Hugur og hönd - 2019, Side 10
10 HUGUR OG HÖND 2019
voru nýlega flutt frá Sviðholti að Innrihólmi. Þar lést
Þórunn úr bólusótt í febrúar 1786 ásamt nýfæddum
syni. Hannes flutti ekki aftur alfarinn í Skálholt fyrr
en 1787 og kvæntist Valgerði 1789.
Yngri dóttir Sigríðar og Ólafs hét Ragnheiður
(1774-1826) og var tíu árum yngri en Þórunn. Ragn-
heiður gifti sig þrítug að aldri og var sýslumannsfrú
að Leirá þegar Hooker kom þar í heimsókn fimm árum
síðar. Elsa sagði frá því að Sigurður Guðmundsson
(1833-1874) málari hafði punktað það niður í vasa-
bók sína á árunum 1858-1859, og haft eftir tveimur
konum sem þekktu til í Viðey árið 1809, að enskir
hafi fengið klæðnað og góss sem Ragnheiður hafi átt
og passaði lýsing á þessum munum við faldbúninginn
á V&A. Vegna skrifa Sigurðar tengdi Elsa búninginn
við Ragnheiði og taldi að hann gæti hafa verið brúðar-
búningur hennar. Hún gat þess líka að önnur brúður,
það er Þórunn, gæti hafa borið að minnsta kosti hluta
hans. Satt að segja verður það að teljast mun líklegra
að búningurinn hafi verið saumaður á Þórunni þegar
hún gifti sig árið 1780 heldur en fyrir brúðkaup Ragn-
heiðar árið 1804. Reyndar er ekki ólíklegt að árið
1809 hafi Ólafur talið búninginn eign Ragnheiðar,
konunnar sem eftir lifði, Þórunn var löngu látin og
Sigríður fyrir tveimur árum. Það segir hins vegar
ekkert um hverjum búningurinn var ætlaður í upp-
hafi. Og allt gerðist þetta löngu fyrir daga Sigurðar
málara. Annað eins hefur skolast til þegar kona segir
konu eða karli sem aftur punktar í vasabók mörgum
áratugum síðar.
Sagan rakin og getið í eyður
Í brúðkaupi Sigríðar og Ólafs árið 1761 var ekkert til
sparað enda Sigríður einkadóttir ríkasta manns lands-
ins. Þórunn Jarla Valdimarsdóttir lýsir því skemmti-
lega í upphafi ævisögu Skúla fógeta.11 Þarna var allt
helsta fyrirfólk landsins, ekki færra en hundrað og
þrjátíu manns og veislan stóð í viku. Biskuparnir báðir
leiddu brúðina til kirkju, hún hefur verið skartklædd
og borið koffur um faldinn. Hún fékk ríkulegan
heimanmund bæði í fasteignum og lausafé, þar með
hempuskildina sem voru merktir henni. Árið 1772
sýndi Sigríður leiðangursmönnum Banks brúðarskart
sitt og skildina og þeir teiknuðu myndir af.
Ekkert var heldur til sparað þegar Þórunn giftist
aðstoðarbiskupnum í Skálholti árið 1780. Hún fékk
koffur móður sinnar í heimanmund og langt belti
með líku munstri og koffrið. Þá var faldbúningurinn
fagri saumaður á hana samkvæmt gerð þess tíma A n n a r h e mp u s k j ö l d u r S i g r í ð a r M a g n ú s d ó t t u r. Te i k n a ð u r a f
l e i ð a n g u r s m a n n i J o s e p h s B a n k s þ e ga r þ e i r k o m u í S v i ð h o l t á
Á l f t a n e s i á r i ð 1772 .
H e mp a n s e m f y l g d i b ú n i n g n u m t i l E n gl a n d s .