Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - dec. 2018, Side 41

Læknablaðið - dec. 2018, Side 41
LÆKNAblaðið 2018/104 573 Hvöttu til betra samfélags Burt með rafretturnar og betri framkomu við erlent vinnuafl var meðal þess sem læknar á aðalfundi Læknafélags Íslands ályktuðu. Hér verður stiklað á þeim ályktunum sem samþykktar voru á fundinum og hægt er að sjá þær í lengra máli á vef félagsins: Um heimilislækningar: Skorað er á ríkisstjórnina, fjármálaráðuneyti og Alþingi að efla heimilislækningar og tryggja öllum landsmönnum sinn heimilislækni og setja heimilislækn- ingar sem grunnstoð heilbrigðiskerf- isins í raunverulegan forgang. Um erlent vinnuafl: Skorað er á ríkisstjórnina, velferðarráðuneyti og Alþingi að bæta og jafna stöðu erlends vinnuafls á Íslandi. Lækn- ar verði í daglegu starfi sínu vitni að því að endurtekið sé brotið á réttindum erlends vinnuafls. Því sé mikilvægt að upplýsingagjöf til þessa hóps sé bætt og viðurlög hert við brotum. Um rafrettur og reykingar: Skorað er á yfirvöld að stöðva án tafar sölu á rafrettum eftir því fyrirkomulagi sem nú er því rafrettur eru hættu- legar. Finna þurfi viðeigandi lausn á sölu rafretta sem hjálpartækja. Núverandi sölufyrirkomulag sé óásættanlegt. Um stuðning við kröfur Læknafé- lags Reykjavíkur: Fundurinn hvet- ur heilbrigðisráðherra til að beita sér fyrir því að nýr samningur verði gerður um sérfræðilæknisþjónustu áður en gildandi samningur rennur út um næstu áramót. Án samnings SÍ við sérgreinalækna telur LÍ að hætta aukist á mismunun á aðgengi að læknisþjónustu á grunni efna- hags. Um mannauðsmál: Aðalfundurinn fordæmir ítrekuð brot undirstofnana heilbrigðisráðuneytisins er lúta að #MeToo ýtir við læknum Ákveðið var á aðalfundi Læknafélagsins að setja á laggirnar sérstaka samskipta- og jafnréttisnefnd. Hún á að stuðla að jákvæðum samskipt- um og jafnrétti með áherslu á mál er varða kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og einelti. Hlutverk nefndarinnar verður að stuðla að fræðslu og forvörnum og tryggja að við- bragðsáætlanir og verkferlar séu til staðar á vinnustöðum lækna og taka við erindum frá félagsmönnum. Tillaga þessi kemur í framhaldi af #metoo- vinnu LÍ. störfum lækna. Aðalfundurinn telur þessi mál lýsa stjórn- unarstefnu sem fengið hafi að viðgangast óáreitt í heilbrigð- iskerfinu þar sem ekki sé brugðist við af stjórnvöldum þegar stjórnendur heilbrigðisstofnana verði uppvísir að ólögmætri stjórnsýslu. Um heilbrigðisstefnu: Lýst er áhyggjum yfir vinnubrögðum við gerð heilbrigðisstefnu á vegum heilbrigðisráðuneytisins þar sem félögum lækna hafi ekki verið boðið að senda full- trúa á fjölmarga undirbúningsfundi. LÍ og aðildarfélög þess lýsa sig reiðubúin að taka virkan þátt í gerð heilbrigðisstefn- unnar. Um vinnufyrirkomulag almennra lækna: Aðalfundur hvet- ur stjórnendur Landspítala og annarra heilbrigðisstofnana að sýna almennum læknum tillitssemi og virðingu í samskipt- um er varða almennt vinnufyrirkomulag. Ný stjórn Læknafélagsins tekur til starfa Reynir Arngrímsson, formaður Björn Gunnarsson, gjaldkeri Frá Félagi almennra lækna: Guðrún Ása Björnsdóttir, formaður og Ýmir Óskarsson Frá Félagi íslenskra heimilis- lækna: Salóme Ásta Arnar- dóttir, formaður og Jörundur Kristinsson, varaformaður LÍ Frá Félagi sjúkrahússlækna: María I. Gunnbjörnsdóttir, formaður og Gunnar Mýr- dal, ritari LÍ Frá Læknafélagi Reykjavíkur: Þórarinn Guðnason, formaður og Guðmundur Örn Guðmundsson. Hópastarf í ætt við þjóðfund, – aðeins 8 manns í hverju holli og auðvelt að kom- ast að og tjá sig.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.