Fréttablaðið - 18.04.2020, Page 18
VIÐ ERUM BÚNIR AÐ
HALDA BÖLL OG TÓNLEIKA
ÚTI UM ALLAR KOPPA-
GRUNDIR EN ÞETTA VIRÐ-
IST KALLA FRAM MIKIÐ
STERKARI VIÐBRÖGÐ.
Stefán hefur fyrir löngu vakið athygli fyrir hæfi-leika sína á tónlistarsvið-inu en hann á ekki langt að sækja færnina enda sonur Magnúsar Eiríks-
sonar, eins ástsælasta lagahöfundar
og tónlistarmanns þjóðarinnar.
Nú þegar stór hluti landans situr
heima og fylgist með tónleikum
Helga Björns og félaga dylst engum
að þarna er á ferðinni einn af okkar
bestu gítarleikurum.
Stefán hefur starfað við tónlist
um árabil og þó að hann hafi lagt
fyrir sig gítarleik er hann liðtækur
á f leiri hljóðfæri. „Já, ég spila nátt-
úrlega líka á bassa og smá á píanó
og smá á trommur,“ segir Stefán
aðspurður og bætir við: „Já, svo á
mandólín og banjó og munnhörpu
en það er aðallega gítarinn sem ég
einbeiti mér að,“ segir hann hógvær.
Kannski hefði verið vænlegra að
spyrja Stefán hvað hann treystir sér
ekki til að leika á: „Ég er ekki sleipur
á saxófóna, trompet og þessi göfugri
blásturshljóðfæri. Ég á svolítið eftir
að stúdera þau.“
Stefán hefur frá árinu 1997 leikið
með hljómsveitinni Geirfuglunum
sem kemur alltaf fram öðru hvoru
og gaf nýverið út geisladiskinn
Hótel Núll, en samstarf hans og
Helga Björns með SSSól og síðar
Reiðmönnum vindanna hófst fyrir
um 17 árum.
Alltaf mikið líf í kringum Helga
„Það er alltaf mjög mikið líf í kring-
um Helga enda sérlega framtaks-
samur og duglegur listamaður sem
er alltaf með eitthvað spennandi á
prjónunum.“ Auk þess að leika með
Helga í tveimur hljómsveitum leika
þeir oft tveir saman í veislum. „Þá
spilum við styttra prógramm, hann
er „aðal“ og ég svona eins og Sancho
Panza,“ segir hann í léttum tón.
Hugmyndin að „Heima með
Helga“ fæddist þegar hljómsveitin
var stödd á Akureyri að spila á
Græna hattinum og umræðan um
samkomuhöft var að hefjast. „Á
leiðinni aftur í bæinn byrjaði sím-
inn hjá Helga að hringja þar sem
verið var að af bóka alls konar tón-
leika og uppákomur á næstunni.
Við félagarnir fórum strax að
ræða það hvernig framhaldið
yrði og þá fæddist þessi hugmynd
hjá Helga að vera með eins konar
streymistónleika á netinu og okkur
leist auðvitað vel á það. Í upphafi
var bara miðað við þetta eina skipti
en svo voru viðtökurnar undir eins
svo góðar að ákveðið var að halda
bara áfram og við erum enn að.“
Eins og partí heima í stofu
Tónleikar eru á dagskránni nú
í kvöld og um næstu helgi. „Við
klárum alla vega samkomubannið
en svo vitum við ekki meira, sjálfir
gætum við haldið áfram enda-
laust.“ Vinsældir uppákomunnar
hafa verið gríðarlegar. „Það óraði
engan fyrir þessum vinsældum og
það hefur verið stórkostlegt að sjá
hversu mikið áhorfið er. Þetta er
Klárum alla vega
samkomubannið
Gítarleikarinn Stefán Már Magnússon hefur vakið verðskuldaða
athygli þegar hann hefur mætt inn í stofu landsmanna undanfarin
laugardagskvöld ásamt Helga Björns og fleiri listamönnum.
Helgi Björns og eiginkona hans Vilborg Halldórsdóttir bregða á leik með
söngkonunni Ragnheiði Gröndal sem var gestur nýlega. MYND/MUMMI LU
orðið stór partur helganna hjá fólki
hvar sem það er statt; hvort sem það
er í heimahúsi, búsett erlendis eða
uppi í sumarbústað. Það er Heima
með Helga á laugardögum og lærið
á sunnudögum,“ segir Stefán.
„Hálfgerður forréttindapési
Stefán hefur ekki farið varhluta
af viðbrögðunum sem hann segir
mun meiri en þeir hafi vanist. „Við
erum búnir að halda böll og tón-
leika úti um allar koppagrundir
en þetta virðist kalla fram mikið
sterkari viðbrögð. Ókunnugt fólk
er að stoppa mann úti á götu og
úti í búð og þakka fyrir þættina.
Það hafa verið mikil forréttindi að
taka þátt í þessu og finna hversu
sterk áhrif þetta hefur haft á fólk. Ef
maður skoðar það í samhengi við þá
tíma sem við erum að upplifa getur
maður ekki annað en hugsað að
maður sé hálfgerður forréttindapési
að geta gert líf fólks skemmtilegra
eða betra á einhvern hátt.“
Mikil leynd ríkir hverja helgi yfir
því hverjir séu gestir Helga og hans
fólks heima í stofu. „Helgi er kaft-
einninn á þessari skútu og sér um
að setja saman dagskrá hvers þáttar.
Leynigestirnir eru í raun leynigestir
fyrir okkur í hljómsveitinni líka
alveg fram að deginum fyrir tón-
leika þegar við mætum á æfingu,“
segir Stefán, sem er sannfærður um
að hluti vinsældanna sé fjölbreytni
gestavalsins að þakka.
Nánar á frettabladid.is
Stefán Már hefur leikið með Helga Björns í um 17 ár en segir viðbrögðin aldrei hafa verið eins sterk og við stofutónleikunum. MYND/MUMMI LU
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Þúsund og ein nótt
Ókeypis um tíma
Hlusta.is
1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN