Fréttablaðið - 11.03.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —6 0 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 1 . M A R S 2 0 2 0
Krónan
mælir með!
Besta
uppskeran
núna!
Formenn ríkisstjórnarf lokkanna kynntu, á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum, viðbragðsaðgerðir vegna þeirra efnahagslegu af leiðinga sem COVID-19 faraldurinn hefur í för með
sér. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að aðgerðirnar muni hafa neikvæð áhrif á ríkissjóð, en að hann standi þó vel og ríkið sé í góðri stöðu til lántöku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VIÐSKIPTI Stefnt er að því að gengið
verði frá sölu á öllu hlutafé í Borgun
í vikunni, samkvæmt heimildum
Markaðar ins. Er kaupandinn
erlenda greiðslumiðlunarfyrir-
tækið Salt Pay og nemur kaupverðið
um fimm milljörðum króna, eftir
því sem heimildir blaðsins herma.
Seljendur eru Íslandsbanki, sem
setti 63,5 prósenta hlut sinn í Borg-
un í söluferli í byrjun síðasta árs,
eignarhaldsfélagið Borgun, sem er
samlagsfélag í eigu meðal annars
Stálskipa og Einars Sveinssonar
fjárfestis, með 32,4 prósenta hlut
og félag í eigu stjórnenda Borgunar.
með um tveggja prósenta hlut.
Forgangshlutabréf í Visa, sem
Borgun eignaðist við sölu á hlut
sínum í Visa Europe 2016, fylgja
ekki með. – hae, kij / sjá Markaðinn
Sala á Borgun
að klárast
COVID -19 Ellefu ný tilfelli af
COVID -19 sjúkdómnum voru
greind hér á landi í gær. Minnst
sex þeirra eru innanlandssmit.
Fjöldi smitaðra var því kominn í 76
þegar Fréttablaðið fór í prentun og
eru allir í einangrun. Auk þeirra eru
um 600 manns í sóttkví.
Faraldurinn hefur æ meiri áhrif á
dagleg störf í landinu. Málflutningi
sem fara átti fram í Hæstarétti í dag
hefur verið frestað þar sem einn
dómaranna er í sóttkví.
„Það er auðvitað mikil óvissa
uppi og við munum í raun og veru
þurfa að vera í mjög reglulegu mati
á aðstæðum,“ segir Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra. Formenn
ríkisstjórnarf lokkanna kynntu
efnahagsaðgerðir vegna áhrifa
COVID-19 á blaðamannafundi.
Aðgerðirnar eru í sjö liðum. Fyrir-
tækjum í erfiðleikum verður veitt
svigrúm vegna skatta, gistinátt-
agjald afnumið tímabundið, Ísland
markaðssett, ráðstafanir gerðar til
að örva einkaneyslu, opinberum
framkvæmdum f lýtt, innistæður
ÍL-sjóðs í Seðlabankanum fluttar á
innlánsreikninga og efnt verður til
samráðs við fjármálafyrirtæki um
viðbrögð við greiðsluerfiðleikum.
„Við getum komist í gegnum það
tímabil með markvissum aðgerð-
um,“ segir Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra.
Viðbrögð stjórnarandstöðu eru
blendin. Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, formaður Viðreisnar,
segist undrandi á að ríkisstjórnin sé
ekki undirbúin og meira afgerandi
aðgerða sé þörf. Undir það tekur
Logi Már Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar. „Þetta eru ágætis
fyrstu skref en það þarf að gera
meira,“ segir hann. – sar / sjá síðu 4
Aðgerðir í sjö liðum
Ellefu ný tilfelli af COVID-19 voru greind í gær. Ríkisstjórnin kynnti efnahags-
aðgerðir vegna faraldursins en viðbrögð stjórnarandstöðunnar eru blendin.
Þetta eru ágætis
fyrstu skref en það
þarf að gera meira.
Logi Már Einarsson,
formaður Samfylkingarinnar
VIÐSKIPTI Á meðal tillagna sem
viðskiptabankarnir hafa kynnt
Seðlabanka Íslands, sem viðbragð
til að bregðast við fyrirsjáanlegum
lausafjár- og greiðsluerfiðleikum
fyrirtækja, er að Seðlabankinn
beiti efnahagsreikningi sínum með
því að kaupa sértryggð skuldabréf
fyrirtækja, svo sem fasteignafélaga,
á markaði. Slíkar aðgerðir eru sam-
bærilegar þeim sem seðlabankar
beggja vegna Atlantsála réðust í
eftir alþjóðlegu fjármálakreppuna
í þeim tilgangi að lækka langtíma-
vexti og auka lausafé í umferð.
Þá er einnig lagt til að ríkið muni
bera hluta af þeirri útlánahættu
sem fylgir því ef bankarnir koma
til móts við fyrirtæki, einkum í
ferðaþjónustu, með aukinni lausa-
fjárfyrirgreiðslu. – hae / sjá Markaðinn
Bankinn kaupi
bréf fyrirtækja