Fréttablaðið - 11.03.2020, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 11.03.2020, Blaðsíða 41
Kærar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og komu og kvöddu okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Ingveldi Höskuldsdóttur Sérstaklega viljum við þakka bráðavakt og gjörgæslu Landspítalans fyrir frábæra umönnun. Hallfríður Kristjánsdóttir Veigar Óskarsson Ástvaldur Óskarsson Martha Jónasdóttir Helgi Óskarsson ömmu- og langömmubörn. Ástkær móðir mín, Arnfríður Ásdís Guðnadóttir lést á hjúkrunarheimilinu Grund, þriðjudaginn 25. febrúar. Hjartans þakkir færum við starfsfólki á Grund fyrir hlýju, alúð og góða umönnun. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðni Karl Guðsteinsson systkini og frændsystkini hinnar látnu. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðbjörg Jóna Ragnarsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð 26. febrúar sl. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey frá Lágafellskirkju. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Brákarhlíðar fyrir einstaka umönnun. Aðstandendur. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamamma, amma og langamma, Svanhildur Ingvarsdóttir Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til heimilis að Klettahrauni 5, Hafnarfirði, lést í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 4. mars. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 16. mars kl. 13.00. Sveinn Þorkell Guðbjartsson Katrín Sveinsdóttir Kristján Rúnar Kristjánsson Hildur Dís Kristjánsdóttir Þorgeir Albert Elíesersson Sveinn Rúnar Þorgeirsson Svana Lovísa Kristjánsdóttir Andrés Garðar Andrésson Bjartur Elías Andrésson Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Jóhanna Guðrún Brynjólfsdóttir frá Skálholtsvík, sem lést þann 21. febrúar, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 20. mars og hefst athöfnin kl. 13.00. Sveinbjörn Jónsson og fjölskylda. Ástkær eiginmaður minn, bróðir, faðir, tengdafaðir, afi, og langafi, Guðmundur Valur Einarsson Miðási 1, Raufarhöfn, lést á Sjúkrahúsi Húsavíkur 6. mars síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Raufarhafnarkirkju, laugardaginn 14. mars, kl. 14.00. Rósa Lilja Sigmundsdóttir Pálína Sigríður Einarsdóttir Linda Guðmundsdóttir Þorgeir Hjartarson Eyrún Guðmundsdóttir Óskar Óskarsson Örn Guðmundsson Kristín Elva Magnúsdóttir Smári Guðmundsson Ríkarður Guðmundsson Lilja Lofn Skúladóttir Erla Guðmundsdóttir Árni Heiðar Gylfason Sigmundur Guðmundsson Ingibjörg Hjaltadóttir Alda Guðmundsdóttir Bjarni Ómar Haraldsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hrefna Einarsdóttir lést 3. mars á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför fer fram frá Lindakirkju mánudaginn 16. mars klukkan 13.00. Hjalti Ævarsson Trausti Þór Ævarsson Ástríður Torfadóttir Svanþór Ævarsson Ásgerður Hákonardóttir Auður Ævarsdóttir Sigurður Ingi Viðarsson barnabörn og barnabarnabörn. Hulda Leifsdóttir er stödd á myndlistarsýningu í Norræna húsinu þegar ég trufla hana með sím-hringingu til að forvitn-ast um erindi hennar til Íslands frá Finnlandi, en þar hefur hún búið frá árinu 1993. Í ljós kemur að hún hefur tekið með sér tólf abstrakt- málverk til landsins og ætlar að opna sýningu sem hún nefnir Umbreyting á sunnudaginn 15. mars, í Galleríi göng- um í Háteigskirkju. Eiginmaður hennar, Tapio Koivukari verðlaunarithöfundur, sem