Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - des. 2018, Síða 60

Læknablaðið - des. 2018, Síða 60
592 LÆKNAblaðið 2018/104 Ólafsvíkurlæknishérað var stofnað með lögum nr. 24 sem samþykkt voru af Al- þingi 13. október 1899 og náði yfir utanvert Snæfellsnes, eða 5 sveitarfélög: Staðarsveit, Breiðuvíkurhrepp, Neshrepp utan Ennis, Ólafsvíkurhrepp og Fróðárhrepp. Þann 11. júní 1994 sameinuðust sveitarfélög hér- aðsins í eitt sveitarfélag, Snæfellsbæ. Áður hafði héraðið verið hluti af stærra læknis- héraði sem einnig náði yfir Stykkishólms- hérað, alla Snæfellsnes- og Hnappadals- sýslu frá Hítará í suðri og Skógarströnd í norðri, einnig yfir Flateyjarhrepp. Á þeim tíma sat aðeins læknir í Stykkishólmi, en enginn læknir á utanverðu Snæfellsnesi. Ólafsvíkurhérað var erfitt yfirferðar, sérlega um vetur, vegna lélegra sam- gangna. Læknirinn sat í Ólafsvík. Til að komast út á Hellissand eða Neshrepp utan Ennis þurfti að keyra fjöruna undir Ólafsvíkurenni og var þar ekki fært nema á háfjöru og því þurfti að gæta sjávarfalla. Oft stóð tæpt með menn og bíla. Árið 1963 kom vegur um Ólafsvíkurenni sem var alla tíð hættulegur vegna grjóthruns og snjóflóða. Loks var lagður uppbyggður vegur undir Ólafsvíkurenni árið 1963 sem reynst hefur vel og verið hættulaus. Ekki var fært frá Ólafsvík austur um norðanvert nesið nema að Búlandshöfða, en vegur kom um Búlandshöfða 1984 og var þá loks komin tenging að norðanverðu og vegasamband við Grundarfjörð og Stykk- ishólm. Þannig voru fram yfir miðja síðustu öld hlutar læknishéraðsins einangraðir hvor frá öðrum. Þurftu læknar þá ýmist að ferð- ast á hestum eða fótgangandi þar sem ekki voru bílvegir. Fyrsti læknir Ólafsvíkurhéraðs var Halldór Steinsson (Steinsen) sem sat í tæp 35 ár, frá 1900-1934. Halldór var alþingis- maður Snæfellinga frá 1911-1933 að undan- skildum árunum 1913 til 1916. Halldór var virðulegur embættismaður, ávallt vel klæddur í síðum svörtum frakka með hatt á höfði og með staf. Vegna þingmennsk- unnar var Halldór oft löngum tímum burtu úr héraði. Á árabilinu 1934 til 1944 sátu þrír læknar héraðið. Síðastur Sæbjörn Magnússon sem andaðist 6. febrúar 1944. Haustið 1944 varð Arngrímur Björnsson héraðslæknir og gegndi starfinu fram yfir sjötugt, eða til 1971. Arngrímur Björnsson var fæddur 5. september árið 1900 á Lóni í Kelduhverfi. Hann útskrifaðist cand.med. frá Háskóla Íslands í febrúar 1932. Eftir kandídatsár á Landspítala leysti hann af í hinum ýmsu læknishéruðum þar til hann var skipaður héraðslæknir í Flateyjarhéraði frá nóvem- ber 1934 til desember 1942. Þá fékk hann Ögurhérað við Djúp og var þar frá janúar 1943 til september 1944 að hann fékk Ólafsvíkurhérað. Í Flatey varð Arngrímur sjálfur að leigja sér íbúðarhúsnæði og húsnæði fyrir lækn- ingastofu og apótek. Héraðið var erfitt og mikið um erfiðar sjóferðir í sjúkravitjanir út í aðrar Breiðafjarðareyjar, en á þessum tíma var búið í mörgum eyjanna. Starfið var erfitt og afkoman léleg. Í Ögurhéraði fylgdu á hinn bóginn meðal annars hús- næði á vegum ríkisins til búsetu og fyrir lækningastofu og apótek. Þegar Arngrímur kom með fjöl- skylduna, konu og tvo syni, til Ólafsvík- ur beið hans hvorki íbúðarhúsnæði né húsnæði fyrir lækningastofu og apótek. Töldu sveitarstjórnarmenn að læknirinn ætti sjálfur að finna sér húsnæði enda litu heimamenn svo á að læknirinn væri hátekjumaður. Hann keypti síðan hús Sæ- bjarnar Magnússonar af ekkju hans og bjó í því þar til hann byggði sitt eigið húsnæði. Ö L D U N G A D E I L D Stjórn Öldungadeildar Kristófer Þorleifsson formaður Jóhannes M. Gunnarsson ritari Guðmundur Viggósson gjaldkeri Halldóra Ólafsdóttir Margrét Georgsdóttir Öldungaráð Hörður Alfreðsson Magnús B. Einarson Reynir Þorsteinsson Snorri Ingimarsson Þórarinn E. Sveinsson Umsjón síðu Magnús Jóhannsson Læknar undir Jökli á síðustu öld Halldór Steinsen læknir Arngrímur Björnsson læknir Kristófer Þorleifsson formaður öldungadeildar kristofer@simnet.is

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.