Fréttablaðið - 11.03.2020, Page 4
Við erum að reyna
að lágmarka áhrifin
fyrir alla, fyrirtækin og
heimilin, en líka ríkissjóð og
sveitarfélög.
Bjarni Benediktsson
Til fulltrúaráðs launamanna
Birtu lífeyrissjóðs
Kjörfundur 2020
Kjörfundur fulltrúa launamanna í Birtu lífeyrissjóði,
vegna stjórnarkjörs í lífeyrissjóðnum verður haldinn
miðvikudaginn 25. mars kl. 17 að Stórhöfða 31,
Reykjavík.
Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs verður haldinn
fimmtudaginn 2. apríl kl. 17 á Grand Hóteli Reykjavík.
Dagskrá er samkvæmt samþykktum sjóðsins.
Vakin er athygli á því að Birta lífeyrissjóður mun fylgja fyrirmælum
Landlæknis ef grípa þarf til varúðarráðstafana vegna COVID-19 veirunnar.
COVID -19 „Það er auðvitað mikil
óvissa uppi og við munum í raun og
veru þurfa að vera í mjög reglulegu
mati á aðstæðum. Það var okkar mat
að það væri mikilvægast núna að tala
með skýrum hætti um að stjórnvöld
eru reiðubúin að styðja atvinnulífið
til viðspyrnu,“ segir Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra.
Oddvitar ríkisstjórnarflokkanna
kynntu í gær aðgerðir til að mæta
efnahagslegum áhrifum veirunnar
sem veldur COVID-19. Einnig verður
unnið að sérstöku fjárfestingaátaki
sem myndi hækka fjárfestingastig
ríkissjóðs á næstu árum verulega.
„Þetta eru samþættar aðgerðir
til þess að stjórnvöld geti stutt við
atvinnulífið í gegnum tímabundið
ástand sem er samt þeirri óvissu
háð að við vitum ekki hversu tíma-
bundið það er,“ segir Katrín.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir mikilvægt
að gera sér grein fyrir því að staða
íslenska hagkerfisins sé mjög sterk
þótt því standi til skamms tíma ógn
af veirunni.
„Við getum komist í gegnum það
tímabil með markvissum aðgerð-
um. Það verður ekki án áhrifa en
við getum dregið úr þeim. Síðan
eru allar forsendur fyrir því að við
getum sótt fram frá nýjum stað,“
segir Bjarni.
Þá hefur verið ákveðið að fresta
fjármálaáætlun þar sem forsendur
gildandi ríkisfjármálastefnu séu
brostnar.
„Það kallar á viðbrögð og samtal
við þingið og það bréf hefur farið til
Alþingis. Við boðum þá nýja stefnu
í maí til þess að aðlaga okkur að
þessum aðstæðum,“ segir Bjarni.
Forsendur fjármálastefnu
brostnar vegna COVID-19
Forsætisráðherra segir eðlilegt að ríkissjóður taki á sig tímabundið högg við þær aðstæður sem eru uppi
í hagkerfinu vegna kórónafaraldursins. Ríkisstjórnin kynnti í gær aðgerðir til stuðnings atvinnulífinu.
Aukinn kraftur verður settur í opinberar framkvæmdir og unnið verður að sérstöku fjárfestingaátaki.
Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson á fundinum í Ráðherra-
bústaðnum þar sem aðgerðirnar voru kynntar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1. Fyrirtækjum sem lenda í erfið-
leikum veitt svigrúm til greiðslu
á sköttum og gjöldum.
2. Gistináttaskattur afnuminn
tímabundið. Önnur tekjuöflun
íþyngjandi fyrir ferðaþjónustu
skoðuð.
3. Markaðsátaki hleypt af stokk-
unum erlendis um Ísland sem
áfangastað þegar aðstæður
skapast.
4. Ráðstafanir til að örva einka-
neyslu og eftirspurn.
5. Aukinn kraftur í opinberar fram-
kvæmdir.
6. Efnt til virks samráðs við fjár-
málafyrirtæki um viðbrögð við
fyrirsjáanlegum lausafjár- og
greiðsluerfiðleikum.
7. Innstæður ÍL-sjóðs í Seðlabank-
anum fluttar á innlánsreikninga
í bönkum.
