Fréttablaðið - 18.04.2020, Side 4
COVID-19 „Ég hef stundum kallað
þetta minnst þekkta útflutningsat-
vinnuveginn,“ segir Ásgeir Pálsson,
framkvæmdstjóri Isavia ANS, sem
annast f lugleiðsögn á hinu víð-
feðma íslenska flugstjórnarsvæði.
ANS veltir að sögn Ásgeirs um tíu
milljörðum króna á ári. Þar af eru
um sjö milljarðar vegna alþjóða-
f lugs sem er að mestu alþjóðleg
flugumferð án viðkomu á Íslandi.
Flugfélögin greiða ANS fyrir
f lugleiðsögu eftir því hversu marga
kílómetra er f logið innan íslenska
svæðisins. Gjaldið byggir á rekstr-
aráætlunum sem gerðar eru fyrir
fram í samráði við f lugfélögin og
sérstaka nefnd hjá Alþjóðaf lug-
málastofnuninni.
„Umferðin hefur dottið niður
alveg þannig að við erum núna
með 15 prósent og jafnvel minna en
var áður. En gjaldið miðar við það
að við héldum að við værum með
dálitla aukningu frá því í fyrra,“
segir Ásgeir.
Þrátt fyrir þetta heldur ANS uppi
fullri þjónustu á sínu svæði með
öll kerfi virk og í gangi og mun fá
væntanlegt tekjutap bætt upp síðar,
þó ekki fyrr en á árinu 2022. „Inn-
koman sem var áætluð í fyrra er
ekki að skila sér. Það hefur auðvitað
áhrif á sjóðstreymi og lausafjár-
stöðu sem þarf þá að brúa á milli,“
útskýrir Ásgeir.
Eins og Ásgeir bendir á rekur ANS
mikilvæga útflutningsgrein þar sem
fyrirtækið hefur mest af sínum
tekjum í erlendri mynt. Hann segir
að engum af um 320 starfsmönnum
hafi verið sagt upp vegna minnk-
andi umsvifa í heimsfaraldrinum
Við þurfum að hafa
allt klárt þannig að
þegar umferðin byrjar að
aukast á ný séum við tilbúin
að sinna henni.
Ásgeir Pálsson,
framkvæmda-
stjóri Isavia ANS
2020 2019
Skírdagur 38 18.793
Föstudagurinn langi 0 15.362
Laugardagur 61 16.722
Páskadagur 0 16.465
Annar í páskum 0 16.859
Páskaflug um Keflavík
Tölfræði fyrir páskana
nú og í fyrra hvað
varðar fjölda farþega
um Keflavíkurflugvöll.
14.03
✿ Daglegt flug um íslenska flugstjórnarsvæðið
500
400
300
200
100
29.0321.03 06.04 13.04
2019: n Flug yfir hafið n Þar af til og frá Íslandi n Innanlandsflug
2020: n Flug yfir hafið n Þar af til og frá Íslandi n Innanlandsflug
Fær tekjuhrunið vegna minna
yfirflugs bætt á árinu 2022
Dótturfélag Isavia, flugleiðsögufyrirtækið Isavia ANS, glímir við sjóðstreymisvanda vegna hruns í alþjóð-
legri flugumferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu. Framkvæmdastjórinn segir ANS hins vegar halda uppi
fullri þjónustu og fá tapið bætt síðar. Enginn af 320 starfsmönnum fyrirtækisins hefur verið látinn fara.
eða starfshlutfall þeirra minnkað.
„En það er engin aukavinna eða
neitt slíkt og ákveðnum hlutum
hefur verið frestað. Síðan eru engar
ráðningar í gangi,“ segir hann. Mikil
óvissa sé um þróun flugumferðar á
næstu mánuðum og því sé unnið að
ýmsum sviðsmyndum.
„Við þurfum að hafa allt klárt
þannig að þegar umferðin byrjar
að aukast á ný séum við tilbúin að
sinna henni,“ segir framkvæmda-
stjóri Isavia ANS.
