Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - dec. 2018, Side 56

Læknablaðið - dec. 2018, Side 56
588 LÆKNAblaðið 2018/104 Bergþóra Sigurðardóttir læknir bergkristall@simnet.is Tempest Anderson (1846-1913) var breskur augnlæknir sem elti eldgos um veröld víða. Hann kom til Íslands sumrin 1890 og 1893 og dvaldi lengi í bæði skiptin. Anderson var læknissonur, fæddur í York og nam læknisfræði við Lundúnaháskóla. Hann stundaði lækningar í heimabæ sínum og sérhæfði sig í augnlækningum og þróaði á því sviði sjóntæki og mynda- vélar. Hann hafði ástríðu fyrir útiveru og ferðalögum og valdi sér áhugamál utan læknisfræðinnar, en það var að ljósmynda gosstöðvar. Anderson hlaut doktorsgráðu í eld- fjallafræði frá háskólanum í Leeds 1904. Hann samdi bók um ferðir sínar á ár- unum 1890-1903: Volcanic studies in many lands1 með myndum og lýsingum á 100 svæðum. Frá Íslandi eru 35 myndir. Mynd frá Námaskarði notar hann sem inngang að leirhverum Yellowstone og er hlutur Ís- lands í myndabókinni því mjög stór. Anderson segist beita sömu aðferðum og við rúmstokk sjúklings við athuganir sínar og myndatökur af eldgosum. Honum fannst að of mikið væri um kenningar, þar sem ímyndunaraflið hafi ráðið en rann- sóknir vantað. Fyrst sé að afla staðreynda sem hann gerði með myndatökum sínum. Ánægður með að þar væri ekki hægt að blekkja og segir að í jarðfræði geti mynd lýst því sem ekki sé hægt að orða. Áhugi Andersons á Íslandi var fyrst og fremst vegna þeirrar athygli sem Skaft- áreldar hlutu. Dufferin lávarður sagði í bók sinni Letters from High Latitudes sem kom út 1856 að gígarnir hefðu aldrei verið heimsóttir. Jók það áhuga Andersons á svæðinu. Anderson vitnar í Skotann Ebenezer Henderson (1784-1858) um afleiðingar móðuharðindanna. Á tveimur árum fórust 9336 manns, 28.000 hross, 11.461 nautgripir og 190.488 sauðkindur. Henderson ferð- aðist um landið sumrin 1814 og 1815 og skrifaði Ferðabók með miklu jarðfræðilegu ívafi. Hann var mikill tungumálamaður og lærði íslensku. Við komuna til Reykjavíkur 16. júlí 1890 beið Andersons og félaga hans Dr. Lavis frá Napólí, Zoëga leiðsögumaður með 20 hesta og var strax lagt af stað austur á bóginn. Á tíunda degi eftir erfiða reið komu þeir að Skaftáreldahrauni. Anderson fékk fylgdarmann úr Skaft- árdal. Slegið var upp tjöldum á grasbala við lækjarsytru og haldið árla morguns í blíðviðri á fótvissum hestum um 10 mílna leið uns þeir komu að gígaröðinni. Hér blasti við okkur mikilfengleg sjón, segir Anderson.2 Gríðarleg sprunga margar míl- ur á lengd hafi opnast í stefnu nær SV-NA. Vestustu gígarnir sem þeir komu fyrst að kallar hann „baby craters“ nokkur fet á hæð en nokkru austar hafi gígarnir náð 200-300 feta hæð og séu auðveldir upp- göngu, en þverhníptir inn á við. Hin mikla sprunga gat náð 6-10 fetum á breidd. And- erson sá að um gos á sprungu úr mörgum gígum var að ræða, sem hann vissi ekki fyrir.2 Margir hafa talið að áður hafi gosið á sprungunni. Þorvaldur Thoroddsen seg- ir: „Þegar vel er að gáð, sést það glöggt, að sumir gígarnir í eldborgarröðinni miklu, eru eldri en hinir. Einhvern tíma í fyrndinni hefir sprungan myndast og gosið hrauni, en 1783 hefur hún opnast aftur … Gígurinn sem ég stóð á var auð- sjáanlega eldri en hinir”.3 Þorvaldur fylgdi gígaröðinni alveg að jökli. Jón Jónsson skrifaði gagnmerka grein 1994, um gígaröðina.3 Hann telur að þar hafi gosið þrisvar á sömu rein. Magnús Stephensen (1762-1833) og Lewenthow greifi voru sendir af dönsku Leitin að upptökum jarðeldsins 1783 Ferðamenn í leiðangri Tempest Anderson 1890 þeysa yfir á á hestum. Er þetta á leið yfir einn af 18 álum Skaftár sem hann segir frá í Volcanic Studies? Hattur Andersons er á manninum fremst til vinstri. Myndir Andersons eru varðveittar í Yorkshire-safninu í York, en þaðan komu 120 eftirgerðir af glerplötunum með ljósmyndunum til Ljósmynda- safns Reykjavíkur. Myndirnar eru birtar hér með góðu leyfi safnsins.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.