Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1973, Síða 40

Hugur og hönd - 01.06.1973, Síða 40
Værðarvoð Teppið er prjónað úr tvöföldum plötulopa á langan hringprjón (a.m.k. 60 cm) nr. 5. Prjónið er tvöfalt, slétt prjón báðum megin, þar sem hver reitur er ljós öðru megin en dökkur hinum megin. Þetta teppi er 22 reitir á breidd en 40 á lengd. Hver prjónn er prjónaður í tveim áföngum, fyrst er prjónað með Ijósari litnum og síðan með þeim dekkri. Fitjaðar eru upp 134 lykkjur með dekkri litnum. Hér var notað sauðsvart og grátt. Jaðarlykkjurnar eru prjón- aðar með báðum litunum saman til þess að jaðrarnir lokist. 1. prjónn: Jaðarlykkja ■—■ Ijóst band a) 1 lykkja slétt, 1 lykkja tekin af prjóni m. banó fyrir framan lykkju, endurtekið 6 sinnum. b) 1 lykkja brugðin, 1 lykkja tekin af prjóni m. band fyrir aftan lykkju, endurtekið 6 sinnum, a og b er endurtekið til skiptis út prjóninn. Þá er prjónað með dekkri litnum sami prjónn, þ. e. byrjað á sama stað og byrjað var að prjóna með ljósara bandinu fyrr. Jaðarl. tekin óprj dökkt band. c) 1 Iykkja tekin af prjóni m. band fyrir aftan lykkju 1 lykkja brugðin, endurtekið 6 sinnum. d) 1 lykkja tekin af prjóni m. bandið fyrir framan lykkju 1 lykkja slétt, endurtekið 6 sinnum. c og d er prjónað til skiptis út prjóninn, síðast jaðar- lykkjan. Þar með eru báðir litirnir komnir á prjóninn. 2. prjónn: Jaðarlykkja -— Ijóst band e) 1 lykkja tekin af prjóni m. band fyrir framan lykkju 1 lykkja slétt, endurtekið 6 sinnum. f) 1 lykkja tekin af prjóni m. band fyrir aftan lykkju 1 lykkja brugðin, endurtekið 6 sinnum. e og f er prjónað til skiptis út prjóninn. Þá er sami prjónn prjónaður með dekkra bandinu: Jaðarl. tekin óprj. g) 1 lykkja brugðin, 1 lykkja tekin af prjóni m. band fyrir aftan lykkju, endurtekið 6 sinnum. h) 1 lykkja slétt, 1 lykkja tekin af prjóni m. band fyrir framan lykkju, endurtekið 6 sinnum. Eftir 8 prjóna er skipt um liti. Þar sem áður voru prjón- aðir ljósir kaflar, eru nú prjónaðir dökkir, þannig að þar sem á 1. prjóni var áður prjónað með ljósum lit, á nú að prjóna með dökkum o. s. frv. Kanturinn utan um skákborðsmynztrið er 10 cm breið- ur prjónaður með perluprjóni. Var hann prjónaður sér og saumaður við á eftir. En eflaust færi jafnvel og væri auðveldara að hekla nokkrar umferðir af fastahekli utan- um teppið. Helga Egilsson. 40 HUGUR OG HOND

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.