Hugur og hönd - 01.06.1973, Side 36
ImÉ
T víbancla
lopabúfa
Húfan er prjónuð eftir gömlu ís-
lenzku mynztri.
Efni: Hvítur og grár tvöfaldur lopi.
Prjónar nr. 3 og 3^2-
Eyrnaskjólin eru prj á pr nr. 3
með garðaprjóni. Fitjaðar eru upp 4
1 og prj tveir garðar. Þá er byrjað
að auka í 1 1 í byrjun og enda hvers
garðs (þ. e. í annarri hverri umferð).
Bezt er að auka í með því að taka
upp bandið, sem er á milli 2. og 3. 1
í byrjun pr og prj það snúið, og á
sama hátt að taka upp bandið, sem
er á milli 3. síðustu og 2. síðustu 1
í enda pr og prj það snúið. Þegar 36 1
eru á pr er hann lagður til hliðar, en
hitt eyrnaskjólið prj á sama hátt.
Næst eru fitjaðar upp 36 1 og allar
108 1 (þ. e. eyrnaskjólin bæði og 36 1
að auki) settar á einn pr og prj 4
garðar. Skipt yfir á hringprjón nr.
3V2 (ermaprjón) og prj ein slétt umf
og í hana er aukið með jöfnu milli-
bili 39 1. 147 1 á pr. Nú er mynztrið
prj. Húfan er í þremur flötum og
eiga tveir mynzturfletirnir að stand-
ast á við sitt hvort eyrnaskjólið, en
sá þriðji að standast á við lykkjurnar
36 sem seinast voru fitjaðar upp.
A mótum mynzturflata og við úr-
tökur eru 2 hvítar 1, sem mynda beina
línu upp í toppinn. Þetta fæst með
því að láta allar úrtökur koma undir
þessar hvítu 1 þannig. Síðasta gráa 1
og fyrri hvíta 1 eru prj saman á venju-
legan hátt, seinni hvíta 1 og næsta
gráa 1 teknar saman með steypiúr-
töku. Helga Egilson.
36
HCGUR OG HÖND