
ar. „Þetta er hluti af því að kenna
ungum sundmönnum að taka þátt
í sundmótum og gera þau öruggari
fyrir það sem framundan er,“ seg-
ir í tilkynningu frá sundfélagi ÍA.
Fyrsta mótið var haldið hjá Aftur-
eldingu og fjölgaði keppendum um
tólf á milli móta. „sennilega hefur
fermetrafjöldi í bjarnalaug sjaldan
verið eins vel nýttur, en gera má ráð
fyrir að um 130 manns hafi verið
saman komnir á þessum skemmti-
lega degi,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að krakkarnir hafi synt
tvær ferðir baksund og tvær ferð-
ir skriðsund og staðið sig mjög vel.
„Þetta er framtíðin okkar og verð-
ur spennandi að fylgjast með þeim
áfram.“ Þriðja mótið verður haldið
í Mosfellsbæ eftir áramót. arg
Jólatrjáasala í Borg-
arbyggð um helgina
Frá sundmóti í Bjarnalaug á mánudaginn. Ljósm. aðsend.
Ungir sundmenn
kepptu í Bjarnalaug
á mánudaginn
Kór Akraneskirkju blæs til jólatónleika
„Jólastemningin mun svífa yfir vötnum“
Gestir Jólagleði í Garðalundi mega búast við því að hitta fyrir alls kyns verur á
ferð sinni um ævintýraheim jólanna. Ljósm. úr safni/jho.
Jólagleði í Garðalundi
á laugardagskvöld
Jólasveinarnir
kíktu aðeins við
þegar kveikt var
á jólaljósum á
jólatrjám í Snæ-
fellsbæ.
Jólaljós tendruð í Snæfellsbæ