Hugur og hönd


Hugur og hönd - 2019, Blaðsíða 9

Hugur og hönd - 2019, Blaðsíða 9
 2019 HUGUR OG HÖND 9 teiknað mynd af Sigríði í brúðarbúningi með tilheyr- andi koffri, líklega búningnum sem hún hafði borið ellefu árum fyrr þegar hún giftist Ólafi. Búningurinn var ólíkur búningnum á V&A, var til dæmis með rauða svuntu yfir bláu pilsi og hvortveggja lagt borðum neðst. Búningurinn á V&A er líka með lausa svuntu en pils og svunta eru í sama lit, dökkbláum, og með blómstursaumuðum bekk neðst. Af ýmsum ástæðum þróaðist faldbúningur íslenskra kvenna tiltölulega hratt á síðari hluta 18. aldar. Meðal annarra breytinga var að svunta var ekki lengur laus heldur felld inn í pilsið svo að úr varð samfella. Á Þjóðminjasafni er varðveitt blómstursaumuð samfella sem vitað er að var saumuð rétt fyrir aldamótin 1800 af Guðrúnu Skúladóttur (Magnússonar landfótgeta) (1740- 1816). Hún var saumuð fyrir Valgerði Jónsdóttur (1771-1856) í Skálholti, seinni konu Hannesar Finns- sonar (1739-1796) biskups. Elsa bar saman blómstur- sauminn á búningnum á V&A og á samfellunni á Þjóðminjasafni og reyndust bekkirnir vera mjög áþekkir að munstri, litavali og handbragði og ályktaði Elsa að sama konan, það er Guðrún Skúladóttir, hefði saumað eða haft umsjón með saumaskap beggja.8 Sigríðar og Ólafsdætur Eldri dóttir Sigríðar og Ólafs var Þórunn, fædd 1764. Hannes Finnsson, biskupssonur, bjó í Kaup- mannahöfn í tæplega tuttugu ár og var þar mikils metinn fræðimaður. Hann hélt heim árið 1767 þegar faðir hans óskaði eftir því og varð aðstoðarbiskup hans og síðar biskup. Vorið 1780 tók Hannes við öllum búsforráðum í Skálholti og síðar um sumarið kvæntist hann Þórunni Ólafsdóttur.9 Til er skrá um heimanmund Þórunnar og ljóst að þar var ekki verið að gifta kotungs stelpu. Hún fékk tvær góðar bújarðir, alls kyns borðbúnað, rúmfatnað, kistur, reiðtygi, skartgripi, kvensilfur og fatnað. Svo virð- ist að í heimanmundinum geti hafa leynst flestir hlutar V&A búningsins og verður hér fátt eitt nefnt; hempuskildir skreyttir steinum, 24 gyllt hempupör, gyllt víravirkiskoffur með miðstykki skreyttum steinum og stöfunum SMD, gylltur silfurlindi (belti), stór beltispör, hálsfestar, tíu gyllt upphlutsspennsli (krækjur), herðafesti, gylltir ermahnappar með laufum og gylltir svuntuhnappar. Þórunn fékk fimm hempur, þar af eina nýja klæðishempu og átta treyjur, þar af eina með gullstímuðum leggingum, baldýruðum og gullbrydduðum kraga og tvílögð á börmum með ektaborða. Hún fékk sex pils, þar af eitt úr bláu skarlatsklæði og blómstursaumað og þrjú upphlutsföt, eitt þeirra með grænum flauelsupphlut, lögðum með gullborðum.10 Þórunn og Hannes settust að í Skálholti, hann 41 árs, hún 16 ára. Þau eignuðust son árið 1782 en hann lést ári síðar. Ekki voru þetta auðveld ár til búskapar, Skaftáreldar stóðu frá vori 1783 þar til í febrúar 1784 og í kjölfar þeirra móðu- harðindin sem ekki linnti fyrr en árið 1785 en í þeim féll bæði búpeningur og fólk. Talið er að vegna ham- faranna hafi rúmlega fimmtungur þjóðarinnar látist. Í ágúst 1784 riðu yfir jarðskjálftar á Suðurlandi, margir bæir hrundu og Skálholtsstaður lagðist í rúst. Biskupshjónin fluttu til foreldra Þórunnar sem þá Te i k n i n g a f S i g r í ð i M a g n ú s d ó t t u r í b r ú ð a r b ú n i n g i . G æ t i ve r i ð b ú n i n g u r i n n s e m h ú n b a r í e i g i n b r ú ð k a u p i e l l e f u á r u m f y r r, á r i ð 1761 a ð L e i rá .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.