Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - des. 2018, Blaðsíða 12

Læknablaðið - des. 2018, Blaðsíða 12
544 LÆKNAblaðið 2018/104 menginu.17,18 Einnig sýna þær að lóperamíð geti haft ópíóíðalík áhrif í margföldum meðferðarskömmtum og að P-gp geti átt þátt í þolmyndun gegn hægðastemmandi áhrifum þess.19,20 Stuttu eftir að lóperamíð kom á markað voru misnotkunar- möguleikar þess athugaðir í tveimur rannsóknum á heilbrigðum karlmönnum. Í ljósi þess hversu erfitt er að leysa upp töfluform lyfsins voru áhrif inntöku um munn rannsökuð.4,21 Í annarri rann- sókninni lýstu einungis þrír af 9 vellíðunaráhrifum af völdum lóperamíðs. Naloxongjöf sólarhring síðar virtist einungis valda meltingartengdum fráhvarfseinkennum.4 Í kjölfar þessara rann- sókna var talið að lyfið væri öruggt hvað varðar aukaverkanir og misnotkunarmöguleika í meðferðarskömmtum hjá fullorðnum. Hins vegar hafa skapast umræður á veraldarvefnum um að hægt sé að auka áhrif á miðtaugakerfið með háum skömmtum af lóper- amíði með samhliða notkun P-gp-hemils eða lyfja sem hemla ens- ímin CYP3A4 og CYP2C8.11,15,22 Í sérlyfjaskrá er tekið fram að gæta skuli varúðar ef stórir skammtar af lóperamíði eru teknir samhliða lyfjum sem hemla CYP3A4, CYP2C8 og P-gp.10 Tilfellalýsingar Nýlegar tilfellalýsingar frá Bandaríkjunum greina frá misnotk- un lóperamíðs í margföldum meðferðarskömmtum.15,23-44 Um er að ræða fullorðna einstaklinga sem nota lyfið til þess að upplifa vímuáhrif, meðhöndla ópíóíðafráhvarfseinkenni og/eða byrj- uðu að misnota lyfið í kjölfar niðurgangs.15,24-38 Eitrunaráhrif á hjarta eru ein helsta afleiðing lóperamíðmisnotkunar og al- gengasta birtingarmyndin virðist vera yfirlið eða meðvitundar - leysi.15,24-32,34,36,39,41,42,45,46 Einnig hefur verið lýst andþyngslum/mæði, brjóstverk, krampa, ógleði og uppköstum, stjarfa (catatonia), og vanstarfsemi á heiladingli. Athygli vekur að garnastíflu (ileus) er ekki lýst og sjaldan minnst á hægðatregðu.25-27,30,36-40,47,48 Í tilfella- lýsingum kemur einnig fram að þeir einstaklingar sem leituðu læknisaðstoðar vegna ópíóíðafráhvarfa lóperamíðs voru með- höndlaðir með metadóni eða búprenorfíni.37,43,47 Dauðsföllum og sjálfsvígstilraunum af völdum ofskammts lóperamíðs hefur verið lýst.15,33,35,41,44 Ópíóíðar og lóperamíð Eftirlit með lyfjaávísunum hér á landi hefur aukist vegna vax- andi misnotkunar ópíóíða og því er mögulegt að einstaklingar með ópíóíðafíkn leiti í lyf eins og lóperamíð.49 Embætti landlækn- is hvetur lækna til að nýta sér lyfjagagnagrunn og Lyfjastofnun leitar nú leiða til að sporna við misnotkun eftirritunarskyldra lyfja.50,51 Íslendingar virðast nota helmingi meira af ópíóíðum en aðrar Norðurlandaþjóðir en ástæða þess er talin vera ávísanir fyrir Parkódíni og Parkódín forte.52 Misnotkun ópíóíða og hætta á of- skömmtum er vaxandi vandamál hér á landi en þeim sjúklingum sem nota sterka ópíóíða fjölgaði um 68,5% á Sjúkrahúsinu Vogi á árunum 2015-2017.53 Fráhvarfseinkenni lóperamíðs Fráhvarfseinkennum eftir notkun hárra skammta af lóperamíði svipar til ópíóíðafráhvarfa, til dæmis niðurgangur, ógleði með uppköstum og verkir.37,47,54 Þau lyf sem eru hvað helst notuð við ópíóíðafráhvörfum, meðal annars lóperamíðsfráhvörfum, eru metadón og búprenorfín.37,43,47,55,56 Ólíkt metadóni virðist búprenor- fín ekki valda lengingu QT-bils sem er mikilvægt í ljósi eitrun- aráhrifa lóperamíðs á hjarta.57 Búprenorfín er hlutaörvi (partial- -agonist) á μ-ópíóíða viðtaka og því þarf að vera á varðbergi fyrir bráðum ópíóíðafráhvarfseinkennum sé það gefið einstaklingum sem nýverið hafa tekið inn lóperamíð í háum skömmtum.58 Hér á landi er Suboxone® (samsett af búprenorfíni og naloxoni) not- að í 95% tilfella viðhaldsmeðferðar vegna ópíóíðafíknar og 5% fá metadón.59,60 Á netinu hefur misnotkun lóperamíðs með tilliti til ópíóíðafráhvarfseinkenna og vímuáhrifa verið til umræðu.22 Á mynd 1 má sjá ummæli sem höfundar rákust á við yfirferð á vefsíðum þar sem einstaklingar geta deilt reynslu sinni af vímu- efnum.61,62 Vissulega er ekki hægt að fullyrða að reynslusögurnar Y F I R L I T S G R E I N Mynd 2. Myndin sýnir dæmi um lyf sem gætu aukið áhrif lóperamíðs á miðtauga- kerfið. Lyf sem hafa hemlandi áhrif og/eða eru hvarfefni útflæðispumpunnar P-glýkó- próteins má sjá innan hringjanna auk þess sem CYP3A4-hemlar eru undirstrikaðir. Listinn er ekki tæmandi. Mynd 1. Dæmi um ummæli á netinu á ensku frá einstaklingum sem hafa tjáð sig um áhrif þess að misnota lóperamíð til að ná fram vímuáhrifum. Svigi táknar að höfundar hafi fjarlægt hluta ummælanna. *Losec er ómeprazól, **Percs er oxýkódón.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.