Ljósmæðrablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 11
11LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2019
BHM starf
Félagið hefur tekið þátt í allri starfssemi BHM líkt og áður.
Á þessu ári voru ýmsar breytingar á húsnæðismálum. Helsta
breytingin sem snýr að okkur er að salir á 3. hæð voru seldir og
stærri salir á 4. hæð keyptir. Félagið tók þátt í því og á nú part af
sölum 4. hæðar.
Fjárhagur félagsins
Fjárhagur félagsins er nokkuð góður og er félagið skuldlaust.
Byggja þarf betur upp verkfallssjóð og varasjóð svo að félagið sé
í stakk búið til að takast á við óvænt útgjöld/áföll og kjarabaráttu
þegar þar að kemur. Núna réðst félagið í að láta heildarendurskoða
alla reikninga félagsins, ekki síst í ljósi þess að það hefur hugsan-
lega aldrei verið gert eða ekki mjög lengi. Við erum líka 100 ára og
okkar ágæti gjaldkeri Inga Sigríður Árnadóttir hættir eftir margra
ára starf og nýr gjaldkeri getur þá tekið við með hreint borð.
Framundan
Framundan er nú sem áður að vinna að málefnum ljósmæðra. Það
þarf að ljúka kjarasamningum sem nú eru lausir. Það þarf að taka
upp nær alla stofnanasamninga og koma framgangskerfi í gagnið
á stofnunum. Bókin og bæði tölublöð Ljósmæðrablaðsins koma út
síðar á árinu. Félagið stendur fyrir ferð til Rússlands, en það var
hugmynd félagsmanns að fara og skoða fæðingardeildir í Rúss-
landi og nægur áhugi reyndist vera fyrir hendi. Sú ferð er í október.
Fara þarf yfir innra starf félagsins og lög. Svo eru ýmsar aðrar
hugmyndir uppi á borðinu núna sem ekki er tímabært að viðra.
Stjórn félagsins þakkar öllum þeim ljósmæðrum sem starfað
hafa fyrir félagið á síðasta ári.
Fyrir hönd stjórnar Ljósmæðrafélags Íslands
Áslaug Valsdóttir, formaður.
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
HUNTLEIGH SONICAID
DIGITAL
FÓSTURDOPPLER
Nettur og handhægur fósturdoppler með háskerpuskjá,
línuriti og endurhlaðanlegu batterýi. Dopplerinn er með áfastan,
vatnsheldan prób sem einnig er hægt að nota við fæðingar í vatni.
Erna Dís Brynjúlfsdóttir
Söluráðgjafi – Heilbrigðissvið
Heilbrigðisverkfræðingur B.Sc.
Sími: 580 3919
GSM: 843 3919
Netfang:erna@fastus.is