er ókominn til landsins þegar þetta samtal fer fram, mun lesa þar úr ljóða- bók sinni Innfirðir. Hún er fyrsta bókin sem hann skrifar á íslensku en hann talar málið mjög vel, að sögn Huldu. „Við völdum að tala alltaf íslensku okkar á milli,“ útskýrir hún. Hulda er fædd og uppalin á Ísafirði og kveðst hafa sýnt þar fyrst. „Ég hef sýnt í Finnlandi, á Íslandi og á Álandseyjum. Er starfandi listamaður og kenni flóka- gerð með, bæði í lýðháskóla og kvöld- skóla, var f lókalistamaður í allmörg ár,“ segir Hulda sem á 32 ára listaferil að baki og kveðst hafa fengist við margt á þeim tíma, meðal annars ljósmyndun. „Núna er ég bara í abstrakt málverki með akrýl- litum.“ Hvar skyldi hún hafa kynnst mannin- um sínum, Tapio Koivukari? „Í heimabæ, mínum Ísafirði. Þar fékk hann starf sem smíðakennari við grunnskólann, hann er sjálfmenntaður handverksmaður. Tapio hefur haft áhuga á Íslandi alveg frá því hann var unglingur. Sá áhugi kviknaði þegar hann fór að lesa Lax- ness. Sálin hans sagði honum alltaf að fara norðvestur og hann fór norðvestur, þess vegna lenti hann á Ísafirði og hitti mig! Við giftum okkur í Súðavíkurkirkju og bjuggum nokkur ár á Ísafirði, þá sagði listamaðurinn ég: „Nú vil ég ævintýri, ég vil fara til þíns heimalands og prófa að búa þar.“ Það var látið eftir mér og ég hef ekkert flutt heim síðan, hugsa að ég verði gömul í Finnlandi, það er svo gott að búa þar. Við erum í fallegum 35.000 manna bæ sem heitir Rauma og er við vestur- ströndina, þaðan er mikill timburút- flutningur og þar eru skipasmíðastöð og pappírsverksmiðja.“ Tapio Koivukari hefur skrifað sjö sögulegar skáldsögur sem gerast á vesturströnd Finnlands á fyrri öldum og tvær sem gerast á Íslandi á 17. öld. Fjórar þessara bóka hafa komið út í íslenskri þýðingu Sigurðar Karlssonar. Auk þess hefur Koivukari sent frá sér smásögur, leikrit og ljóð og þýtt fjölda íslenskra skáldverka á íslensku og hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, meðal annars ein af stærstu bókmenntaverð- launum Finnlands, Runebergsverðlaun- in. Svo hefur hann líka haldið áfram að smíða í lausamennsku, að sögn Huldu. „Hann er alltaf að hjálpa fólki og hefur verið að skera út,“ lýsir hún. „Á sumrin erum við oft að gera við gamla glugga, hann smíðar og ég mála. Við vinnum voða mikið saman.“ Sýningin Umbreyting verður opnuð klukkan 12 á sunnudaginn, ef allt fer samkvæmt áætlun, og upplestur Tapio úr bókinni Innfirðir hefst klukkan 13. Þar fjallar hann um kynni sín af Vest- fjörðum og Íslandi, ásamt ferðum um aðra heimshluta, uns hann staðnæmist í heimahögunum á vesturströnd Finn- lands. Í bókarlok ferðast skáldið um inn- firði hugans. gun@frettabladid.is Völdum að tala alltaf íslensku okkar á milli Listahjónin Hulda Leifsdóttir myndlistarmaður og Tapio Koivukari rithöfundur leggja á sig ferð frá Finnlandi til að halda upp á sextugsafmæli sín með málverkasýningu og upplestri í Galleríi göngum í Háteigskirkju að lokinni guðsþjónustu á sunnudaginn. Tapio hefur haft áhuga á Íslandi alveg frá því hann var ungl- ingur. Sá áhugi kviknaði þegar hann fór að lesa Laxness. Sálin hans sagði honum alltaf að fara norðvestur og hann fór norð- vestur, þess vegna lenti hann á Ísafirði og hitti mig! „Við vinnum voða mikið saman,“ segir Hulda um þau hjónin Tapio Koivukari og hana. Eitt af málverkunum hennar Huldu. 1 1 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.