Hugur og hönd - 01.06.1973, Qupperneq 18
Utsaumur
Margir verja tómstundum sínum
til ýmiss konar hannyrða, sér til
ánægju og afþreyingar og heimili sínu
til gagns og prýði.
Fáir eða engir framleiða þó út-
saumsvörur til sölu hér á landi, því
hannyrðir kvenna eru ekki metnar
til þess verðgildis sem bæri, og verð-
ur víst seint. Því veldur m. a. sá
hugsunarháttur, að svona nokkuð
geti maður nú saumað sjálfur og er
það oft og tíðum rétt, því margar
konur eru ágætlega vel verki farnar.
En þá gleymist hve seinlegt verk út-
saumur er og einhvers virði ætti hug-
mynd að nýju mynztri að vera, um-
fram það að sauma alltaf eftir að-
fluttum útlendum fyrirmyndum.
Þá eru kven- og líknarfélögin með
alla sína bazara, þar sem á boðstól-
um er sægur af handunnum vörurn,
sem oft og tíðum eru seldar svo ódýrt,
að efniskostnaður fæst tæplega
greiddur. Eru þeir gott dæmi um það
vanmat kvenna á eigin verkum sem
ríkir hér á landi. Og er mál að linni.
Fyrir þær sem vilja gjarnan búa
til fallega hluti eftir eigin hugmynd,
birtum við hér nokkrar teikningar af
útsaumssporum.
Talsvert framboð er af fallegum
vefjarefnum, sem henta vel til út-
saums, t. d. indversk silki, sænsk og
írsk hörefni, finnsk bómullarefni, ís-
lenzk ullaráklæði og ullarjavi. Ættu
því flestir að getá fundið eitthvað við
sitt hæfi og skemmt sér við að spreyta
sig við mynzturgerð og val á útsaums-
sporum, auk þess að liti og efni er þá
auðveldara að samræma hýbýlum og
húsbúnaði.
Engin ástæða er til að einskorða
sig við eina saumgerð, heldur eykur
það líf og fjölbreytni að sauma marg-
ar gerðir í einn og sama hlutinn.
Tvær sessurnar eru skreyttar
skorningi eða bótasaum, það er að
segja klippt eru út mynzturform úr
öðru efni (og má þá nota hvaða af-
gang sem er) og lögð á sessuborðið,
síðan má festa þau niður á ýmsan
hátt. T. d. með þéttu varpspori,
tunguspori, klóspori, snúnu lykkju-
spori eða eins og hér refilsaum. Er
18
HUGUR OG HÖND