Hugur og hönd - 2019, Blaðsíða 14
14 HUGUR OG HÖND 2019
Á þeim tíma var hann byrjaður
að binda inn bækur fyrir einstakl-
inga og árið 1991 kom hann sér
upp vinnuaðstöðu á Óðinsgötu
25. Árið 1992 stofnaði hann sína
eigin vinnustofu sem hann hefur
rekið síðan, fyrst í gamla Guten-
bergshúsinu í Þingholtsstræti 6 og
svo í Hafnarstræti 18. Árið 2002
keypti Sigurþór bókbandsstofu
Árna Kristmundssonar og flutti
á Hverfisgötu 32 og á Laugaveg
147 nokkrum árum seinna. Hefur
vinnustofan Bókbandsverk verið
þar síðan. Einnig var hann í hálfu
starfi við bókband hjá Seðlabanka
Íslands frá árinu 2004.
Sigurþór hefur að mestu unnið
við vandaðra skinnband fyrir
bókasafnara og lagt sig eftir að
kynna sér íslenska bókbandshefð
og sögu bókbands. Hann hætti
störfum hjá Seðlabankanum um
síðustu áramót og starfar nú ein-
göngu á vinnustofu sinni.
Verðlaun og viðurkenningar
Sigurþór hefur tekið þátt í
keppnum í bókbandi á Norð-
urlöndum, Frakklandi, Ítalíu
og Skotlandi og unnið til fjölda
viðukenninga á því sviði. Í þessum
keppnum er lagt mat á listfræði-
lega- og tæknilega útfærslu á
bókbandinu.
Konunglega bókasafnið í Stokk-
hólmi óskaði eftir því við Sigurþór
árið 2002 að hann myndi binda inn
fyrstu bókina í nýtt bókbandssafn.
Í safninu átti að koma upp sérs-
töku safni með norrænu bókbandi.
Hann varð fyrir valinu eftir að verk
eftir hann birtist í sýningarskrá
frá bókbandssamkeppni á Ítalíu
árið 1998. Bókasafnið hafði nor-
rænt bókband en þó ekki neitt frá
Íslandi. Bókin er um sögu sænskrar
hönnunar. Sigurþór tengir liti
kápunnar bæði við Ísland og Sví-
þjóð með gulum, bláum og rauðum
lit og innan á rauðu kápunni er
útskorin mynd af Absolut vodka
flösku sem er fræg sænsk hönnun,
sannkallað listbókband.
Sigurþór hannaði einnig box
utan um norsku konungssögurnar
sem var gjöf frá Alþingi til norska
þingsins. Bækurnar standa á eins-
konar sleða í botni boxins sem gerir
kleift að draga þær allar út í einu.
Boxinu er lokað með renniloki sem
skreytt er með bókarkápunni.
Bókbandskunnátta hefur líka
verið nýtt til að útbúa box fyrir
bækur, bréfsefni eða aðra hluti svo
sem þjóðbúninga.