Isavia ohf., móðurfélag Isavia
ANS, glímir við enn stærri vanda.
„Þegar litið er til þess sem af er
aprílmánuði samanborið við sama
tímabil í fyrra þá er samdrátturinn
orðinn um 99 prósent í farþegum
sem fara um Kef lavíkurf lugvöll,“
segir Guðjón Helgason, upplýsinga-
fulltrúi Isavia.
Guðjón bendir á að Isavia sé með
sterka lausafjárstöðu og geti starf-
að án tekna í um fimm mánuði ef
skrúfað sé fyrir allar fjárfestingar.
„Sviðsmyndagreining okkar gerir
ekki ráð fyrir miklu flugi fyrri hluta
sumars en að það lifni aðeins yfir
á seinni hluta þess, ef ekki verða
frekari áföll. En rétt er að ítreka
óvissuna í stöðunni,“ segir upplýs-
ingafulltrúi Isavia.
gar@frettabladid.is
ÁRA5ÁBYRGÐUMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.FIATPROFESSIONAL.IS • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
FIAT HÚSBÍLAEIGENDUR
ER HÚSBÍLLINN ÞINN KLÁR FYRIR SUMARIÐ?
BJÓÐUM UPP Á SMURÞJÓNUSTU OG LÉTTA ÁSTANDSSKOÐUN FYRIR SUMARIÐ:
• SJÓNSKOÐUN Á BREMSUKERFI OG UNDIRVAGNI
• LJÓS YFIRFARIN
• ÁSTAND HJÓLBARÐA METIÐ OG LOFTÞRÝSTINGUR MÆLDUR
• ÞURRKUR OG RÚÐUSPRAUTUR YFIRFARNAR
• ÁSTAND KÆLIKERFIS METIÐ
• HLEÐSLA RAFKERFIS MÆLD.
ALLIR VINNA – ENDURGREIÐSLA Á VSK Á VINNULIÐ AÐ
LÁGMARKSUPPHÆÐ 25.000 KR. ÁN VSK.
Vigdís Finnbogadóttir
fyrrverandi forseti Íslands
átti stórafmæli
í vikunni, en
hún fagnaði
níu tíu ára
afmæli. Hópur
einsöngvara
og kór ásamt
vinafólki Vig-
dísar safn að ist
saman fyrir utan hús hennar og
heiðraði hana með afmælis- og
þjóðsöngnum. Fleiri Íslendingar
heiðruðu forsetann, þar á meðal
blómaskreytirinn Guðmundur
Þorvarðarson sem reisti henni
blómaskreytta heiðursstöng.
Víðir Reynisson
yfirlögregluþjónn
hvatti lands-
menn til að
sofna ekki á
verðinum og
hlýða áfram
fyrirmælum
yfir valda af ótta
við bakslag. Reglur
um fjarlægðir milli manna og
samkomutakmarkanir gilda til
4. maí.
Yael Farber
leikstjóri
mun leikstýra
sýn ingu í Þjóð-
leikhúsinu sem
byggir á hinum
geysivinsælu
Nap ólí-sögum
eftir Elenu Ferr-
ante. Farber, sem er frá Suður-
Afríku, er margverðlaunuð og
hefur leikstýrt um allan heim,
þar á meðal í stærstu leikhúsum
Bretlands. Sýningin verður
frumsýnd í september.
Þrjú í fréttum
Forseti,
fyrirmæli
og Ferrante
TÖLUR VIKUNNAR 12.04.2020 TIL 18.04.2020
1.754
hafa greinst með COVID-19 á
Íslandi. Þá hafa 1.224 náð bata.
18%
meiri sala var í Vínbúð-
unum yfir páskana í ár
en í fyrra.
56%
nýnema á framhaldsskólastigi
sem hófu nám árið 2014 höfðu
útskrifast árið 2018.
40%
atvinnulausra á Íslandi eru
erlendir ríkisborgarar.
33
þúsund tonn var landaður
þorskafli í marsmánuði.
1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð