Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1973, Side 20

Hugur og hönd - 01.06.1973, Side 20
bótin þá fyrst vörpuð niður með tvinna og síðan lagður þráður af út- saumsgarni við brúnina og saumað yfir hann með fínni þræði. Fer það eftir, hvaða efni er í bótinni, hvort brjóta þarf inn af brúnunum eða ekki. Utanvið bæturnar er svo skreytt með fræhnútum, refilsaum og tungu- spori. Þriðja sessan er líka gerð úr mislitum bótum, en á svolítið annan máta. Klippt eru út sexhyrnd pappa- form og utanum þau eru bæturnar strekktar. Bezt er að hafa svipuð efni í öllum bótunum. Þær eru siðan varp- aðar þétt saman frá röngu hver við aðra og rnynda mynzturbekk eftir endilöngum púðanum bæði í bak og fyrir. Þessi bótabekkur er svo felldur ofan á grunninn og lagt niður við í höndum. Púðinn er úr finnsku bóm- ullarefni í bláum og grænum litbrigð- um, nema blómið er í rauðum litum. Nokkrir fræhnútar og línur eru saum- aðar til skrauts. Tehettan er saumuð í súkkulaði- brúnan hessían. Skorningsmynztrið er úr sterkbláum og grænum bóm- ullarefnum, einu röndóttu og öðru köflóttu. Nokkrir grófir þræðir eru lagðir til að tengja þetta allt saman. Hankinn er myndaður úr nokkrum tréperlum. V. Pálsd. Færeysk sýrLÍng í R.eykjavík Dagana 27. apríl—2. maí gekkst Norrœna húsið fyrir fœreyskri viku í Reykjavík. í sýningarsölum hússins voru settar upp sýningar á munum komnum frá Fcereyjum. í húsakynnum bókasafnsins var komið fyrir fœreyskum bókum, Ijósritum, Ijósmyndum af rithöfundum, hljómplötum með upplestri skálda og fleiru til kynningar á þeirri hlið fœreyskrar menningar. í öðrum salnum í kjallara voru sýnd málverk eftir 7 unga listamenn, í hinum var sýning á heimilisiðnaði. Jafnframt fór fram fjölbreytt dagskrá alla daga með fyrirlestrum um fœreyskar bókmenntir, stjórnmál, tungu, náttúru eyjanna, kvikmyndasýningum o. fl. Heimilisiðnaður Fœreyja er að ýmsu leyti sérstœður. Þeir eiga afar fallega þjóðbúninga að stórum hluta handunna og prjónafatn- aður þeirra er einstakur. í Fœreyjum er ekkert starfandi heimilisiðnaðarfélag, þó hefur verið unnið markvisst að því að varðveita ýmislegt, sem gamalt er og hefðbundið. Árið 1932 kom út bók með fjölda mörgum gömlum fœreyskum prjónamynztrum, sem Hans M. Debes hafði safnað. Nefnist hún FÖROYSK BINDINGARMYNSTUR og 1969 kom hún út í þriðja sinn á vegum Föroyskt Heimavirki, Tórshavn. Birtast hér nokkrar myndir af sýningunni. 20 Nornir, mynd ejtir William Heinesen, ofin af Marianna Matras.

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.