Fréttablaðið - 18.04.2020, Qupperneq 58
„Of sein, of sein,“ sagði
Kata pirruð og hermdi e ir
áhyggjurödd Konráðs. „Ég
er búin að heyra þetta væl
alveg nógu o og nenni
ekki að heyra það einu
sinni í viðbót,“ bætti hún
við. „En okkur liggur á,“
sagði Konráð bIðjandi
og bar sig aumlega. „Það
gerir ekkert til að vera of
sein,“ sagði Kata. „ En það
er gaman að reyna að
komast í gegnum
völundarhús,“ bætti
hún við og bretti upp
ermarnar. „Koma svo,
inn með ykkur og
reynið nú að týnast
ekki. Ég nn réttu
leiðina, sannið
þið til,“ sagði
Kata roggin
um leið og hún
arkaði inn í dimm
göng völundarhússins.
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
400 Getur þú fundið leiðina í gegnum völundarhúsið??
?
?
?
Björgvin Smári Sævarsson er sjö
ára – en alveg að verða átta ára.
Lífið er ekki hefðbundið hjá honum
þessa dagana, meðan bannsett
kóróna veiran er á kreiki, frekar en
hjá mörgum öðrum í samfélaginu.
Hvernig er þinni skólagöngu
háttað núna Björgvin? Ég er í
skólanum frá klukkan 10.00 til
13.40 annan hvern dag. Síðan fæ
ég að fara í frístund í Laugaseli einu
sinni í viku.
Hvað gerir þú á daginn þegar þú
ert ekki í skólanum? Ég les í hálf-
tíma, fer svo út í garð að hoppa á
trampólíninu mínu og spila fót-
bolta. Stundum fer ég að hitta
frænku mína Dagmar og þá förum
við í göngutúr að skoða hestana.
Hvernig líkar þér þetta fyrir-
komulag? Mér líkar þetta ekkert
svo vel, því mér finnst gaman í
skólanum mínum.
Hvert er eftirlætis fagið þitt þar?
Mér finnst gaman að lesa og svo
finnst mér líka gaman í stærðfræði
og íþróttum.
Ertu í einhverjum aukatímum
utan skólans þegar allt er eðli-
legt? Já, þá er ég að æfa körfubolta
með Ármanni tvisvar í viku og það
er rosa gaman.
Hefur þú getað leikið þér við alla
vini þína undanfarið? Nei, það get
ég ekki því að þeir eru í skólanum á
öðrum tímum en ég.
Áttu þér uppáhalds tölvuleik? Já,
hann heitir Minecraft.
Hvaða matur finnst þér bestur?
Grjónagrautur.
En nammi? Uppáhaldsnammið
mitt er kókosbolla.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Mála og fara út að leika
og spila fótbolta með bræðrum
mínum.
Þekkir þú einhvern sem býr úti á
landi? Já, amma mín, hún Hildur
og afi Guðmundur eiga heima í
Hveragerði. Síðan á ég frænkur á
Bakkafirði sem heita Freydís og
Rósa.
Ertu eitthvað farinn að skipu-
leggja hvað þú ætlar að gera í
sumar? Ég ætla að fara í sumar-
bústað á Þingvöllum og svo ætlum
við í fjölskyldunni minni að vera
dugleg að fara í ferðalög með hjól-
hýsið.
Hvað er það fyndnasta sem þú
hefur lent í? Þegar ég hoppaði í
sjóinn á Bíldudal og hann var rosa-
lega kaldur.
Hvaðan hoppaðir þú? Af bryggj-
unni. Það var fullt af stórum
krökkum að hoppa í sjóinn. Mig
langaði að prófa líka, sjórinn var
bara miklu kaldari en ég hélt.
Hoppaði í
sjóinn á Bíldudal
Björgvin Smári hefur ekki getað leikið við alla vini sína undanfarið því þeir
eru í skólanum á öðrum tímum en hann. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÉG LES Í HÁLFTÍMA…
FER SVO ÚT Í GARÐ AÐ
HOPPA Á TRAMPÓLÍNINU MÍN
OG SPILA FÓTBOLTA…. STUND-
UM FER ÉG AÐ HITTA FRÆNKU
MÍNA DAGMAR OG ÞÁ FÖRUM
VIÐ Í GÖNGUTÚR AÐ SKOÐA
HESTANA.
Hvað hefur sex fætur
og flýgur?
Af hverju
stendur
styttan af
Jóni Sigurðs-
syni á Aust-
urvelli?
Hver er munurinn á því
að borða hnetusmjör
og fíl?
Af hverju lakkaði
fíllinn táneglurnar á sér
rauðar?
Gríngátur
Þessi sæta páskaungamynd er eftir
Sigurbjörgu Hoffritz, sex ára.
Listaverkið
Norn sem gefur kettinum sínum far.
Af því hann getur ekki
sest niður.
Fíll festist ekki við góminn.
Til að geta falið sig í jarðarberjarunna.
1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR