Læknablaðið - des. 2018, Síða 4
543
Anna Kristín Gunnarsdóttir, Magnús Jóhannsson, Magnús Haraldsson,
Guðrún Dóra Bjarnadóttir
Misnotkun lóperamíðs – hægðatregða eða hjartastopp?
Eftirlit með lyfjaávísunum hér á landi hefur aukist vegna vaxandi misnotkunar ópíóíða og
því er möguleiki að einstaklingar með ópíóíðafíkn leiti í lyf eins og lóperamíð. Embætti
landlæknis hvetur lækna til að nýta sér lyfjagagnagrunn og Lyfjastofnun leitar nú leiða til
að sporna við misnotkun eftirritunarskyldra lyfja. Íslendingar virðast nota helmingi meira
af ópíóíðum en aðrar Norðurlandaþjóðir en ástæða þess er talin vera ávísanir fyrir Park-
ódíni og Parkódín forte. Misnotkun ópíóíða og hætta á ofskömmtum er vaxandi vandamál
hér á landi en þeim sjúklingum sem nota sterka ópíóíða fjölgaði um 68,5% á Sjúkrahúsinu
Vogi á árunum 2015-2017.
551
Atli Steinn Valgarðsson, Sigurbergur Kárason, Elín Laxdal, Kristín Huld Haraldsdóttir
Drep í fingrum í kjölfar ísetningar slagæðaleggja – sjúkratilfelli
Hér er sagt frá sjúklingi í sýklasóttarlosti sem gekkst undir aðgerð vegna rofs á
skeifugörn. Á annarri viku komu fram einkenni blóðþurrðar í öllum fingrum vinstri handar.
Sjúklingur var fjölveikur, hafði þurft háa skammta af æðavirkum lyfjum og þurfti oft að
skipta um slagæðaleggi í mismunandi slagæðum, í sveifarslagæð og ölnarslagæð. Beitt
var blóðþynnandi meðferð sem sjúklingur þoldi ekki vegna blæðinga frá meltingarvegi og
var því dregið úr henni. Átta vikum síðar hafði afmarkast drep í öllum fingrum vinstri hand-
ar og var í kjölfarið gerð aðgerð þar sem hluti af fingrum voru fjarlægðir. Orsök drepsins er
talin vera margþætt.
536 LÆKNAblaðið 2018/104
F R Æ Ð I G R E I N A R
12. tölublað ● 104. árgangur ● 2018
539
Halldór Björnsson
Loftslagsbreytingar
og heilsufar
Mismunandi er hversu ber-
skjölduð þjóðfélög eru fyrir
áhrifum loftslagsbreytinga,
það ræðst af innviðum, at-
vinnuháttum, stjórnarháttum
– en ekki bara af umfangi
breytinganna.
541
Þórhildur Kristinsdóttir
Sagan á bak við
salernis-innlagnir
á Landspítala
Landspítali er hjarta íslenska
heilbrigðiskerfisins, góður
vinnustaður með fagfólk á
heimsmælikvarða, en hjartað
er bilað.
L E I Ð A R A R
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS 100 ÁRA
554
Læknisfræði
framtíðar – munu
gervigreind og
vélmenni leysa
lækna af hólmi?
Magnús Haraldsson
Gervigreind verður sífellt
fyrirferðarmeiri í framþróun
og nýjungum í læknisfræði
og öðrum heilbrigðisgreinum og framfarir verða meiri á næstu 10 árum en þær
hafa verið síðustu 100 ár. Dæmi um nýtingu gervigreindar eru tölvur sem lesa
upplýsingar úr sjúkraskrám og niðurstöður rannsókna og aðstoða þannig við
sjúkdómsgreiningar og ákvarðanir um meðferð. Í ýmsum greinum læknisfræði
er unnið að þróun reiknirita sem vinna með gríðarstór gagnasöfn og geta not-
að upplýsingar úr vísindarannsóknum við greiningu og meðferð sjúkdóma, til
dæmis ýmissa krabbameina.
557
Læknablaðið 2019 – tilkynning frá útgáfustjórn