Fréttablaðið - 18.04.2020, Page 46
LEGO framleiðir
13.500 grímur á
dag, en segist geta aukið
fjöldann í 58 þúsund
grímur á dag.
Tæknisinnaða lamadýrið Paco á
Zoom-vinnufundi.
Dýraverndunarsvæði að nafni Sweet Farms, í Sílí-kondal Bandaríkjanna,
býður nú upp á afar nýstárlega
þjónustu. Þessi nýja þjónusta er
hugsuð til þess að vinna á móti
tekjuskerðingu garðsins vegna
lokana af völdum COVID-19.
Þjónustan nefnist „Goat 2 Meet-
ing“ eða Geit á fundinn, og felur í
sér að gegn tæplega 15.000 króna
gjaldi er hægt að fá lamadýr, geit
eða annað húsdýr úr garðinum til
þess að taka þátt í Zoom-fjarfundi.
Þá er gestafjöldi fundarins ótak-
markaður og umsjónarfólk dýra-
garðsins lofar að þessi óvænti gest-
ur muni gleðja samstarfsfólkið á
fundinum ótæpilega. Einnig býður
garðurinn upp á úrval af einka-
eða hópleiðsögn um garðinn sem
fara fram í gegnum netið í beinni
útsendingu.
Lamadýr á Zoom
vinnufund?
Grace Kelly ásamt eiginmanni
sínum. MYND/GETTY
Það eru fáar stjörnur sem skinið hafa jafn skært og leik-konan Grace Kelly sem var
áberandi í myndum Alfred Hitch-
cock um miðbik síðustu aldar.
Árið 1956 kynntist hún verðandi
eiginmanni sínum, Rainier 3.
fursta af Mónakó, þar sem þau
voru stödd á kvikmyndahátíðinni
í Cannes. Þau felldu hugi saman
og voru gefin saman í borgara-
legri athöfn þann 18. apríl, 1956 og
daginn eftir, þann 19. apríl, var hið
formlega brúðkaup. Það eru því nú
liðin slétt 64 ár frá brúðkaupinu
sem var lýst sem „Brúðkaupi
aldarinnar“ á sínum tíma. Sýnt var
frá brúðkaupinu í sjónvarpi og eru
30 milljónir taldar hafa fylgst með
viðburðinum. Meðal gesta voru
Cary Grant og Ava Gardner. Frank
Sinatra var boðið en hann lét þó
ekki sjá sig.
Brúðkaup
aldarinnar
Danski leikfangaframleið-andinn LEGO leggur sitt af mörkum í baráttunni gegn
COVID-19 með því að framleiða
hjálmgrímur fyrir heilbrigðis-
starfsfólk. Fyrirtækið tilkynnti
þetta nýlega á Instagram- og
Twitter-reikningum sínum.
Samkvæmt myndbandi frá
leikfangaframleiðandanum sem
birtist á Twitter var sex mótunar-
vélum í verksmiðju LEGO í
Billund breytt, þannig að nú fram-
leiða þær eingöngu hjálmgrímur.
LEGO framleiðir 13.500 grímur á
dag, en segist geta aukið fjöldann í
58 þúsund grímur á dag.
Hjálmgrímurnar eru hluti af
hlífðarbúnaði heilbrigðisstarfs-
fólks sem sinnir sjúklingum sem
eru sýktir af COVID-19 og það
er mikil þörf á þeim um þessar
mundir.
LEGO segir að grímurnar hafi
þegar verið samþykktar af sjúkra-
húsum og að það sé búið að panta
50 þúsund grímur. Það stendur
svo til að hefja framleiðslu á grím-
unum í f leiri verksmiðjum LEGO
og á að byrja í Ungverjalandi.
LEGO framleiðir hjálmgrímur
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R