Læknablaðið - dec. 2018, Side 22
554 LÆKNAblaðið 2018/104
Læknablaðið kallaði eftir greinum
í tilefni 100 ára afmælis Læknafélags Íslands.
Undanfarna áratugi hafa orðið gríðarlega hraðar tækniframfarir
sem ekki sér fyrir endann á. Ekki eru nema rúmlega 50 ár síðan
fyrstu tölvurnar komu fram og voru þær keyrðar á forritum sem
skráð voru á gataspjöld. Í dag er vinnslugeta venjulegs snjallsíma
miklu meiri en þeirra tölva sem stjórnuðu geimflaugum Apolloá-
ætlunarinnar.1
Eitt afsprengi þessara framfara eru tölvur sem gæddar eru
því sem nefnt hefur verið gervigreind (artificial intelligence). Slíkar
tölvur geta leyst verkefni sem áður var talið að einungis manns-
hugurinn réði við. Þó að mannsheilinn sé öflugur og settur
saman af um milljarði taugunga sem hver um sig myndar um
1000 tengingar við aðrar taugafrumur er hann langt frá því að
vera óskeikull og geta hans til að muna og varðveita upplýsingar
er í raun afar takmörkuð þegar hún er borin saman við ofurtölv-
ur nútímans.
Þróun gervigreindar hefur leitt til þess að tölvur geta lært
af reynslu sinni, bætt sig stöðugt og jafnvel þróað sjálfar nýjar
aðferðir við að leysa verkefni. Þetta hefur verið nefnt vélnám,
eða machine learning á ensku. Þessar tækniframfarir eru einn af
meginþáttum svokallaðrar fjórðu iðnbyltingarinnar sem mikið
hefur verið rætt um á undanförnum misserum og spáð er að
muni hafa gríðarleg áhrif á líf og störf fólks í náinni framtíð.²
Verkefni sem gervigreindar tölvur nútímans geta leyst eru
til dæmis að greina talað mál og svara flóknum spurningum
sem fyrir þær eru lagðar og að geta lært að greina og þekkja
flókin mynstur eins og andlit. Flókin reiknirit tölva eða svokall-
aðir algoritmar (ísl. algrím) eru jafnt og þétt að taka yfir ýmis
verkefni og störf sem þar til fyrir aðeins nokkrum árum síðan
voru talin vera það flókin að mannshugurinn einn réði við að
framkvæma þau. Í dag er ljóst að mörg störf munu í framtíðinni
verða að hluta eða öllu leyti unnin af gervigreindum tölvum sem
geta lagað sig að margbreytilegum aðstæðum og lært af reynslu
sinni. Áhrifa þessarar þróunar er þegar farið að gæta, til dæmis
í bankastarfsemi og í ferðaþjónustu þar sem störfum fer jafnt og
þétt fækkandi.
Flest eigum við í reglulegum samskiptum við gervigreindar
tölvur með því að nota leitarvélar eins og Google. Því er spáð að
gervigreind muni gegna lykilhlutverki í mörgum tæknibylting-
um framtíðarinnar, til dæmis er líklegt að sjálfkeyrandi bifreiðar
verði komnar í almenna notkun á næstu árum og er talið að sú
þróun muni geta dregið verulega úr bílaumferð og fækkað um-
ferðarslysum um allt að 90%.3
Tækniframfarir í læknisfræði
Gervigreind verður sífellt fyrirferðarmeiri í framþróun og nýj-
ungum innan læknisfræði og annarra heilbrigðisgreina og munu
framfarir að öllum líkindum verða mun meiri á næstu 10 árum
en þær hafa verið á síðustu 100 árum.⁴ Dæmi um mögulega nýt-
ingu gervigreindar í læknisfræði framtíðar eru tölvur sem geta
lesið og greint upplýsingar úr rafrænum sjúkraskrám og niður-
stöður klínískra rannsókna og þannig aðstoðað við sjúkdóms-
greiningar og ákvarðanir um meðferð.⁵
Í ýmsum greinum læknisfræði er unnið að þróun reiknirita
sem vinna með gríðarstór gagnasöfn og geta jafnframt nýtt
upplýsingar úr vísindarannsóknum við greiningu og meðferð
sjúkdóma, til dæmis ýmissa krabbameina.6 Í húðlækningum
er byrjað að nota tölvur sem hafa lært að greina illkynja húð-
breytingar út frá myndum og rannsóknir á greiningu sykursýkis-
skemmda í augnbotnum með samskonar tækni lofa mjög góðu.7,8
Möguleikarnir eru einnig miklir í myndgreiningu (röntgen) og
vefjameinafræði þar sem gervigreindar tölvur munu geta lært að
þekkja sjúklegar breytingar af mikilli nákvæmni og jafnvel betur
en mannsaugað.⁹ Víða er verið að taka í notkun lækningatæki og
vélmenni sem gædd eru gervigreind til dæmis við blöndun og
Læknisfræði framtíðar – munu gervigreind
og vélmenni leysa lækna af hólmi?
Magnús Haraldsson
geðlæknir
situr í ritstjórn Læknablaðsins
hmagnus@landspitali.is