Fréttablaðið - 18.04.2020, Síða 50
Hugmyndin varð til árið 2016 þegar ég hafði lesið bókina Gæfuspor – gildin o k k a r – e f t i r Gunnar Hersvein,
og notað hana til að vekja athygli
níu ára dóttur minnar á ýmsum
gildum í lífinu, þó bókin sé ætluð
fullorðnum,“ segir Helga Björg
Kjerúlf hönnuður. Hún er meðal
þriggja höfunda nýrrar bókar sem
nefnist Heillaspor – gildin okkar
– sem sniðin er að börnum. Hinir
höfundarnir eru Gunnar Hersveinn,
heimspekingur og rithöfundur, og
Hera Guðmundsdóttir hönnuður
sem teiknaði myndirnar.
Helga Björg kveðst hafa sett sig
í samband við Gunnar Hersvein
og sagt honum frá reynslu sinni af
uppeldisgildi Gæfuspora og stungið
upp á að hann skrifaði áþekka bók
fyrir börn. „Hann tók ekkert undir
það í fyrstu en sendi mér svo bréf
þar sem hann sagðist vera til í að
skrifa þessa bók ef ég tæki þátt í því
með honum. Svo fengum við Heru
til liðs við okkur því hún er svo
klár að teikna. Úr þessu varð góður
vinskapur og þó við Hera dyttum
út úr samstarfinu til skiptis vegna
fæðinga og barnastúss gáfumst við
þremenningar aldrei upp á verk-
efninu heldur leyfðum því að taka
sinn tíma.“
Gullna reglan sígild
Spurð um eftirlætiskafla eða -þætti
í bókinni svarar Helga Björg: „Sam-
líðun er meðal þeirra gilda sem mér
finnst skipta miklu máli í uppeldi
barnanna minna. Að spyrja spurn-
inga eins og: „Hvernig mundi þér
líða ef þetta væri gert við þig? Í því
gildi felst sú gullna regla að koma
fram við aðra eins og þú vilt að
komið sé fram við þig. Það á vel við
í ástandinu sem ríkir núna, maður
verður að taka á þolinmæðinni þó
maður komist ekki strax að kass-
anum í Krónunni en maður má
ekki láta það bitna á starfsfólkinu
né öðrum í búðinni.
Svo er það kaf linn um þakk-
lætið. Dóttir mín var tíu ára þegar
við vorum að móta hann. Ég spurði
hana hvað hún væri þakklát fyrir.
„Æ, ég veit það ekki,“ var fyrsta
svarið. Við vorum nýkomnar frá
útlöndum og svona tveimur dögum
seinna sagði hún. „Jú, mamma ég
er ótrúlega þakklát fyrir íslenska
vatnið. Vá, hvað við erum heppin
með það.“ Við eigum ekki að taka
öllu sem sjálfsögðum hlut og erum
minnt á það núna á hverjum degi.
Þakklæti á að vera efst í hugum
okkar – bæði fyrir heilsuna og heil-
brigðiskerfið.“
Heimspeki á mannamáli
Gunnar Hersveinn kveðst þakk-
látur Helgu Björgu fyrir þá hug-
ljómun sem hún fékk um að gera
bók í líkingu við Gæfuspor en með
aðeins léttari texta svo hún höfðaði
til barna og ungmenna. „Það var
líka frábær hugmynd að fá Heru
til að myndskreyta bókina. Helga
Björg kallaði okkur á fund og við
tókum ákvörðun um að takast á við
þetta verkefni, ég fór að skrifa texta
og Hera að teikna myndir. Svo var
endurskrifað og teiknað og valið úr
og að lokum unnum við efnið með
ritstjóra hjá JPV útgáfu. Það kom
einkum í hlut Helgu Bjargar að sjá
um uppsetningu og hönnun þessa
kvers, þannig að allt í allt tók ferlið
þrjú ár, sem sýnir bara að við vönd-
uðum okkur.“
Hann leggur áherslu á að efni
bókarinnar sé aðgengilegt bæði
fyrir börn og fullorðna. „Við viljum
meina að Heillaspor sé skemmtileg
bók og holl lesning á heimilum
fjölskyldufólks enda alltaf hægt
að grípa niður í hana hvar sem er. Í
henni er heimspeki á mannamáli
þannig að níu ára getur algerlega
lesið hana og notið þess. Bókin er
líka góð fyrir foreldra að lesa fyrir
börn og eiga samtal við þau um
efnið. Í henni er til dæmis kafli um
vináttu. Þá er hægt að lesa hann og
síðan að spjalla saman um hvernig
vinur maður sé og velta fyrir sér
hvernig maður ætti helst að gleðja
vini sína. Hverjum kaf la fylgir
það sem við köllum hugarljós,
það eru einfaldar núvitundarhug-
leiðingar.“
Höfðu börn sem gagnrýnendur
Gunnar segir höfundana alla hafa
haft börn í kringum sig sem gagn-
rýnendur. „Hvert okkar hafði
aðgang að börnum og bað þau að
lesa og gera athugasemdir. Helga
Björg naut aðstoðar dóttur sinnar
sem eiginlega var hvatinn að því að
við hófum þessa vegferð og ég var
með heimspekitíma með börnum
og prófaði efni bókarinnar þar. Ég
veit að Hera gerði tilraunir með það
líka, til dæmis í vinahópum, þann-
ig að við erum búin að meitla þetta
efni.“
Efni bókarinnar er ekki byggt
á sögum úr daglegu lífi heldur er
fjallað þar um hugtök eins og gleði,
þakklæti, vináttu, hugrekki, sam-
líðun eða samkennd, fyrirgefn-
ingu, virðingu og náttúruást. „Við
reynum að vekja áhuga á hverju
hugtaki fyrir sig og fjalla um það á
skiljanlegan og skemmtilegan hátt,“
útskýrir Gunnar.
Kaf linn um þakklætið hefst
svona: „Þakklæti er mikilvæg til-
finning sem þarf að birtast í sam-
skiptum fólks. Það er fallegt að
þakka fyrir lífið og tímann sem
okkur er gefinn. Við bendum einnig
á hversu mikilvæg góðvildin er því
hún er dyggð alls mannkyns og er
nátengd farsælu lífi.“
Þakklæti á að vera
efst í hugum okkar
Allir þekkja þríeykið sem leiðir þjóðina nú gegnum lífshættulegan
tíma. Annað gott þríeyki, Helga Björg Kjerúlf, Gunnar Hersveinn
og Hera Guðmundsdóttir, hefur gefið út bókina Heillaspor – gildin
okkar – sem hjálpar börnum að rækta góðar dyggðir til framtíðar.
Ef ung manneskja stæði fyrir
framan spegil og segði: „Spegill,
spegill, herm þú mér … hver er
ég?“ Þá myndi spegillinn svara:
„Sýndu hugrekki og gerðu
tilraunir í lífinu og þú munt upp-
götva hver þú verður.“
Hugrekki birtist oft þegar
manneskja gerir það sem hún vill
og langar til að gera, þrátt fyrir að
finnast það ekki auðvelt.
Hvernig eflum við hugrekki?
Í ævintýrum birtist hugrekki oft
hjá ólíklegri hetju sem finnur
nýjar leiðir að markinu. Hún
er ekki fífldjörf og ekki skræfa
heldur finnur jafnvægi þarna á
milli.
Sú manneskja sem finnur ekki
til ótta og gerir hættulega hluti
að óþörfu sýnir fífldirfsku og sú
sem þorir ekki að segja sannleik-
ann eða að bregðast við órétt-
læti, en lætur þess í stað óttann
sigra sig, er skræfa.
Fólk getur lært hug-
rekki með því að feta
sig skref fyrir skref í átt
til þess sem það óttast.
Með því að gera litlar til-
raunir áður en það stígur
skrefið til fulls. Með því
að búa sig undir að mæta
ógninni og ímynda sér
hvernig best er að hegða
sér.
--------
Hugrekki sem heillaspor
Hver sem er getur orðið hugrökk
hetja. Lína Langsokkur, sögu-
hetja Astridar Lindgren, er bæði
hugrökk og blátt áfram. Hún
er vissulega sterk og getur lyft
hesti en hún er einnig sniðug og
uppátækjasöm og stekkur yfir
allar hindranir sem verða á vegi
hennar.
Hugrekki er bæði
kraftur og hugvit. Hug-
rekki hjálpar fólki til að
verða heilt og heilbrigt
og láta drauma sína
rætast.
Að þora að segja
skoðun sína, að þora
að standa með vinum
sínum eða ókunnugum,
það er gefandi. Til eru
mörg falleg orð yfir þessa
dyggð, til dæmis „hjarta-
prúður“ og „hughraustur“.
Hugrökk manneskja byggir upp
sterka sjálfsmynd því hún kemst
yfirleitt þangað sem hún vill fara.
Sú sem sýnir hugrekki verður sátt
við sjálfa sig og aðra – ef hún er
jafnframt sanngjörn.
Gunnar Hersveinn og Helga Björg Kjerúlf. Þriðji höfundurinn, Hera Guðmundsdóttir, er úti í Frakklandi og er því ekki með í þetta sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð