Fréttablaðið - 11.03.2020, Qupperneq 47
ÉG HEF LAGT HJARTA
MITT OG SÁL Í ÞESSA
PLÖTU OG ALLT SEM VIÐKEMUR
HENNI.
100 kr.
af hverjum seldum
pakka renna til
átaksins Mottumars
Fyrsta tónlistarmynd-band Ástu Kristínar Pjet-ursdóttir kemur út í dag en hún gaf út sína fyrstu plötu í fyrra, Sykurbað. Hana samdi hún á Flat-
eyri þar sem hún stundaði nám við
lýðháskólann. Hún segir snjóþung-
ann og myrkrið hafa sett lit sinn á
plötuna.
Blind ást
„Lagið Sykurbað fjallar um flókið
samband mitt við manneskju sem
ég var ástfangin af. Hvernig hann
hughreysti mig þegar mér leið illa,
hvað allt var gott með honum, en
líka hvað allt var slæmt með honum.
Lagið fjallar um ást sem er svo blind
að þrátt fyrir allt það slæma, þá
erum við bara manneskjur og ég
myndi gera allt fyrir hann, jafnvel
að vaða hnédjúpan snjó berleggjuð.
Sem ég þurfti einu sinni að gera,
en ég vil ekkert fara nánar út í það
hérna,“ segir Ásta dularfull.
Henni þykir vænt um lagið, eins
og reyndar öll lögin á plötunni.
„En það hefur alltaf verið planið
að gera myndband við þetta lag,
titillag plötunnar.
Það er svo mikið af skemmti-
legum myndrænum elementum
í textanum sem ég leik mér með í
myndbandinu. Í myndbandinu leik
ég marga mismunandi karaktera,
sem grípur í rauninni vel hvernig
raunveruleikinn var,“ segir hún.
Ásta segir að samband hennar við
manneskjuna sem lagið fjallar um
hafi verið einstaklega flókið.
„Það voru svo miklar upp- og
niðursveiflur að mér fannst ég ein-
hvern veginn vera margar mann-
eskjur í einni. Það fór allt eftir því
hvernig hann kom fram við mig
og hvernig tilfinningin var hverju
sinni.“
Þakklát fyrir hjálpina
Rúmlega tuttugu manns leika með
Ástu í myndbandinu, mestallt vinir
hennar og kunningjar. Hún segist
verið ótrúlega þakklát fyrir þeirra
framlag.
„Við lögðum höfuðið í bleyti varð-
andi tökustað, þetta gerðist allt svo
f ljótt og við þurftum að vera f ljót
að finna stað. Pabbi kennir í Breið-
holtsskóla og mér datt í hug að það
væri hægt að taka myndbandið upp
í hátíðarsalnum þar. Það gekk eftir
og við eyddum þar einum laugar-
degi í tökur,“ segir hún.
Ásta segir að hún hafi gaman af
því að reyna gera mikið úr litlu.
„Ég tel mér hafa tekist það í þessu
myndbandi. Einfalt en áhrifaríkt.
Ýmsir leikmunir voru keyptir á
nammibarnum í Hagkaupum,
Partýbúðinni og í Blómavali,“ segir
hún og brosir.
Undirbúningsferlið gekk mjög
hratt fyrir sig að sögn Ástu.
„Ég hafði samband við Viktor í
Blindspot-framleiðslu og spurði
hann hvort hann væri til í að gera
tónlistarmyndband með mér og
viku seinna var myndbandið til-
búið. Samstarfið gekk ótrúlega vel,
framar mínum björtustu vonum,
við erum greinilega á sömu bylgju-
lengd og allt gekk mjög vel fyrir
sig. Við unnum þetta myndband
saman, ég sá um svona listræna
stjórnun, við leikstýrðum saman og
hann sá um eftirvinnslu og tökur,“
segir Ásta.
Mamma og pabbi á setti
Foreldrar Ástu voru með þeim á sett-
inu allan tímann að hjálpa til.
„Viktori fannst það svolítið fyndið
að mamma og pabbi væru að hjálpa
mér að gera tónlistarmyndband, en
mér fannst það svo fínt. Ég treysti
þeim fullkomlega og þau stóðu sig
svo vel. Mamma þurfti til dæmis að
sturta glimmeri yfir mig og hjálpa
mér að líma nammi í hárið á mér,“
segir hún og hlær.
Margt hefur gerst í lífi Ástu á þeim
tíma sem er liðinn frá því að hún gaf
út plötuna.
„Ég spilaði á Iceland Airwaves í
fyrsta skipti og var valin af hátíðinni
sem besti nýi listamaðurinn. Síðan
hélt ég hélt útgáfutónleika í Hátíða-
sal MR rétt fyrir jól. Ég fór líka í
fyrsta skipti til New York og hélt
tónleika í Rockwood Music Hall. Það
var æðislega gaman að spila fyrir
fullum sal á stað sem maður hefur
aldrei komið á. Geggjað að spila í
þessari einstöku borg á svona sögu-
frægum stað. Það er klikkað að spila
á sama sviði og Lady Gaga spilaði á
áður en hún varð fræg.“
Sykurbað tilnefnt
Hún segist vera dugleg að semja
og vera komi með fullt af nýjum
lögum.
„Ég ræð ekkert við sjálfa mig. Er
komin með fullt af nýjum lögum
sem ég get ekki beðið eftir að fara
að vinna meira í. Mig klæjar alveg
í fingurna, langar svo að byrja að
vinna í nýju efni. Svo er meira sam-
starf í kortunum, en ég get ekki
sagt neitt meira um það í bili,“ segir
Ásta.
Ásta er tilnefnd til þrennra verð-
launa á Íslensku tónlistarverð-
laununum, þar á meðal fyrir lagið
Sykurbað.
„Ég á eiginlega ekki til orð yfir
þetta, það er svo mikill heiður.
Auðvitað skipta tilnefningar og
verðlaun ekki öllu máli, en það er
alltaf gaman að fá viðurkenningu
fyrir þá vinnu sem maður leggur á
sig. Því ég hef lagt hjarta mitt og sál
í þessa plötu og allt sem við kemur
henni,“ segir Ásta.
Hægt er að sjá myndband Ástu
við lagið Sykurbað á vef Frétta-
blaðsins. steingerdur@frettabladid.is
Spilaði á sama sviði og Lady Gaga
Ásta Kristín er tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna, þar á meðal fyrir lagið Sykurbað. Myndband við lagið kemur út í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ásta gaf út sína
fyrstu plötu, Sykur-
bað, í fyrra. Henni
var vel tekið en í
dag kemur út mynd-
band við titillag
plötunnar, en lagið
er tilnefnt sem lag
ársins á Íslensku
tónlistarverðlaun-
unum. Ásta naut
dyggrar aðstoðar
foreldra sinna á setti.
1 1 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð