Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1973, Blaðsíða 39

Hugur og hönd - 01.06.1973, Blaðsíða 39
Hnýtt gluggatjöLd Gluggatjöld með margvíslegum „macramé“ hnútabrögðum, hnýtt af Elínu Oddgeirsdóttur, Kennaraháskóla íslands. Hnýtt er úr kambgarni í ýmsum litum og er þráðunum brugðið um venjulegan gluggatjaldagorm. Þráðalengd og fjöldi fer eftir æskilegri þykkt og lengd. Hnýtt er með garninu allt frá tvöföldu í tífalt eftir mynztrinu. Gefur þessi misgrófleiki skemmtilega hrjúfa og líflega áferð. Að hnýtingu lokinni er ágætt að leggja gluggatjöldin á þykkt stykki, næla æskilegt form þeirra út, leggja raka klúta yfir og láta gegnþorna. Varast skal að klippa af þráðunum í fljót- færni. Hyggilegt er að hengja gluggatjöldin upp, athuga mislengdir þráðanna, og sjá hvað fer vel við mynztrið. H.Á. kristallar, sem hafa myndazt í berg- kvikunni djúpt í jörðu og borizt upp með henni. Hrafntinnuhryggur aust- an Mývatns er eldri en hraunin á Torfajökulssvæðinu. Hann mun hafa myndazt við gos undir jökli á ísöld og er nær eingöngu úr hrafntinnu. Biksteinn er annað glerkennt af- brigði af líparíti, en meira vatn er bundið í glerinu. Hann er algengur í líparíthraunum og líkist um margt hrafntinnu, en þekkist frá henni á fitugljáa. Biksteinn er oftast græn- svartur, eins og dökkt flöskugler, en getur líka verið rauðleitur, brúnn, gulur eða svartur. Þorvaldur Thor- oddsen getur þess í bókum sínum að menn hafi oft villzt á biksteinsgöng- um og haldið að þar væru kolalög, og þess munu dæmi að útlendingar hafi keypt stóra biksteinsganga í góðri trú. Stundum er svo mikið vatn bundið í biksteinsglerinu, að við upp- hitun blæs vatnsgufan hann upp um leið og hún sleppur út og myndast þá glerfroða, sem notuð er í einangrun húsa. Biksteinn sem er gæddur þess- um eiginleikum er nefndur perlu- steinn. Hann er glergljáandi, gráblár og oftast í smáum, samvöxnum kúl- um. Perlusteinn hefur ekki enn verið unninn hér á landi, en námumöguleik- ar eru í Loðmundarfirði og Presta- hnúk á Kaldadal og ef til vill á fleiri stöðum. Sigríður Theódórsdóttir. HUGTJR OG HÖND 39

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.