Fréttablaðið - 18.04.2020, Page 29

Fréttablaðið - 18.04.2020, Page 29
Gjaldkeri Nánari upplýsingar: Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2020 Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is RARIK ohf. er hlutafélag í eigu ríkisins með meginstarfsemi í dreifingu raforku auk þess að reka fimm hitaveitur. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar vítt og breitt um landið. RARIK hefur á undanförnum áratugum unnið jafnt og þétt að uppbyggingu rafdreifikerfisins og er nú svo komið að um 65% þess er jarðstrengir. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þess www.rarik.is Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um. • Menntun sem nýtist í starfi • Reynsla af gjaldkerastarfi og bókhaldi • Gott tölulæsi • Nákvæmni og skipuleg vinnubrögð • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi • Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar • Greiðsla reikninga • Millifærslur • Afstemmingar • Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfniskröfur: Helstu verkefni: RARIK óskar eftir að öflugan aðila í starf gjaldkera. Um fullt starf er að ræða og er starfsstöðin í Reykjavík. Faxaflóahafnir sf. auglýsa laust til umsóknar starf hafnarstjóra. Hafnarstjóri er framkvæmdastjóri Faxaflóahafna, ber ábyrgð á daglegum rekstri og leiðir starfsemi Faxaflóahafna í samráði við stjórn. Hlutverk hans er að stuðla að stöðugum umbótum í takt við framsækna og nútímalega hafnarþjónustu. Leitað er að leiðtoga með gott orðspor, getu til að takast á við margvíslegar aðstæður og brennandi áhuga á verkefnum Faxaflóahafna. HAFNARSTJÓRI Ábyrgðarsvið hafnarstjóra • Daglegur rekstur félagsins í umboði hafnarstjórnar • Yfirmaður allra starfsmanna Faxaflóahafna • Ábyrgð á að fjárhags- og fjárfestingaáætlun sé fylgt og ábyrgð á fjárreiðum félagsins • Samskipti og upplýsingagjöf til hafnarstjórnar • Samskipti við eigendur, sveitarstjórnir, ríkisvaldið og atvinnulífið • Vinnur störf sín að öðru leyti í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnarreglugerða og samþykktir hafnarstjórnar Menntunar- og hæfnikröfur • Víðtæk reynsla af stjórnun og rekstri, þar með talið breytingastjórnun • Reynsla af stjórnun viðamikilla verkefna og áætlana • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi • Þekking á opinberri stjórnsýslu, hafnamálum, skipulags- og umhverfismálum æskileg • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri • Leiðtogahæfni og færni til að hvetja aðra til samstarfs og samvinnu • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum • Hæfni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti á íslensku og ensku. Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur Faxaflóahafnir sf. eru sameignarfélag í eigu fimm sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar sem er stærsti eigandinn, Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar, Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Faxaflóahafnir sf. eiga og reka fjórar hafnir, Reykjavíkurhöfn, Grundartangahöfn, Akraneshöfn og Borgarneshöfn. Hjá fyrirtækinu vinna um 70 manns en Faxaflóahafnir sf. annast almenna hafnarþjónustu við skip og eiga m.a. fjóra dráttarbáta. Allar nánari upplýsingar má finna á www.faxafloahafnir.is Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl nk. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á hagvangur.is. Mest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.