Fréttablaðið - 11.03.2020, Síða 36
Hildigunnur
Þráinsdóttir,
markaðsstjóri
Heimkaup.is,
segist líta svo
á að fyrirtækið
gegni mikil-
vægu hlutverki
í því ástandi
sem nú ríkir á
Íslandi. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
Hildigunnur Þráinsdóttir, markaðsstjóri Heimkaup. is, segist líta svo á að fyrir-
tækið gegni mikilvægu hlutverki
í því ástandi sem nú ríkir á Íslandi
við að þjóna þeim sem vilja
forðast margmenni og ekki síst
þeim sem eru í sóttkví, enda má
fólk í sóttkví ekki fara sjálft eftir
aðföngum samkvæmt leiðbein-
ingum frá Embætti landlæknis.
„Heimkaup.is er eina mat-
vöruverslunin sem er eingöngu
á netinu. Fólk verslar hjá okkur
heiman frá sér, snertir ekki inn-
kaupakerrur eða þess háttar og
enginn kemst í snertingu við vör-
urnar fyrr en við af hendum þær.
Öryggið er þannig mjög mikið.
Öll dagvara, það er matvara og
heimilisvara, er af hent einum til
þremur klukkustundum eftir að
pantað er, við keyrum heim að
dyrum. Fók kaupir bæði meira
í einu og hópurinn sem pantar
hjá okkur er að breikka, mikið af
eldra fólki sem er í áhættuhópi er
að panta meira hjá okkur núna.“
Öryggisráðstafanir í
samvinnu við Vinnuvernd
Heimkaup.is hefur gripið til mjög
strangra ráðstafana til að standast
allar þær kröfur sem yfirvöld
og viðskiptavinir gera þessar
vikurnar. „Við höfum í samstarfi
við fyrirtækið Vinnuvernd breytt
öllu vinnuskipulagi hjá okkur
svo ekkert út af bregði, það er
grundvallaratriði að við höfum
toppfólk til að þjónusta viðskipta-
vini okkar. Vinnuvernd kom í
heimsókn til okkar til að fræða
starfsfólk um veiruna og smit-
leiðir og hvernig best sé að haga
af hendingum og vinnu í vöruhúsi.
Allir munu fylgja mjög skýrum
ferlum. Fólk sem hefur aðstöðu
til að vinna heima gerir það en
svo höfum við líka leigt skrif-
stofu í öðru húsnæði til að klippa
á samgang milli skrifstofufólks
og mikilvægasta starfsfólksins;
fólksins í tínslu og útkeyrslu. Frá
og með deginum í gær er ekkert
fólk á skrifstofunum.“
Hildigunnur segir að innleiðing
nýrra ferla hafi gengið vel og að
allir skilji mikilvægi sitt.
Starfsfólki skipt í hópa
Til að reyna að takmarka
útbreiðslu veirunnar mælast
heilbrigðisyfirvöld óhikað til
þess að fólk fari í sóttkví þegar
aðstæður krefjast þess. Heim-
kaup.is ætlar að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að koma í
veg fyrir að starfsfólk á lager fari
í sóttkví. „Í samráði við Vinnu-
vernd höfum við skipt starfs-
fólki í tínslu og útkeyrslu í hópa
sem ekki umgangast og vinna á
ólíkum tímum. Hver hópur hefur
sína kaffivél, við hættum að nota
sameiginlega snertiskjái og svo
mætti lengi telja.“ Þá segir hún
að spritt sé nú staðalbúnaður
hjá starfsfólki, það snerti ekki
hurðarhúna eða handföng með
berum höndum og þrifið er milli
vakta í vöruhúsi.
Bílstjórar nota nýja einnota
hanska við hverja af hendingu og
setja í sérstaka poka í bílunum
eftir hvert stopp. Sendingar eru
skildar eftir við dyr viðskiptavina
Öruggasta matvöruverslunin
er á netinu hjá Heimkaup.is
Sprenging hefur orðið í heimsendingu á matvöru á Heimkaup.is síðastliðna daga og ekkert lát
er á. Fyrirtækið hefur nú þegar fjölgað starfsfólki í tínslu og útkeyrslu og mun bæta enn frekar
í á næstu dögum en þannig kemur það fólki til aðstoðar sem kemst ekki úr húsi til að versla.
Heimkaup.is er
eina matvöruversl-
unin sem er eingöngu á
netinu.
Það er hægt að gera öll innkaup heimilisins hjá Heimkaup.is, afar þægilegt.
ef þeir óska eftir því. Hildigunn-
ur segir að sér hafi ekkert litist á
blikuna þegar þetta ástand skall
á en það hafi komið þægilega á
óvart hvað fólk taki þessum ráð-
stöfunum af miklu æðruleysi og
að allir séu tilbúnir að leggja sitt
af mörkum. „Þetta þjappar okkur
saman, þó ekki of þétt, svona í
efnislegum skilningi.“
Hvað á að gera í sóttkví?
Á forsíðu Heimkaup.is er hnappur
fyrir fólk sem er í sóttkví, „Fastur/
föst heima“ þar sem er að finna
vörur með langt geymsluþol og
þær vörur sem Embætti land-
læknis telur æskilegt að séu til á
heimilum í heimsfaraldri. „Þetta
hljómar allt svo ógurlega eitt-
hvað,“ segir Hildigunnur. „En f lest
erum við jafn hraust og örugg og
við vorum áður en kórónaveiran
barst til landsins. Við höfum
sett fjöldann allan af vörum inn
í f lokkinn „Föst heima“ sem eru
skemmtilegar og stytta fólki
stundir, spil, bækur og púsl. Þau
eru nokkur sem hafa sagt okkur
hinum frá sinni sóttkví í fjöl-
miðlum og þau gera það besta
úr því. Þá gefst tími til að gera
ýmislegt sem alla jafna er ekki á
dagskrá. Við alla vega vonum það
besta, fylgjumst vel með fréttum
og gætum að öryggi okkar og
fólksins í kringum okkur.“
Heimkaup.is er stærsta net-
verslun á Íslandi. Á síðunni fæst
öll matvara og heimilisvara og er
af hent samdægurs á höfuðborgar-
svæðinu.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 M I ÐV I KU DAG U R 1 1 . M A R S 2 0 2 0