Fréttablaðið - 18.04.2020, Page 6
„Ég minni líka á að Alþingi þarf
á einhverjum tímapunkti líka að
veita heimildir fyrir öllum þeim
útgjöldum sem þetta mun hafa í för
með sér,“ bætir Logi við.
Hann bendir á að ríkisstjórnin
hafi hvorki óskað eftir aðstoð
stjórnarandstöðunnar við mótun
aðgerðapakka né veitt henni
síbreytilegar bakgrunnsupplýs-
ingar og sviðsmyndagreiningar.
„Eðlilegra þinghald gæfi okkur þá
að minnsta kosti möguleika á að
kalla eftir þeim í þingsal.“
Stærri þingsalur myndi líka
þýða minni röskun á þingstörfum.
„Jörðin mun halda áfram að snúast
eftir þennan tímabundna skell og
það er mikilvægt að við sinnum
fleiru en bráðaaðgerðum og það er
full nauðsyn á að horfa örlítið fram
fyrir tærnar á sér og jafnvel líta til
framtíðar,“ segir Logi.
Fyrst hugmyndinni hafi verið
hafnað þurfi hins vegar að laga
verklagið að því þrönga rými sem
þinghúsið bjóði upp á. Það þýði
takmarkað þinghald sem skerði
óneitanlega þau réttindi sem stjórn-
arskráin tryggi þingmönnum til að
hafa eftirlit með framkvæmdar-
valdinu. Af þeim sökum sé rétt að
takmarka störfin við allra nauðsyn-
legustu mál tengd COVID-faraldr-
inum en leitast jafnframt eftir því
að gefa þingmönnum færi á að ræða
stöðuna almennt og sinna eftirlits-
hlutverki sínu með fyrirspurnum til
ráðherra.
„Þetta er bagaleg staða, því ef fólk
hefði borið gæfu til að hugsa aðeins
meira skapandi og sýna ögn meiri
víðsýni gæti Alþingi sinnt störfum
sínum og skyldum miklu betur á
þessum skrítnu og erfiðu tímum,“
segir Logi. adalheidur@frettabladid.is
Ásakanir Péturs
Þórs um upplognar
sakir sem átyllu til brott-
rekstrar eiga sér enga stoð í
veruleikanum.
Stjórn Eyþings
Ég benti á Hörpu í
þessu sambandi.
Það hefði verið tilvalið fyrir
forseta að stökkva á þessa
lausn.
Logi Einarsson
Af 43 virkjunarkostum
sem Orkustofnun hefur sent
verkefnisstjórn fjórða
áfanga rammaáætlunar eru
34 í vindorku.
Café
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
STJÓRNMÁL „Ég varpaði þessari
hugmynd fyrst fram í tölvupóst-
samskiptum milli þingmanna, ráð-
herra og skrifstofustjóra þingsins,
fyrir réttum mánuði. Þá var ljóst að
þrátt fyrir viðleitni þingsins væru
verulegir annmarkar á þinghaldi
með tilkomu samkomubanns,“
segir Logi Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar, sem lagt hefur
til að þingstörfin verði flutt í Hörpu.
Logi spurði hvort það hefði verið
skoðað að nota tímabundið annan
og stærri sal þar sem nægt pláss
væri til að gera þær varúðarráð-
stafanir sem mælst er til.
„Ég nefndi Hörpu í þessu sam-
bandi. Það hefði verið tilvalið fyrir
forseta að stökkva á þessa lausn og
nýta sér þær sérstöku aðstæður sem
eru fyrir hendi í fámennu landi og
fáa þingmenn,“ segir Logi.
Hann beindi síðar erindinu til
forsætisnefndar og bað fulltrúa
Samfylkingar í nefndinni að fylgja
málinu eftir.
„Þar hafi hugmyndinni strax
verið hafnað og vísað í að öryggis-
gæsla og atkvæðagreiðslur gætu
verið f lókið úrlausnarefni. Ég vísa
öllu slíku á bug og tel að verandi
komin um fimmtung inn á tuttug-
ustu og fyrstu öldina væri slíkt ein-
falt mál,“ segir Logi.
„Ég hafði og hef enn áhyggjur af
störfum löggjafans og stöðu lýð-
ræðisins við þessar aðstæður,“
segir Logi aðspurður um ástæður
tillögunnar.
Hann nefnir neyðarpakkana sem
ríkisstjórnin hefur lagt fyrir þingið.
„Það er mikilvægt að sem f lestir
þingmenn geti farið vandlega yfir
þá, bæði til að lagfæra frumvörpin
en ekki síður til að sýna aðhald,“
segir Logi en fjöldatakmarkanir í
þingsal hafa gert það að verkum að
aðeins fáir þingmenn geta tekið þátt
í umræðum í þingsal. Samtalið verði
því óumflýjanlega takmarkaðra en
ella um einhverjar stærstu efna-
hagsaðgerðir í sögu lýðveldisins.
Vill færa þinghaldið í Hörpu
Formaður Samfylkingarinnar lagði til að stærri salur yrði fundinn fyrir þingfundi. Hefur áhyggjur af
stöðu lýðræðisins vegna aðstæðna. Tryggja þurfi stjórnarskrárbundinn rétt þingmanna til aðhalds.
Lítil sem engin starfsemi er í Hörpu um þessar mundir vegna samkomubannsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NORÐURLAND Eyþing (nú SSNE),
Samband sveitarfélaga í Eyjafirði
og Þingeyjarsýslum, hafnar mörg-
um af þeim staðhæfingum sem
Pétur Þór Jónasson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri, hélt fram í við-
tali í Morgunblaðinu í vikunni um
starfslok sín.
„Stjórn Eyþings hefur aldrei
sakað Pétur Þór Jónasson um kyn-
ferðislega áreitni á vinnustað,
heldur þurfti stjórn að taka til með-
ferðar kvörtun undirmanns vegna
óviðeigandi og ófaglegra samskipta.
Orðið kynferðisleg áreitni er frá
honum sjálfum komið,“ segir í yfir-
lýsingu stjórnarinnar. Í viðtalinu
sagði Pétur að hann hefði verið kall-
aður á fund í október árið 2018 þar
sem honum hefði verið sagt að upp
væri komið „Me too mál“ á hendur
honum. Ólíkt því sem Pétur heldur
fram segir stjórnin enga sátt hafa
náðst á milli Péturs og undirmanns-
ins sem tilkynnti samskiptin.
Var honum boðinn starfsloka-
samningur á þessum fundi en
endaði málið í uppsögn, málsókn
Péturs gegn Eyþingi og að lokum
dómsátt þar sem Eyþing greiddi
honum tæpar 15 milljónir króna.
Féll stærsti hlutinn, um 9 milljónir,
á Akureyrarbæ.
Í ljósi þess að málinu sé lokið
telur stjórnin „óskiljanlegt að fram-
kvæmdastjórinn fyrrverandi haldi
áfram að flytja málið opinberlega“,
og hafi hún talið sig knúna til að
gera athugasemdir.
Fram haf i komið á mörgum
fundum að Eyþing hafi lengi glímt
við rekstrarvanda og óháð úttekt
var gerð á innra starfinu. „Ásakanir
Péturs Þórs um upplognar sakir sem
átyllu til brottrekstrar eiga sér enga
stoð í veruleikanum.“
Í viðtalinu segir Pétur að reynt
hafi verið að halda trúnað um sátt-
ina, en leynd um málið hafi ekki
verið hans ósk. „Þar sem um mál-
efni starfsmanna Eyþings var að
ræða taldi stjórn rétt að farið væri
með gögn málsins sem trúnaðar-
mál, en aldrei hefur verið farið fram
á að leynd ríki um kostnað,“ segir í
yfirlýsingu Eyþings. – khg
Eyþing hafnar fullyrðingum Péturs
O R KUM ÁL Orkustofnun hefur
sent verkefnisstjórn fjórða áfanga
rammaáætlunar gögn um 43 nýja
virkjunarkosti. Bætast þeir við þá
virkjunarkosti sem skilgreindir
voru í þriðja áfanga.
Til stóð að afgreiða þriðja áfanga
rammaáætlunar á yfirstandandi
þingi en vegna COVID-19 farald-
ursins verður ekkert af því. Orku-
stofnun hefur því ákveðið að
framlengja frest til móttöku virkj-
unarhugmynda í fjórða áfanga um
óákveðinn tíma.
Langflestir hinna nýju virkjunar-
kosta eru í vindorku, eða 34 talsins.
Sjö virkjunarkostir eru í vatnsafli
og tveir í jarðhita. Vegna óvissu
um lagalega stöðu vindorku hefur
Orkustofnun ekki farið sérstaklega
yfir gögnin um þá kosti.
Meðal vatnsaf lskostanna eru
áform Landsvirkjunar um stækkun
Vatnsfellsstöðvar, Sigöldustöðvar
og Hrauneyjafossstöðvar. Saman-
lagt afl stækkunarinnar er 210 MW.
Stærstu einstöku nýju virkjunar-
kostirnir eru Klausturselsvirkjun
og Lambavirkjun en af l hvorrar
virkjunar fyrir sig yrði 250 MW.
Það er vindorkufyrirtækið Zephyr
Iceland sem er á bak við þær hug-
myndir. – sar
Kynna nýja
virkjunarkosti
Vindorka er áberandi í nýju virkj-
unarkostunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI
Forsvarsmenn Eyþings vísa fullyrðingum Péturs á bug. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð