Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 15

Ljósmæðrablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 15
15LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2019 Hátíðarkvöldverður og skemmtun fyrir ráðstefnugesti var haldinn í Austurbæ. Þangað komu 420 manns og komust færri að en vildu. Í byrjun komu hvítvínskonan og stultulæknirinn og röbbuðu við gesti. Örn Árnason sá um veislustjórn, Bryndís Ásmundsdóttir leikkona kom fram sem Tina Turner í mjög kraftmiklu atriði og að lokum var diskótek og fl estir viðstaddir fengu sér snúning á dansgólfi nu. Á lokadegi ráðstefnunnar 4. maí var íslenskum ráðstefnugestum boðið til Bessastaða og einnig erlendum samstarfsaðilum íslenskra ljósmæðra. Forsetahjónin „tóku vel á móti“ gestunum. Að neðan til vinstri eru ásamt forseta Íslands forsetar Norðurlanda- samtakanna núverandi og fyrrverandi, Lillian Bondo og Hildur Kristjánsdóttir.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.