Fréttablaðið - 18.04.2020, Qupperneq 68
Lífið í
vikunni
12.04.20-
18.04.20
EINN STÆRSTI
UPPHAFSMAÐUR
ÞESSARAR SENU ER HINN
ALRÆMDI OG ILLRÆMDI
MORÐINGI OG NASISTI VARG
VIKERNES.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Ef maður er að gera svona þunglamalega, þung-lyndislega tónlist þá skemmir alla vega ekki fyrir að þurfa að vera að vakta þennan heims-
endi sem vofir yfir okkur í þessu
ótrúlega ástandi,“ segir fréttamað-
urinn Þórgnýr Einar Albertsson
sem gaf nýlega út sína fyrstu hljóm-
plötu, Depths.
Tónlistin sem Þórgnýr semur og
spilar á sína stafrænu hljóðgervla er
kennd við „dungeon synth“ og fellur
í eðli sínu ágætlega að þeim drunga
sem liggur yfir heimsbyggðinni og
tónlistarmaðurinn flytur reglulega
fréttir af á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni.
Þar hefur hann, eins og á Fréttablað-
inu, helst sinnt erlendum fréttum
sem hann flytur einbeittri en flau-
elsmjúkri röddu.
Dundað við dauðarokk
„Ég hef bara verið að dunda mér
eitthvað við þetta svona í hjáverk-
um og byggt upp einhvern lager af
þekkingu og efni en hef í raun ekk-
ert gefið út fyrr en núna,“ segir Þór-
gnýr um Depths sem er aðgengileg
á thorgnyr.bandcamp.com og mun
með tíð og tíma skila sér á Spotify og
fleiri streymisveitur.
„Ég er sem sagt búinn að birta
þessa einu plötu og ég á efni inni,“
segir Þórgnýr sem liggur með aðra
fullkláraða „synthaplötu“ tilbúna.
„Ég er bara að bíða eftir að hlaða
henni upp og er sömuleiðis með
einmennings dauðarokksplötu í
vinnslu akkúrat núna.
Þetta er auðvitað engin stór
útgáfa,“ segir Þórgnýr sem þarf þó
ekkert að kvarta yfir viðtökunum.
„Þær hafa bara verið þokkalegar en
þetta er hvorki stærsta sena í heimi
né stærsti markhópurinn og það
skiptir ekki öllu máli. Þetta er ekki
að borga reikningana mína og mun
aldrei gera það.“
COVID-þrýstingur
„Mér finnst ósköp fínt að hafa
algjöra listræna stjórnun á þessu
öllu saman,“ segir Þórgnýr sem
semur tónlist sína ekki undir efna-
hagslegum þrýstingi en neitar því
hins vegar ekki að veirufaraldurinn
hafi sett einhvers konar pressu á
hann.
„Ja, maður er í rauninni bara
fastur fyrir framan tölvuna núna
svo gott sem öllum stundum. Hvort
sem maður er að vinna eða ekki og
ætli það megi ekki segja að það hafi
komið með svona auka þrýsting í
þá átt að fara að gera eitthvað. Nýta
tímann sem maður er innilokaður í
eitthvað uppbyggilegt.“
Lítur aldrei um öxl
Tónlistarstefnan sem Þórgnýr leik-
ur sér með á Depths á sér nokkuð
langa sögu, kallast „dungeon synth“
á engilsaxnesku en á rætur að rekja
til norsks svartmetals og þar voru
nú frumkvöðlarnir ekki alveg jafn
ljúfir drengir og Þórgnýr.
„Einn stærsti upphafsmaður
þessarar senu er hinn alræmdi og
illræmdi morðingi og nasisti Varg
Vikernes,“ segir Þórgnýr og bætir
við að sótrafturinn sá hafi gert
fyrstu „dungeon synth“ plöturnar,
sem náðu einhverri útbreiðslu,
undir nafninu Burzum þegar hann
sat í fangelsi fyrir kirkjubrennur og
morð.
Þar sem seint verður sagt að yfir
þér sé ára dauðarokkara þannig að
spyrja má, hvað kemur til?
„Ég veit ekki? Ætli ég hafi ekki í
rauninni alltaf verið í dauðarokk-
inu. Fyrsta tónlistin sem ég átti var
einhver blönduð Metallica-kassetta
sem bræður mínir gáfu mér og ég
hef í raun aldrei litið um öxl eftir
það.“ toti@frettabladid.is
Drungi úr fréttadýflissu
Þórgnýr Albertsson, fréttamaður á Stöð 2, reis sem drungatónskáld
upp úr dýflissu í veirufárinu miðju með gotneskri rafsuðu sem tón-
ar vel við heimsendafregnir sem hann flytur úr hinum stóra heimi.
Þórgnýr yrkir ekki rafdrungann af efnahagslegri þörf og segist þar fyrir utan kunna afskaplega vel við að stússast í
þessu einn með sjálfum sér. Þannig sé þetta líka allt á hans ábyrgð. Í blíðu sem stríðu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
NÝR VEGANSTAÐUR
Lea, Óli Björn
og Óli Ben
vinna að
opnun vegan
staðarins
Mama í mið
bænum. Þar
verður boðið
upp á kakó
seremóníur
og vonast þau
til að gæða
miðborgina
lífi og gleði í
þessu sögu
fræga húsi.
SPRITTAÐIR SPURSARAR
Stjórnarmenn í Tottenhamklúbbn
um hafa brugðist við leikjaleysinu í
enska boltanum og bjargað um leið
geðheilsu sinni í horn með vikulegu
hlaðvarpi sem þeir nefna einfald
lega Spursarar.
VILDI LEGGJA SITT AF
MÖRKUM
Stílistinn Lilja
Hrönn vildi
leggja sitt
af mörkum
á þessum
flóknu tímum
sem við erum
nú að upplifa.
Því fékk hún
nokkra ljós
myndara með
sér í samstarf
og selja þær
prent af ljósmyndum til styrktar
Kvennaathvarfinu.
NÝ STJARNA Á SKJÁNUM
Leikkonan unga Birta Hall stelur
senunni ítrekað í hlutverki barna
barns dauðvona Ladda í sjónvarps
þáttunum Jarðarförin mín. Hún
ber grínaranum vel söguna og segir
stjörnustæla ekki til í honum.
LICATA
sófar og stólar
Ný og glæsileg lína í DORMA.
Sófar, stólar og skammel úr
fallegu og slitsterku áklæði.
Breyttur afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 12–18
Laugardaga kl. 12–18
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
á
do
rm
a.i
s
Heima er best
verslaðu á dorma.is og
við sendum þér það frítt
KLIKKAÐU Á VÖRU
OG ÞÚ FERÐ BEINT
INN Í VEFVERSLUN
DORMA.IS
HEIMA ER BEST
tilboðin
Heima er best
verslaðu á dorma.is og
við sendum þér það frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM BÆKLINGINN OKKA
R
RÚM 2–13 | Mjúkvara og d
únn 14–17 | Stólar 18–19 | S
ófar 20–29 | Hillur, borð o
g skápar 30–33 | Affari og
smávara 34-42
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Þú finnur
nýjan
bækling
á dorma.is
Aðeins 187.493 kr.
LICATA
hornsófi
Hornsófi í Kentucky koníak áklæði. Hægri eða vinstri
tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 262 x 226 x 82 cm
Fullt verð: 249.990 kr.
25%
AFSLÁTTUR
HEIMA ER BEST
TILBOÐ
1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R44 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð