Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Dec 2018, Page 48

Læknablaðið - Dec 2018, Page 48
580 LÆKNAblaðið 2018/104 „Munið eftir læknanemum. Við vinnum líka á spítalanum. Við erum framtíðin,“ segja þau Þórdís Þorkelsdóttir, Helga Mar- grét Þorsteinsdóttir, Hrafn Hlíðdal Þor- valdsson, öll á 5. ári, og Árni Johnsen, 6. árs læknanemi, spurð hverju þau vilji skila til forystu Læknafélagsins. Þau eru ekki í félaginu en vildu öll vera það. Nú í miðri viku undir lok nóvember setjumst við niður í Eirbergi við Landspítala til að ræða námið, kjaramál og Læknafélagið. „Við myndum vilja vera með einhvers konar aðild að félaginu,“ segir Þórdís: „En það stendur til að ræða hvort læknanemar sem eru á klínísku árunum geti fengið hlutaaðild, en það hefur ekki enn komið til þess.“ Helga bendir á að þau vinni á spít- alanum en tilheyri þó engu félagi. „Það er skrítið.“ Hrafn tekur undir og segir óvissu um hvar þau standi. Árni bætir við: „Við vinnum undir kjarasamningum LÍ og fáum laun sem eru hlutfall af þeim kjarasamningi. Það hlutfall er ákveðið af Landspítala og kemur, eftir því sem ég veit best, ekki fram í neinum kjarasamningi. En við fáum samt ekki að hafa rödd um hvernig þessi kjarasamningur er,“ segir hann. „Það hlýtur að brjóta grundvallar- réttindi á vinnumarkaði að þú fáir ekki að kjósa um eða hafa neitt um kjör þín að segja.“ Læknafélagið ætti að sýna því meiri áhuga. Það sé upp og ofan hvort starfsfólk á launadeild Landspítala viti hvort nemar séu í félaginu eða ekki. „Þetta er voðalega mikið í lausu loft og óeðlilegt.“ Helga Margrét grípur boltann. „Við fáum Læknablaðið heim. Auðvitað er það gaman og fær mig til að hugsa að ég sé komin inn í Læknafélagið, en svo er ekki. Það þarf skýrari ramma og rökrétt að við værum annað hvort á eigin samningi eða innan Læknafélagsins.“ En hvernig tilfinning er það að semja aldrei um launin? Helga segir þau læra hratt strax í byrj- un læknanámsins að velta sér ekki upp úr því. „Þá fær maður þau skilaboð að svona sé þetta og verði svona og að við höfum ekkert um það að segja. Maður beygir sig undir það – alla vega ég.“ Þórdís samsinnir því: „Já það er þannig. Og oft þegar maður spyr spurninga er svarið: Svona er þetta.“ Árni grípur orðið og hvert af öðru leikur fyrirmyndirnar: „Svona er þetta bara í læknisfræðinni!“ og Helga: „Já, eða meira svona: Þú veist nú ekki hvernig þetta var þegar ég var í læknisfræðinni. Það var miklu verra.“ Þau hlæja. Árni telur að þeir læknanemar sem velti fyrir sér kjaramálum komist að sömu niðurstöðu og þau. „Við höfum rosalega lítið um þetta að segja og það er erfitt að breyta því.“ En er Læknafélagið mikilvægt? „Já,“ segja þau öll. „Algerlega,“ hrópar eitt úr hópnum og Helga segir: „Þú heyrir á okkur að við erum voða súr að vera ekki félagar.“ Þórdís bætir við. „Já, það er klárt mál að það er mikilvægt. Sérstaklega líka þar sem Læknafélagið er fagfélag. Líka út á við. Læknafélagið getur bæði komið fram fyrir lækna og staðið með þeim. Það er mikilvægt að það verji lækna. Eins og þekkist núna nafngreinir fólk lækna út af ákveðnum málum. Þeir geta ekki svarað fyrir sig því þeir eru bundnir þagnar- skyldu og félagið því afar gott öryggisnet.“ Árni segir það einnig mikilvægt til að taka á pólitískum málum, eins og skipulagi heilbrigðiskerfisins. „Þeir sem eru í stjórn Læknafélags Íslands og Reykja- víkur hafa verið duglegir að láta skoðun sína í ljós, því læknar eru almennt ekki duglegir að koma skoðunum sínum á Þau eru framtíðin „Gert er ráð fyrir að þetta sé sjálfboðavinna sem þú hafir ákveðið prívat og persónulega að eyða frítíma þínum í – en svo er alls ekki. Þú berð hag sjúklinga þinna fyrir brjósti og það fæst engin velvild fyrir það. Ef maður ræðir þetta við yfirmennina fær maður skammir fyrir að vera brenna sig út of snemma með því að eyða of miklum tíma á spítalanum.“ ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Launalaus yfirvinna, ólaunaðar nemavaktir og álag eru aðstæður sem læknanemar á Landspítalanum lýsa. Þau standa utan við Læknafélagið en myndu gjarna vilja vera innan þess Læknablaðið talaði við læknanema í tilefni 100 ára afmælis Læknafélags Íslands.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.