Fréttablaðið - 18.04.2020, Síða 72

Fréttablaðið - 18.04.2020, Síða 72
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg. ehf DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Margrétar Kristmannsdóttur BAKÞANKAR Það er oft talað illa um atvinnurekendur, sérstak-lega eftir hrunið. Það var eins og við værum öll glæpamenn að reyna að maka krókinn. Þetta viðhorf gat farið ferlega í skapið á mér. Það er ekki svo. Við erum langf lest að reyna að standa okkur eins vel og við getum, oft við erfiðar aðstæður.“ Þessi orð voru nýlega höfð eftir Aðalheiði í Kaffi- tári sem var farsæll atvinnurek- andi í um þrjá áratugi. Aðalheiður var samfélagslega ábyrg og valdi oft kosti sem skiluðu fyrirtæki hennar minni hagnaði því þannig vildi hún einfaldlega reka það. Það er ljóst að mörg fyrirtæki eru að róa lífróður í dag og það er því miður staðreynd að mörg þeirra munu ekki ná landi. Tekju- fallið er gríðarlegt og þúsundir heimila og fyrirtækja munu þurfa að leita í sameiginlega sjóði til að komast í gegnum brimskaf linn. Á komandi mánuðum munu hundruð milljarða fara úr okkar sjóðum til að halda þessum aðilum á f loti. Við svona aðstæður kemur oft í ljós úr hverju við erum gerð – og sjaldnar er maður stoltari af því að vera Íslendingur en einmitt þegar hamfarir ganga yfir. Bak- verðir af öllum gerðum stíga fram og leggjast á sömu árarnar við að tryggja að samfélagið okkar verði sem sterkast þegar upp er staðið. Við svona aðstæður eignumst við hetjur úr ólíklegustu áttum og við gerum þá kröfu að breiðustu bökin leggi meira inn en þau taki út. Við erum lánsöm sem þjóð að eiga mörg öf lug fyrirtæki sem þurfa ekki aðstoð við fyrstu ágjöf. Fyrsta skellinn eiga stöndug fyrirtæki að taka sjálf og gera með stolti. Það væri hneisa ef þau leituðu í opinbera sjóði án tilefnis. Það hefði Aðalheiður aldrei gert. Þarftu í raun aðstoð? LAUGARÁSVEGI 1 Pantaðu á skubb.is fyrir kl. 21 og við keyrum ísinn til þín sama kvöld © Inter IKEA System s B.V. 2020

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.