Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - des. 2018, Síða 58

Læknablaðið - des. 2018, Síða 58
590 LÆKNAblaðið 2018/104 Heimilisfólkið í Reykjahlíð í Mývatnssveit framan við bæinn. Anderson tók myndina árið 1893. hrauninu ... Á þessum kafla er hraunið láréttar klappir, og þær þræddum við, en þess á milli urðu fyrir dyngjur og hrúgöld af holu og alla vega sprungnu hrauni og urðum við að klóra okkur yfir þær á fjórum fótum. Kom það oft fyrir að hraun- gúlar brotnuðu niður í sömu svifum og við slepptum fótfestu á þeim en svört og ljót gímöld göptu við.“ Sveinn lýsir síðan strýtu sem þeir gengu á: „Það var auðsætt að þetta voru hreinir og beinir eldgígar … Ég skoðaði fleiri hóla þarna, og voru þeir allir af sömu gerð. ... Slíkir gíghólar af mis- munandi stærðum eru nær tuttugu talsins ... Hafa þeir væntanlega átt fyrsta leikinn 1783.”7 Reyndar höfðu þrír bændur frá Mör- tungu gengið á Kaldbak þegar mest gekk á þann 16. júní 1783 „og kunnu þar að greina 22 stórbál eður loga, sem réttlínis stóðu upp úr þeirri gjá”. Svo skráir eld- klerkurinn Jón Steingrímsson.8 Lavis upplýsir að auk ferðarinnar á gosstöðvarnar í Skaftafellssýslu og förina þaðan að baki Mýrdalsjökuls hafi þeir ferðast að Heklu, til Þingvalla og skoðað Geysissvæðið. Síðan voru þeir nokkra daga á Reykjanesskaga og ferðuðust um Hengilssvæðið og skrifuðu grein um ferðina.9,10 The Royal Society sendi Anderson ásamt John Smith Flett (1869-1947) jarð- fræðingi til að rannsaka afleiðingar eld- gosa fjallanna Soufriere, á St. Vincent og Pelée á eyjunni Martinique vorið 1902. Gusthlaup rústaði bæinn Saint-Pierre á Martinique 8. maí 1902 og fórust þar um 28.000 manns. Þann 9. júlí voru þeir Anderson og Flett á báti úti fyrir strönd Martinique þegar eldský kom þjótandi niður fjallið og lagðist yfir hafflötinn. Þeir urðu svo gagnteknir af þessu stórkostlega sjónarspili að hræðsla komst ekki að og enn annað gjóskuflóð, stærra hinu fyrra, kom í kjölfarið. Bátsverjar reyndu hins vegar í ofboði að sigla burt. Anderson mun vera fyrstur til að lýsa og mynda gusthlaup og útskýra eðli þess, sem hann bar saman við sérstök snjófljóð, sem hann hafði kynnst.11 Anderson fylgdist með eldgosi í fjallinu Matavanu á eyjunni Savaii í vestanverðu Kyrrahafi á árinu 1909.5 Það sem hreif hann mest var að sjá, sérstaklega eftir sólarlag, glóandi hraunið renna í sjóinn og uppljómaða gufuna stíga til himins. Hvaða áhrif hafði þessa snögga kólnun á hraunið? Var það ekki einmitt þannig sem bólstraberg varð til? Anderson fékk sér bát og fór eins nálægt hrauninu og hann treysti bátnum og lýsir nákvæm- lega myndun bólstrabergs.5 Guðmundur Kjartansson jarðfræðingur birti lýsingu Andersons á myndun bólstrabergs í sjó.12 Ég var að velta fyrir mér forvitnilegum og fjölbreytilegum klettamyndunum á strönd Hestfjarðar, sem mig grunaði að væru bólstraberg, þegar ég komst í kynni við þeirra skrif. Einnig myndun gervigíganna við Mývatn, en Anderson hafði sett fram þá kenningu að þeir hefðu myndast við rennsli hrauns yfir votlendi þegar hann sá þá 1893. Allar myndir Andersons, teknar á Norðurlandi, eru frá ferðinni 1893. Hann hrífst af Jökulsárgljúfrum og þegar And- erson kemur í Mývatnssveit myndar hann ekki eingöngu jarðfræðifyrirbæri heldur fær maddömurnar til að skarta skautbún- ingi framan við burstabæinn. Rokkum, hrífum, ljáum, netum, hjólbörum, hross- um, börnum, hundum og köttum er tjald- að til.13

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.