Hugur og hönd


Hugur og hönd - 2019, Blaðsíða 4

Hugur og hönd - 2019, Blaðsíða 4
Þjóðbúningur kvenna Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. aldar - sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæð- skerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld. Mikill hluti vinnunnar er hand- saumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ. Knipl á þjóðbúning Kennt er að knipla á upphlutsbak. Nemendur velja á milli blúndu-, stiga-, nets- eða takkamynsturs úr gull- eða silfur- þræði á 20. aldar upphlut. Á 19. aldar upphlut stendur valið á milli takka eða nokkurra mismunandi leggingamynstra úr gull- eða silfurþræði og/eða silki. Baldýring Gullsaumur eða baldýring er gömul útsaumsaðferð sem þekkt er víða um heim. Hér á landi hefur aðferðin einna helst verið notuð á þjóðbúningum og í kirkjulegum útsaumi. Kennd eru grunnatriði í baldýringu og nemendur eru aðstoðaðir við að byrja á stærra verkefni, svo sem upphlutsborðum. Faldbúningur - Skautbúningur - Kyrtill Umsjónartímar eru ætlaðir þeim sem vinna að faldbún- ingi, skautbúningi eða kyrtli - sjá www.buningurinn.is. Í tímunum fá nemendur einstaklings¬miðaða aðstoð við fjölbreytt verkefni. Hver tími er stakur og getur því hentað vel sem aukatími fyrir minni verkefni tengd þjóðbúninga- saumi, til dæmis skyrtu- og svuntusaum eða lagfæringar á eldri búningum. Vefnaðarnámskeið, 5 vikur Námskeiðið er ætlað byrjendum en hentar einnig þeim sem vilja upprifjun í vefnaði. Allir þátttakendur fá vefstól til umráða. Farið er í; grunnþætti uppsetningar, grunn- bindingar einskeftu og vaðmáls og samsettar bindingar. Lögð er áhersla á hvernig nota má liti, efni og bindingar sem útkomu á munstri. Kennari aðstoðar við val á verk- efnum sem geta verið værðarvoðir, púðar, borðrenningar, diskamottur o.fl. Harðangur Námskeið í grunnatriðum harðangurssaums sem hentar vel byrjendum. Einkenni aðferðarinnar er flatsaumur, stólpar sem kastað er yfir og fyllingar í útklippt göt. Flat- saumur myndar nokkurs konar blokkir/þyrpingar sem raðast saman. Gamli krosssaumurinn Kenndur er gamli íslenski krosssaumurinn (fléttuspor). Nemendur gera fallega prufu með munstri úr Sjónabókinni sem síðar má setja í púða eða í ramma. Uppsetning á púðum Á námskeiðinu er kennt að setja upp útsaum í púða. Nemendur komi með nýjan eða gamlan útsaum og læra að setja upp. Refilsaumur Refilsaumur er forn útsaumsaðferð en reflar skreyttu hús og kirkjur á miðöldum. Útlínur eru saumaðar fyrst og síðan er fyllt inn í fletina. Að lokum eru saumaðar aukaútlínur, andlit eða önnur atriði sem þurfa áherslu. Refilsaumur er einstaklega fallegur til að sauma út myndir og fyllta fleti. Nemendur læra aðferðina og sauma litla mynd. Kanntu að spinna á halasnældu? - Örnámskeið! Kjörið námskeið fyrir þá sem vilja kynnast tóvinnu stutt- lega. Á einni kvöldstund læra nemendur að kemba ull og spinna á halasnældu. Námskeiðið er hugsað sem kynning á grunnhandtökum en vakin er athygli á lengra námskeiði sem hægt er að sækja í framhaldinu. Orkering Kennd er grunnaðferð við að hnýta blúndur með sérstakri skyttu. Nemendur læra að lesa uppskriftir bæði skrifaðar og eftir teikningum. Orkeraðar blúndur eru til dæmis not- aðar framan á peysufataermar, í skartgripi, dúka eða aðra skrautmuni. Eplakarfa / prjónakarfa Kennd eru undirstöðuatriði í körfuvefnaði en námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Nemendur læra að gera stóra og myndarlega körfu. Körfugerðin tekur tvö kvöld með heimavinnu. Hægt er að skreyta körfuna á ýmsan hátt t.d. með lituðum tágum og snæri. Kennt verður að lita körfuna í lok námskeiðs. Sápugerð - örnámskeið! Á námskeiðinu er farið yfir hvernig sápa verður til og hvað þarf af efnum og áhöldum til sápugerðar í föstu formi. Algeng aðferð er kennd en fleiri nefndar. Kennslan hefst á fyrirlestri en að honum loknum er sýnikennsla þar sem gerð er sápa sem nemendur fá með sér heim. Heimilisiðnaðarskólinn - Nethylur 2e - 110 Reykjavík Netfang: skoli@heimilisidnadur.is - Sími: 551 5500 Opnunartími mánudaga-fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9 - 16 Verslunin er opin mán. - fim. kl. 12-18 og fös. kl. 12-16 www.heimilisidnadur.is www.facebook.com/heimilisidnadarfelagid Heimilisiðnaðarskólinn Á meðal námskeiða sem boðið er uppá:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.