✿ Aðgerðir stjórnvalda
Katrín segir ljóst að aðgerðirnar
muni hafa neikvæð áhrif á hag ríkis-
sjóðs þótt of snemmt sé að segja til
um umfangið.
„Við teljum hins vegar að áhrifin
séu tímabundin vegna þess að við
erum í mjög góðri stöðu til lántöku.
Hins vegar erum við með fyrir-
ætlanir um að selja hlut í Íslands-
banka þegar hagfelld skilyrði eru
fyrir hendi. Þannig teljum við að
það sé fullkomlega eðlilegt að rík-
issjóður taki á sig högg þegar svona
aðstæður eru uppi því við höfum
trúverðugar áætlanir til þess að
höggið verði til skemmri tíma,“
segir Katrín.
Bjarni bendir á að búið hafi verið
vel í haginn fyrir versnandi tíma
og ríkissjóður þegar rekinn með
halla. „Við getum gert það og við-
haldið þeirri stöðu í einhvern tíma.
En það er mikilvægt að við komum
fram með áætlun um að vinda ofan
af þeirri stöðu.“
Aðspurður segir Bjarni að stjórn-
völd hafi verið í samtali við Seðla-
bankann vegna aðgerðanna. Það
sé fyrst og fremst gert til að reyna
leggja sameiginlegt mat á stöðuna
og líklegustu sviðsmyndir. „Við
erum að reyna að lágmarka áhrifin
fyrir alla, fyrirtækin og heimilin,
en líka ríkissjóð og sveitarfélög.
Þess vegna getur slíkt samtal skipt
miklu máli.“ sighvatur@frettabladid.is
Logi Már Einarsson
formaður Samfylkingarinnar
„Þetta eru ágætis
fyrstu skref en
það þarf að gera
meira. Ég tel að
það hefði átt að
stíga strax fastar
í að lækka álögur
á fyrirtæki og beina
til bankanna að sýna fólki og fyrir-
tækjum umburðarlyndi. Ég hef
miklar áhyggjur af þeim hópum
sem búa við kröppustu kjörin. Hér
verður að jafna kjörin og fjárfesta í
atvinnuskapandi verkefnum.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
formaður Viðreisnar
„Ég er undrandi á
að ríkisstjórnin,
vitandi af niður-
sveiflunni, sé
ekki undirbúin.
Við sjáum fækk-
un ferðamanna,
samdrátt í innkaup-
um og aukið atvinnuleysi. Þríeykið
Alma, Þórólfur og Víðir standa
sig vel og svara öllu á staðnum.
Þríeykið í ríkisstjórninni gefur hins
vegar loðin fyrirheit en þjóðfélagið
þarf svör núna. Ég fagna niðurfell-
ingu gistináttagjalds, sem er þó
aðeins milljarðu r. Ég vil afgerandi
aðgerðir strax, lækka trygginga-
gjald eða afnema tímabundið.“
Inga Sæland
formaður Flokks fólksins
„Mér finnst þetta
mjög jákvætt,
sérstaklega
hvernig á að
halda utan um
ferðamanna-
auðlindina
dýrmætu. Nú á að
fleyta lífvænlegum fyrirtækjum
í gegnum skaflinn. Ég er sam-
mála fjármálaráðherra um að við
stöndum óvenju sterkt, með 800
milljarða gjaldeyrisvaraforða,
og höfum því svigrúm til að gera
ýmsa hluti.“
Smári McCarthy
formaður Pírata
„Aðgerðirnar
virka ekki mjög
sterkar en þetta
er enn svolítið
óljóst. Þarna
eru ekki mjög
mikið af áþreifan-
legum aðgerðum, og
ég myndi vilja sjá þær sem fyrst,
helst núna í vikunni. Sjálfur myndi
ég vilja sjá breytingu á lögum um
opinber fjármál, sem hamla því
að við getum sett fjármagn í upp-
byggingu.“
Meira afgerandi
aðgerða þörf
HAFNARFJÖRÐUR Fulltrúi Við-
reisnar í skipulags- og byggingar-
ráði Hafnarfjarðabæjar telur að
bærinn brjóti lög með því að ætla
að ráðstafa gatnagerðargjöldum til
uppbyggingar íþróttamannvirkja
bæjarins. Óli Örn Eiríksson lét
bóka þessa skoðun sína í fundar-
gerð ráðsins en meirihluti Sjálf-
stæðismanna og Framsóknar og
óháðra brást illa við bókuninni.
Var Óli Örn sakaður um að reyna
að leggja stein í götu uppbygg-
ingarinnar hjá Haukum.
Deilan kviknaði þegar lögð var
fram greinargerð skipulagsfulltrúa
bæjarins um deiliskipulag svæðis í
kringum Haukasvæðið á Ásvöllum.
Í samkomulagi Hafnarfjarðarbæjar
við Hauka er kveðið á um að gatna-
gerðargjöld svæðisins renni í upp-
byggingu á knatthúsi við Ásvelli.
„Það er að mínu mati skýrt sam-
kvæmt lögum um gatnagerðar-
gjöld að slík ráðstöfun sé ólögleg.
Tilgangurinn var einungis sá að
benda á að breyta þyrfti þessu
ákvæði svo að verkefnið myndi
ekki tefjast síðar meir. Ég taldi rétt
að óska eftir lögfræðiáliti á þessum
lið samkomulagsins,“ segir Óli Örn.
Í bókun meirihlutans kemur
fram að það sé með ólíkindum
að Viðreisn skuli á þessum tíma-
punkti gera tilraun til að leggja
stein í götu Hauka til að hefja upp-
byggingu á íþróttasvæði sínu.
„Þetta mál á sér langa forsögu.
Í einfölduðu máli vildu Haukar
byggja íbúðir á svæðinu en bærinn
tók það ekki í mál. Að endingu
varð niðurstaðan sú að bærinn
sér um uppbygginguna en Haukar
njóta góðs af tekjum sem skapast í
nauðsynlegar fjárfestingar hjá sér.
Þetta hefur verið í ferli í um tvö ár
hjá borginni og var staðfest í bæjar-
stjórn fyrir nokkrum mánuðum.
Okkur fannst því einkennilegt að
leggja fram þessa bókun um sam-
komulagið sem var ekki á dagskrá
fundarins,“ segir Ólafur Ingi Tóm-
asson, formaður ráðsins og bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisf lokksins. – bþ
Hafnarfjörður brjóti gatnagerðarlög
Ólafur Ingi Tómasson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
DÓMSMÁL Málflutningi í endurupp-
tökumálum Sigurjóns Árnasonar og
Sigríðar Elínar Sigfúsdóttur, sem fara
átti fram í Hæstarétti í dag, hefur
verið frestað þar sem einn dómar-
anna er í sóttkví.
Ellefu ný tilfelli af COVID-19 sjúk-
dómnum voru greind á sýkla- og
veirufræðideild Landspítala í gær.
Staðfest er að sex þeirra eru innan-
landssmit og að eitt megi rekja til
skíðasvæða í Ölpunum. Unnið er
að því að rekja önnur smit. Fjöldi
smitaðra var því kominn í 76 þegar
Fréttablaðið fór í prentun í gær, þar
af voru 18 innanlandssmit. Allir
smitaðir eru í einangrun en auk
þeirra eru 598 í sóttkví, langflestir á
höfuðborgarsvæðinu.
Fram kom á fundi almannavarna í
gær að fyrsta svokallaða þriðja stigs
COVID-smitið hefði verið staðfest
hjá maka einstaklings sem átti í sam-
skiptum við fólk sem kom að utan.
Faraldurinn er farinn að hafa æ
meiri áhrif á dagleg störf í landinu. Í
fyrradag var greint frá því að starfs-
maður í forsætisráðuneytinu hefði
greinst og tekin hafa verið sýni úr
tveimur samstarfsmönnum hans.
Fundarhöld eru víða takmörkuð.
Þótt smit hafi verið greind í
menntaskólum hafa sóttvarnayfir-
völd ekki talið þörf á því að nem-
endur og starfsmenn fari í sóttkví
að svo stöddu. – aá
Sóttkví dómara hefur áhrif á dagskrá Hæstaréttar
Einn setudómara í máli Sigurjóns og
Elínar fór í sóttkví eftir skíðaferð.
1 1 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð