Fréttablaðið - 18.04.2020, Page 22
EÐLILEG INNTAKA FULL-
VAXTA KARLMANNS ER
3,5-4 LÍTRAR Á DAG EN
KONUR ÆTTU AÐ TAKA TIL
SÍN Á BILINU 2-3 LÍTRA.
STUNDUM KOMA VERK-
IRNIR EKKI FRÁ ÞEIM STAÐ
SEM GEFUR EINKENNIN
OG UPPRUNI VANDANS ER
Á ÖÐRUM STAÐ.
Vissir þú að það eru til fjórar tegundir kláða?Sá algengasti er tengdur
bólgum eða áreiti í húð og oftar
en ekki tengdur sýnileika exems,
sýkinga eða breytinga í húð líkt og
útbrota.
Taugakláði tengist miðlægra og
úttauga sem tengjast því svæði þar
sem kláðinn finnst. En það dugar oft
lítið að klóra sér þar sem vandinn er
ekki beinlínis á þeim stað sem þig
klæjar á. Þetta er þekkt til dæmis
eftir veirusjúkdóm eins og herpes
eða ristil, eða þrengingar og bólgur
við taugar. Kláðanum fylgir oft dofi
og/eða verkir á sama svæði.
Þriðja tegund kláða er tengd und-
irliggjandi sjúkdómum og breiðist
ekki um eitt svæði heldur allan lík-
amann og getur verið erfitt að með-
höndla. Slíkt getur gerst við illkynja
mein, lifrarsjúkdóma og nýrnabilun
svo dæmi séu tekin.
Fjórða tegund kláða er kölluð
geðrænn kláði og tengist oftar en
ekki undirliggjandi andlegum sjúk-
dómum líkt og þunglyndi, kvíða og
ýmsum persónuleikaröskunum.
Nauðsynlegt er að finna hina
réttu orsök og reyna að uppræta
hana. Kláðastillandi lyf og krem
duga oft ekki til og er því mikilvægt
að reyna að átta sig á eðli kláðans og
ráðast að undirrót eins og hægt er.
Sem betur fer er það svo í læknisfræði líkt og ann-ars staðar að það sem er algengt er algengt en það eru ansi margir sebra-hestar líka í þessu sam-
hengi sem þarf að horfa til.
Kviðnum er alla jafna skipt upp
í 4-5 svæði sem eru vinstri efri og
neðri, hægri efri og neðri og neðri
huti kviðar. Almennt er talað um að
skiptingin milli efri og neðri hluta
kviðar sé við naflahæð og miðlínu
kviðarins. Þegar einstaklingur
kvartar um verki í kvið er mikil-
vægt að átta sig á samhengi þess við
til dæmis matarinntöku, hægðalos-
un, blæðingar og tíma dags. Komu
verkir skyndilega eða hægt og bít-
andi, eru verkirnir krampakenndir
eða stöðugir, fylgir þeim hiti, ógleði,
uppköst eða niðurgangur og svo
framvegis? Læknar nota síðan líf-
færafræðina og ofangreinda upp-
skiptingu til að reyna að átta sig á
því um hvaða líffæri kann að vera
að ræða. Stundum koma verkirnir
ekki frá þeim stað sem gefur ein-
kennin og uppruni vandans er
á öðrum stað og jafnvel ekki frá
kviðarholi, svo dæmi séu tekin.
Það er því ákveðin saga sem þarf
að koma fram, tímarammi ein-
kenna og svo auðvitað skoðun á
kviðnum sem getur gefið fyrstu
vísbendingu um hvaða vandi
steðjar að. Við höfum svo marg-
víslega tækni til að aðstoða okkur
frekar við greininguna og má þar
nefna fyrst auðvitað þvag- og blóð-
rannsókn, ómskoðun af kviðarholi,
röntgen og svo tölvusneiðmyndir.
En það getur líka þurft að fram-
kvæma skurðaðgerð til að átta sig á
eðli verkja þar sem öll önnur tækni
dugar ekki til.
Þau líffæri sem tengjast mismun-
andi hlutum kviðar og eru algeng-
ust eftir svæðum eru eftirfarandi.
Hægra megin ofan til eru lifur, gall-
blaðra, smáþarmar, magi, ristill.
Vinstra megin ofan til er aftur magi
og neðri hluti vélinda, smágirni,
ristill, bris og milta. Oft eru nýru,
nýrnahettur og þvagleiðarar talin
til en þau liggja ekki í kviðnum
heldur í raun í hólfum fyrir aftan
kviðinn, en gefa oft einkenni sem
leiða fram í kvið og nára. Í neðri
fjórðungi hægra megin er botn-
langinn, ristill, innri líffæri kvenna
og vinstra megin neðan til er einn-
ig ristillinn og hluti innri líffæra
kvenna auk þvagblöðru sem liggur
miðlægt um neðanverðan kviðinn
milli legs og ristils hjá konum eða
Greiningar kviðverkja
Það eru mörg líffæri í kvið okkar sem geta valdið óþægindum, því getur á stundum
verið snúið að átta sig á því hvaða vandi er á ferð og þá hvaða meðferð skuli beita.
Of flókið og
yfirgrips-
mikið er að
fara í gegnum
allar mögulegar
orsakir en ljóst
er að sýkingar,
bólgur, nýrna-
og gallsteinar
eru algengastar.
Mjög hátt meira en 8
Hátt á bilinu 6-8
Viðunandi fyrir flesta minna en 6
Æskilegt minna en 5
Æskilegt er að HDL sé meira en 1,1
mmól/lítra og þríglýseríð ættu að
vera undir 1 mmól/lítra
Heimild: Hjartavernd
Kólesteról í
kroppnum
Einhver munur er milli kynjanna hvað varðar fitumagn og fleiri þætti. Vökvi er mikilvægur
fyrir líkama okkar til að halda virkni
hans í lagi, jafnvægi í saltbúskap og
uppleystum efnum og er líkaminn
gæddur þeim einstaka hæfileika
að stýra vökvabúskapnum nokkuð
sjálfur. Við þurfum lítið að hugsa
um það í raun, nýrun, húðin og önd-
unarfærin eru þau líffæri auk melt-
ingarvegar sem fyrst og fremst koma
þar til og hafa áhrif þarna á.
Við finnum vel fyrir því ef okkur
vantar vökva, talsverð brenglun
getur þá orðið á líðan, meðvitund
og ýmsum f leiri þáttum og ef
vökva skortur verður verulegur er
jafnvel hætta á meðvitundarleysi
og dauða. Þá má ekki gleyma því
að við getum verið ofvökvuð og í
vandræðum með að stilla vökva-
magn líkamans af með oftar en ekki
dramatískum afleiðingum. Þeir sem
eru hraustir eiga venjulega ekki í
vanda, líkaminn nemur þegar hann
Vökvabúskapur okkar
Það er ágæt regla að miða við að drekka fjögur til átta vatnsglös á dag.
Teitur
Guðmundsson
læknir
Viðmiðunarmörk heildar-
kólesteróls (mmól/lítra)
vantar vökva og lætur okkur vita.
Við verðum þyrst og drekkum eða
neytum matar sem inniheldur oft-
sinnis mikið vökvamagn. Hitastýr-
ing líkamans fer að hluta í gegnum
vökvatap eins og svita og kælingu
húðar, þá passa nýrun upp á það að
skilja út það sem er ekki þörf á.
Til eru sjúkdómar sem geta auð-
veldlega sett allan þennan búskap
úr skorðum, þeirra algengastir eru
uppköst og niðurgangur, almenn
veikindi, nýrnabilun, hjartabilun
svo stiklað sé á stóru. Áfengi eykur
útskilnað og lyf geta haft hvora
virknina sem er. Það er mikilvægt
að passa upp á vökvainntöku sína,
þau tæki sem stýra þorsta dofna
með aldrinum svo það getur verið
mikilvægt að halda vel vökva að
hinum öldruðu.
Það er eðlilegt að spyrja sig hvað
sé eðlileg inntaka vatns á dag fyrir
hraustan einstakling? Töluvert
kemur með fæðu eins og ávöxtum
og grænmeti og stór hluti prótein-
ríkra matvæla er vatn líkt og í fiski
eða kjöti. Þá drekkum við einnig
ýmiss konar vökva, kaffi, vatn og
gos, yfir daginn. Eðlileg inntaka
fullvaxta karlmanns er 3,5-4 lítrar
á dag en konur ættu að taka til sín
á bilinu 2-3 lítra. Það fer auðvitað
samt allt eftir stærð einstaklinga
og undirliggjandi ástandi. Þetta er
heildarinntaka í mat og drykk og
getur breyst með aukinni hreyf-
ingu og öðrum umhverfisþáttum.
Það er ágæt regla að miða við að
drekka 4-8 venjuleg glös af vatni á
dag til viðbótar við matarinntöku
og við erum einstaklega lánsöm hér
á Íslandi að eiga gnægð vatns sem er
líka besti svaladrykkurinn.
Kláði
nálægt blöðruhálskirtli karla. Of
f lókið og yfirgripsmikð er að fara í
gegnum allar mögulegar orsakir en
ljóst er að sýkingar, bólgur, nýrna-
og gallsteinar eru einna algengastar.
Blæðingar, tappar, uppásnúningar
líffæra líkt og eggjastokka eru einn-
ig ástæður.
Þetta er ekki tæmandi yfir það
sem getur skapað kviðverki, en
þekkt er til dæmis að lungnabólga
sem situr neðarlega getur skapað
verki í kvið og hefur til dæmis leitt
til þess í yfirstandandi kóróna-
veirufaraldri að sjúklingar hafa
kvartað um kviðverki sem reynd-
ust vera allt annað. Iðulega leitar
fólk læknis þegar um kviðverki
er að ræða sem eru sterkir og við-
komandi kannast ekki við að hafa
fengið áður og leitar eftir greiningu.
Aðrir fá reglulega kviðverki og venj-
ast þeim til dæmis líkt og verkjum
sem tengjast blæðingum, bólgu-
sjúkdómum í ristli og f leiri. Það er
þó alltaf góð regla að fá endurmat
á slíkum verkjum þar sem undir-
liggjandi ástæður geta breyst og/
eða þróast til hins verra og einnig
ef breyting verður á.
NAUÐSYNLEGT ER AÐ
FINNA HINA RÉTTU ORSÖK
OG REYNA AÐ UPPRÆTA
HANA.
1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð