Hugur og hönd - 2019, Blaðsíða 56
56 HUGUR OG HÖND 2019
Síðastliðið sumar fóru sjö þátttakendur frá Íslandi
ásamt kennara og fararstjóra í handverksbúðir fyrir
ungmenni á aldrinum 16-22 ára í Noregi. Þetta er í
fyrsta sinn sem samnorrænar sumarbúðir af þessu
tagi eru haldnar á vegum Norrænu Heimilisiðnaðar-
félaganna.
Norrænar handverksbúðir eru samvinnuverkefni
landanna í regnhlífarsamtökunum Nordens husflids-
forbund, en búðirnar voru hugsaðar sem tækifæri
fyrir ungt fólk með áhuga á handverki, sköpun og
umhverfisvænu neyslumynstri. Hugmyndin er að
slíkur vettvangur geti verið drifkraftur í varðveislu
og endurnýjun á hefðbundnu handverki.
Í fimm daga, frá miðvikudegi 8. ágúst fram á
sunnudag 12. ágúst, safnaðist ungt fólk frá Norð-
urlöndunum saman rétt fyrir utan Ósló og tók þátt í
skapandi starfi. Ungmennin voru 40 talsins frá Finn-
landi, Eistlandi, Svíþjóð, Íslandi, Danmörku og síðast
en ekki síst frá gestgjöfunum í Noregi. Búðirnar
voru haldnar í lýðháskólanum í Jessheim í Akershus
sem er um 40 km frá Ósló og 7 km frá flugvellinum á
Gardermoen. Þetta er heimavistarskóli með tveggja
manna herbergjum, einstaklingsherbergjum, eldhúsi,
borðstofu og margvíslegum vinnuherbergjum og
vinnuaðstöðu. Öll umgjörð og aðstaða var til fyrir-
myndar. Umhverfið var vel fallið til útiveru og það var
stöðuvatn í nágrenninu þar sem hægt var að baða sig
þegar tími gafst til. Á kvöldin var skipulögð afþreying
en einnig var frjáls tími. Allt iðaði af lífi og fjöri og
allir voru beðnir um að skipuleggja og taka þátt í af-
þreyingunni en vinnustofurnar voru líka opnar fyrir
þá sem vildu vinna á kvöldin. Ungmennin frá Íslandi
stóðu sig með stakri prýði og sungu meðal annars
þjóðsönginn og buðu upp á píanókonsert.
Frá hverju landi voru, auk ungmennanna, einn
kennari og einn farastjóri. Sköpunargleðin var í
hámarki þessa daga en þátttakendur gátu valið á
milli átta ólíkra vinnustofa í tvo heila daga, auk þess
sem hægt var að velja tvær styttri vinnustofur þriðja
daginn. Í boði var vistvænt tréverk, mokkalúffur,
spjaldvefnaður, gerð Led-lampa, útsaumur, lopa-
peysuprjón, að renna í tré, sauma og skreyta lausan
vasa eða að sauma pils. Íslensku þátttakendurnir
völdu flestir spjaldvefnað, en einn renndi úr tré og
annar saumaði pils. Á stuttu vinnustofunum var
hægt að sauma handstúkur úr mokkaskinni, knippla,
prjóna kaðla, renna úr tré, yfirfæra ljósmyndir á ólík
efni, þrykkja á efni eða endurvinna gamla plastpoka.
UNGT FÓLK Í HANDVERKI
H ö f u n d u r : Ragnheiður Valgerður Sigtryggsdótt ir fararst jóri - L j ó m y n d i r : Anne Guri Gunnerød