Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - des. 2018, Blaðsíða 42

Læknablaðið - des. 2018, Blaðsíða 42
574 LÆKNAblaðið 2018/104 Alls 66.000 einstaklingar hafa nýtt Heilsu- veru fyrstu 10 mánuði ársins. Notend- um þessarar rafrænu heilbrigðisgáttar hefur fjölgað hratt og eru þetta nærri tvöfalt fleiri nú en í fyrra. Þetta er annað árið í röð þar sem fjöldinn svo gott sem tvöfaldast, því árið 2016 notuðu tæplega 17.000 skrána. „Við sjáum hvernig beiðnum um lyf- jaendurnýjun í Heilsuveru hefur fjölgað, úr því að vera ríflega 2000 í september 2016 í yfir 14.000 tveimur árum seinna. Það nemur um 10% allra lyfja ávísana á mánuði,” segir Ingi Steinar Ingason, teym- isstjóri Miðstöðvar rafrænnar sjúkrarskrár hjá Embætti landlæknis. „Margir heim- ilislæknar taka daglega á móti tugum beiðna um endurnýjanir lyfseðla í gegnum kerfið.“ Á heilbrigðisþingi velferðarráðu- neytisins kom fram að þessir einstaklingar hafa tileinkað sér notkun vefjarins, því frá ársbyrjun 2017 hafa innskráningarnar verið tæplega 686.000 og lyfjaendurnýjanir 164.300 talsins. Alls tæplega 23.000 sinnum hafa sjúklingar bókað tíma rafrænt á þessu tímabili. „Við sjáum að eftir því sem stöðvunum fjölgar á bakvið Heilsuveru eykst notkun- in. Við höfum nú tengt allar heilsugæslu- stöðvar landsins við vefinn og því er bæði hægt að panta þar tíma og biðja um að lyfseðlar séu endurnýjaðir. Þá hafa 23 heilsugæslustöðvar opnað fyrir almennar fyrirspurnir,“ segir Ingi. „Við sjáum einnig að einkareknu stöðvarnar sjá tækifæri í Heilsuveru. Þær geta dregið úr kostnaði og sparað tíma sem annars færi í utanumhaldið,“ segir hann. „En við erum þó að bíða eftir betra tilvísunarkerfi, því við sjáum að margir sérfræðingar eru svo umsetnir að þeir vilja ekki fá tímabókun frá hverjum sem er. Þó eru nokkrir sérfræðingar á stofu farnir að bjóða upp á rafrænar tímabókanir.“ Ingi Steinar segir að gagnvirkir mats- listar á þjónustuþörf, eins og verkjameð- ferð og þunglyndi, verði aðgengilegir í Heilsuveru á næstunni. Þar verði einnig hægt að nálgast einstaklingsmiðaðar með- ferðarleiðbeiningar, fá aðgang að mæðra- og fæðingaskrá ásamt leiðbeiningum fyrir verðandi mæður. Þá verði komið á tengingu við notendagátt Sjúkratrygginga Íslands. „Heilsuvera mun þróast áfram, Við erum til að mynda komin í samstarf við krabbameinsdeildina á Landspítalanum. Þá getur fólk fyllt út verkja- og ógleði- kvarða sem læknar og hjúkrunarfræðingar þeirra geta fylgst með og gripið inn í með viðeigandi meðferð ef þeir telja þörf á því,“ segir hann. En hvernig notar svo almenningur Heilsuveru? „Fer inn á vefinn, velur mínar síður og skráir sig inn með rafrænum skil- ríkjum.“ Tugir þúsunda nota Heilsuveru ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir „Margir heimilislæknar taka daglega á móti tugum beiðna um endurnýjanir lyfseðla í gegnum kerfið.“ Ingi Steinar Ingason frá Embætti landlæknis fór yfir þróun Heilsuveru á heil- brigðisþinginu. „Um 10% allra lyfja ávísana byggja á beiðnum um endurnýjun úr Heilsuveru,“ segir Ingi Steinar Ingason, teymisstjóri hjá Embætti landlæknis HEILBRIGÐISÞING 2018
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.