Hugur og hönd - 2019, Blaðsíða 5
Að stunda handverk eykur hamingju. Gleðin sem felst
í því að skapa og læra eitthvað nýtt eykur vellíðan
og má því með sanni segja að hamingjan búi í hand-
verkinu. Hamingjan býr í handverkinu er yfirskrift
bæklings sem systurfélag Heimilisiðnaðarfélagsins í
Finnlandi Taito gaf út nú á vormánuðum. Að baki full-
yrðingunni liggur stór skoðanakönnun þar sem fram
kemur að einn af hverjum þremur finnum stundar
einhvers konar handverk í hverjum mánuði. Meira en
helmingurinn af þeim hópi nefnir að handverk sé góð
leið til þess að slappa af og núllstilla hugann. Þessari
fullyrðingu, sem handverksfólk veit að er sönn, er
nauðsynlegt að halda á lofti. Nú þegar umræða um
streitu og kulnun verður sífellt meira áberandi í sam-
félaginu eykst mikilvægi þess starfs sem HFÍ vinnur
að með námskeiðahaldi og útgáfu tengdu handverki.
HFÍ á því nú sem fyrr brýnt erindi til samtímans.
Fyrstu hundrað árunum í sögu Heimilisiðnaðar-
félags Íslands verða gerð skil í bókinni Þarfaþing
og þjóðþrifamál – Saga Heimilsiðnarafélags Íslands
1913-2013 sem Áslaug Sverrisdóttir sagnfræðingur
ritar. Áslaug hefur unnið að verkinu undanfarin ár
en nýlega varð sá merki áfangi að HFÍ, höfundur
og Sögufélagið skrifuðu undir útgáfusamning. Það
er gleðiefni og mikil viðurkenning að Sögufélagið
skuli taka verkið til útgáfu. Vinnu við handrit og val
mynda verður lokið síðar á þessu ári og bókin kemur
út haustið 2020. Við lestur handritsins vekur athygli
að Heimilisiðnaðarfélagið hefur alveg frá stofnun
árið 1913 staðið fyrir námskeiðahaldi, félagið hefur
gengt mikilvægu hlutverki á opinberum vettvangi
til að mynda við móttöku opinberra erlendra gesta
og veitt umsagnir um ýmis mál í gegnum tíðina,
sýningarhald er áberandi og verslunin Íslenzkur
heimilsiðnaður setti svip á bæinn um langt árabil.
Við skrif sögunnar leggur Áslaug áherslu á að tengja
sögu félagsins við almenna sögu og höfðar hún því til
breiðs hóps lesenda. Útgafa bókarinnar er sannarlega
tilhlökkunarefni.
Norrænt samstarf stendur með miklum blóma um
þessar mundir eins og rakið er í þremur stuttum grei-
num hér í blaðinu. Norrænt samstarf Heimilsiðnaðar-
félaga á sér langa og farsæla sögu. Óhætt er að segja
að uppgangur sé á þeim vettvangi um þessar mundir.
Samfélagsmiðlar auðvelda öll samskipti og skapa
möguleika á að deila verkefnum þvert á landamæri
á einfaldan hátt. Það er félaginu ómetanlegt að hafa
árlega tækifæri til að bera saman bækur sínar við
heimilisiðnaðarfélögin á hinum norðurlöndnunum,
læra af reynslu þeirra og njóta ávinnings af þeirra
öfluga starfi.
Það er sannarlega meðbyr með starfsemi Heimi-
lisiðnaðarfélagsins um þessar mundir. Fyrir því eru
tvær megin ástæður. Fyrri ástæðan er sú staðreynd
að ástundun handverks hefur jákvæð áhrif á and-
lega, og þar með líkamlega heilsu. Síðari ástæðan er
kröftug umræða um umhverfismál, þar sem raddir
gegn óvönduðum og ódýrum vörum verður háværari
vegna neikvæðra umhverfisáhrifa. Þetta leiðir til
kröfu um að hlutir séu gerðir til að endast sem aftur
eykur gildi handgerðra hluta úr góðu hráefni. Heimi-
lisiðnaðarfélagið hefur því ástæðu til bjartsýni.
Margrét Valdimarsdóttir,
formaður Heimilsiðnaðarfélags Íslands
Formannspisti l l
2019 HUGUR OG HÖND 5