Læknablaðið - Dec 2018, Page 24
556 LÆKNAblaðið 2018/104
Fækkar læknisstörfum í framtíðinni?
Þó að ýmsir spái því að gervigreind og önnur hátækni muni leysa
stóran hluta lækna framtíðarinnar af hólmi eru enn margir sem
telja að þörf fyrir lækna muni ekki minnka heldur muni tækni-
framfarir gera læknum betur kleift að einbeita sér að því sem
mestu máli skiptir: að sinna samskiptum við sjúklinga og finna
nýjar leiðir til þess að bæta heilsu fólks.19,20 Bent hefur verið á að
margir þeirra sem spá yfirtöku gervigreindar í læknisfræði hafa
afar takmarkaða þekkingu og reynslu af heilbrigðisþjónustu og í
þessu sambandi hafa verið nefnd nokkur atriði sem mæla sterk-
lega gegn því að gervigreind muni gera lækna óþarfa í framtíð-
inni. Í fyrsta lagi munu vélar seint geta sýnt samkennd og byggt
upp traust í samskiptum með sama hætti og lifandi læknar en
hvort tveggja eru afar mikilvægir þættir læknisstarfsins. Margt í
starfi lækna krefst þess líka að menn geti hugsað út fyrir kassann
og leitað að óvenjulegum ástæðum fyrir veikindum sjúklinga,
en líklega munu alltaf verða til óvenjulegar og sjaldgæfar orsakir
sjúkdóma sem reiknirit gervigreindra tölva geta illa greint. Hins
vegar munu þessar tækniframfarir geta leitt til aukins öryggis í
heilbrigðiskerfinu.
Í nútímalæknisfræði eru mörg verkefni sem krefjast þess að
unnið sé með mikið magn upplýsinga, til dæmis um mögulegar
aukaverkanir og milliverkanir lyfja eða niðurstöður fjölda blóð-
rannsókna. Þetta eru upplýsingar sem færustu læknar geta misst
af eða gleymt að taka tillit til og það getur leitt til mistaka sem
geta haft alvarlegar afleiðingar. Öflugar tölvur sem búnar eru
gervigreind geta haldið utan um gríðarlegt magn upplýsinga og
lært að greina hættuleg frávik á augabragði. Þær geta því verið
afar gagnlegar sem hjálpartæki við klíníska vinnu og dregið úr
hættu á mistökum.5
Líklega er ekki rétt að líta á hinar hröðu tækniframfarir sem
ógn við framtíð læknisstarfsins eða að stilla þeim upp sem ein-
hvers konar andstæðu við manninn. Framfarir í læknisfræði
munu ráðast af því hvernig hinar öru tækniframfarir munu
nýtast læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki við að auka áreiðan-
leika sjúkdómsgreininga, hraða greiningu og meðferð ásamt því
Líklegt er að í framtíðinni muni gervigreind vélmenni í auknum mæli taka þátt í eftirliti og jafnvel umönnun sjúklinga. NordicPhotos/AFP