Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - des. 2018, Síða 31

Læknablaðið - des. 2018, Síða 31
LÆKNAblaðið 2018/104 563 Kristín Siggeirsdóttir iðjuþjálfi, Hjartavernd og Janusi endurhæfingu Vilmundur Guðnason læknir, Hjartavernd og Háskóla Íslands Gunnar Sigurðsson læknir, Hjartavernd Nýlega var í Læknablaðinu vakin athygli á að nýta mætti betur árangursríka meðferð gegn beinbrotum hérlendis, sérstaklega meðal þeirra sem eru í aukinni áhættu næstu 10 árin.1 Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á að brotaáhætta tvöfaldast eftir fyrsta beinbrot aldraðra og er mest fyrsta árið.2 Þetta áhættuhlutfall, tvöföldun, hefur verið notað í alþjóðlegum áhættu- reikniforritum, til dæmis í FRAX.3 Í þessu sambandi viljum við vekja athygli á nýrri vísindagrein „Character- istics of recurrent fractures“ sem birtist í Osteoporis International 2018 og var unnin upp úr stórum gagnagrunni Hjartavernd- ar, sem undirstrikar þetta enn frekar.4 Hjartaverndarhópurinn hefur þann kost að vera stærri og ná yfir lengra tímabil en flestar aðrar hóprannsóknir. Niður- stöður ofangreindrar rannsóknar benda til þess að beinbrotaáhætta hafi hingað til verið vanmetin verulega í kjölfar fjögurra þekktustu beinþynningarbrot- anna: mjaðmarbrota, hryggsúlubrota, upphandleggsbrota og framhandleggs- brota. Í Hjartaverndarrannsókninni (alls 18.872 karlar og konur) var brotasaga allra karla og kvenna sem hlutu eitthvert áðurnefndra fjögurra brota könnuð næstu 10 árin. Samanburður var síðan gerður við þann hóp sem ekki hafði slíka brota- sögu. Að meðaltali hlutu 28-38% hópsins eitthvert slíkt brot aftur á næstu 10 árum. Mynd 1 úr birtri grein frá Hjartavernd í Osteoporosis International sýnir áhættu- hlutfall kvenna næstu 10 árin við 70 ára aldur samanborið við þann hóp sem ekki hafði fyrir slíka brotasögu. Meðaláhættan var mest áberandi fyrsta árið eftir brot en var verulega mismunandi eftir því hvert fyrsta brotið var. Hæst var meðaláhættan 6,6 eftir hryggsúlubrot, 5,6 eftir upphand- leggsbrot, 4,6 eftir mjaðmarbrot og minnst var hún eftir framhandleggsbrot 3,3. Meðaláhættuhlutfallið var svipað meðal karla og kvenna. Niðurstöðurnar benda til þess að brotaáhættan sé því verulega meiri á fyrsta árinu eftir brot heldur en hún hefur áður verið talin. Almennt hefur brota áhættan aðeins verið álitin tvöfald- ast. Þessar niðurstöður Hjartaverndar undirstrika mikilvægi inngrips sem allra fyrst eftir eitthvert slíkt beinbrot meðal aldraðra og styrkja því mjög hugmynda- fræðina að baki „Fracture Liaison Service“ sem tekin hefur verið upp á Landspítala undir heitinu „Gríptu brotin“. Áður birtar niðurstöður Hjartaverndar hafa sýnt fram á að um 40% allra beinbrota séu seinni brot5 og því til mikils að vinna með því að „grípa brotin“. Heimildir 1. Gudbjörnsson B, Einarsson JP, Magnússon A, Einarsson ÓB. Lyfjamál. Tryggjum árangursríka beinverndarmeð- ferð. Læknablaðið 2018; 104: 470-1. 2. Kanis Ja, Johnell O, De Laet C, Johansson H, Oden A, Delmas P, et al. A meta-analysis of previous fracture and subsequent frature risk. Bone 2004; 35: 375-82. 3. sheffield.ac.uk/FRAX/tool.aspx?country=56 – nóvember 2018. 4. Kanis JA, Johansson H, Odén A, Harvey NC, Gudnason V, Sanders KM, et al. Characteristics of recurrent fractures. Osteoporos Int 2018: 29: 1747-57. 5. Sigurðsson G, Siggeirsdóttir K, Jónsson BY, Mogensen B, Guðmundsson EF, Aspelund T, et al. Úr gögnum Hjarta- verndar: Nokkur atriði um faraldsfræði og áhættumat beinbrota á Íslandi. Læknablaðið 2017; 103: 423-7. Ný íslensk beinbrotarannsókn Hjartaverndar undirstrikar mikilvægi verklags Landspítala að „grípa brotin“ Mynd 1. Áhættuhlutfall á fjórum helstu beinþynningarbrotunum meðal kvenna við 70 ára aldur næstu 10 árin, eftir tegundum fyrra brots. Samanborið við hópinn sem ekki hafði sögu um fyrra brot. Myndin er birt með góðfúslegu leyfi Springer Science and Business Media. Breytingar á ritstjórn Þær breytingar urðu á ritstjórn 1. desember að úr henni gekk Þórdís Jóna Hrafnkels- dóttir og í hennar stað kemur Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir, hjartalæknar báðar tvær. Þórdís Jóna hefur setið í ritstjórn síðan í janúar 2011, og hefur lagt blaðinu lið í stóru og smáu, - ritstjórn og starfsmenn þakka henni gott samstarf. Ingibjörg er boðin velkomin til starfa. BRÉF TIL BLAÐSINS

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.