Hugur og hönd - 2019, Blaðsíða 39
2019 HUGUR OG HÖND 39
96x105 cm og allt saumað með
refilsaumi. Efst er texti á latínu
þar sem segir í íslenskri þýðingu;
„Rödd þeirra hljómaði um alla
jörðina og orð þeirra til enda ver-
aldar.“ Klæðið mun vera frá miðri
16. öld og barst til Kaupmanna-
hafnar á 19. öld.
Guðrún Hadda var tiltölulega
nýflutt í nágrenni Miklagarðs í
Eyjafjarðarsveit þegar hún komst
að tilurð altarisklæðisins. Hún
hafði áhuga á að vinna með klæðið
í sinni listsköpum en langaði til
að fleiri kynntust þessu merki-
lega textílverki og auglýsti eftir
áhugasömum aðilum. Til varð lítill
hópur kvenna um verkefnið og
leiddi Hadda þær í gegnum ferlið
við munsturgerð og að búa til
munstur úr munstri. Afraksturinn
var sýndur i Smámunasafninu í
Sólgarði Eyjafjarðarsveit sumarið
2015 og kenndi þar ýmissa grasa.
Einnig unnu nemendur Hrafna-
gilsskóla myndir út frá klæðinu
sem voru á sýningunni.
Altarisdúkur og átta gólfteppi
Bryndís hafði snemma í ferlinu
fengið þá hugmynd að gera altaris-
dúk og í samráði við sóknarnefnd
Saurbæjarkirkju varð það úr og
einnig að vefa gólfteppi í kirkjuna,
sem Inger og Guðrún Hadda höfðu
frumkvæði að.
Bryndís sótti hugmyndir að
munstri í dúkinn í altarisklæðið
fyrrnefnda frá Miklagarði, en
litirnir í verkin koma úr Saurbæj-
arkirkju. Þó kirkjan sé ómáluð að
innan er málað skrautverk í milli-
gerð og í kringum altarið. Einnig
er predikunarstóllinn málaður.
Blár og rauður eru mest áberandi
litir. Bláa litinn notaði Bryndís
sem grunnlit í altarisdúkinn.
Hún óf efnið sjálf úr einbandi
sem var sérlitað hjá Ístex fyrir
verkið. Munstrið er saumað með
refilsaumi, með einbandi, og valdi
Po s t u l a k l æ ð i ð . Na t i o n a l m u s e e t , K ø b e n h a v n , I n v. No . 15 37 9 , 18 5 6 .