Læknablaðið - des. 2018, Síða 30
562 LÆKNAblaðið 2018/104
hafði meðal annars verið framkvæmdastjóri flokksins og
formaður í Reykjavík. Þá var hún varaformaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga áður en hún steig inn á þing. Ein-
hverjir gætu talið að hún hafi alltaf verið í pólitík, en svo er
alls ekki.
„Ég er alin upp við stjórnmál og pólitíska umræðu á
heimilinu en ég fer ekki í hefðbundna pólitík fyrr en ég er
42 ára gömul,“ segir Svandís en eins og flestir vita er hún
dóttir Svavars Gestssonar, fyrrum ráðherra og sendiherra,
og fetar nú í fótspor hans. Hann var viðskipta-, heilbrigðis-
og félagsmálaráðherra og menntamálaráðherra, já og þing-
flokksformaður. Svandís var menntamálaráðherra í fjarveru
Katrínar Jakobsdóttur og umhverfisráðherra á árunum
2009-2013 áður en hún varð heilbrigðisráðherra. Hún hefur
einnig verið þingflokksformaður. En af hverju svona seint?
„Ég hugsa að það hafi haft áhrif að pabbi tók mikið
pláss sem pólitíkus og var mjög áberandi,“ segir hún. „Ég
upplifði það að vera í fjölskyldu með stjórnmálamanni. Svo
líða árin og dálítið mörgum árum síðar feta ég þessa braut
og nýt góðs af því að hann er reyndur stjórnmálamaður og
einn af mínum bestu vinum. Ég get því oft ráðfært mig við
hann og notið hans reynslu við það sem ég er að gera.“
Spennt fyrir heilbrigðismálum
Svandís segir að þótt tímarnir hafi breyst séu grunngildi
stjórnmála þá og nú þau sömu. „Þetta snýst um að taka
ákvarðanir um líf fólks, hvernig við viljum haga opinberri
þjónustu og hvernig við viljum safna fjármagni í sameigin-
lega sjóði og ráðstafa því,“ segir hún.
„Ég geri ráð fyrir því að þetta sé að sumu leyti svipað
þótt það séu ákveðnar áskoranir sem nútíminn leggur
okkur á herðar, sem eru loftslagsmálin og umhverfismálin,
sem voru minna á dagskrá hér á árum áður. Þau voru þó
til og umhverfisráðuneytið varð til á þeim tíma sem pabbi
var í ríkisstjórn,“ segir hún. „En í grunninn snýst þetta um
að taka sér stöðu með heildarhagsmunum.“ Það sé stefna
hennar einnig í heilbrigðismálum. Þann 30. nóvember hefur
Svandís verið ár í embætti. Hvernig hefur árið verið?
„Alveg ótrúlega spennandi. Þetta er þvílíkur málaflokk-
ur. Mjög umfangsmikill og miklar áskoranir. Mjög margt
þarf að gera. Það þarf að taka til hendinni. Það er frábært
að sitja undir stýri þegar við erum að auka við fjármagn á
öllum sviðum,“ segir Svandís og bætir við:
„Sögulega erum við að bæta meiru við á milli ára en
áður hefur verið gert. Bygging nýs Landspítala við Hring-
braut er að byrja. Við erum að styrkja heilsugæsluna um-
talsvert með því að búa þar til þróunarmiðstöð; bæta við
sálfræðingum, styrkja geðheilsuteymin. Við fjármögnum nú
geðheilbrigðisáætlun og sækjum fram á öllum sviðum. Það
er umtalsvert skemmtilegra heldur en að vera í ríkisstjórn
sem þurfti bara að skera niður,“ segir Svandís og vísar í
fyrra ríkisstjórnarsamstarf flokksins, árin eftir hrun.
„[Heilbrigðiskerfið] þarf virkilega á fjárhagslegri
innspýtingu að halda, en það þarf líka á því að halda
að við vitum betur hver gerir hvað og að við skiptum
með okkur verkum,“ segir hún. „Nú erum við bæði
með eyður í þjónustunni og tvíverknað. Við þurfum
því að taka til í kerfinu.“
Svandís hefur nú vermt stól heilbrigðisráðherra í eitt ár. Hún segir umtalsvert
skemmtilegra að gefa í eins og nú um stundir en að sitja í ríkisstjórn sem þurfi
að skera niður. Mynd/gag