Ljósmæðrablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 9
9LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2019
Í apríl kom úr frímerki merkt Ljósmæðrafélagi Íslands 100 ára og er
hönnun þess einstaklega vel heppnuð.
Í tilefni afmælis og norrænu ráðstefnunnar voru ýmsar vörur með
merki félagsins framleiddar. Til dæmis kaffibollar með afmælis-
merki, bolir, hettupeysur, töskumerki, súkkulaðibréf og fleira. Allt er
þetta áfram til sölu á skrifstofu félagsins.
Á alþjóðadegi ljósmæðra 5. maí var opnuð í Þjóðarbókhlöðu
sýningin „Við tökum vel á móti þér“ Ljósmæðrafélag Íslands 100
ára. Að sýningunni standa ásamt Ljósmæðrafélaginu, Landsbóka-
safn Íslands – Háskólabókasafn og Kvennasögusafn Íslands. Farið
er yfir sögu og starfsemi félagsins í máli og myndum með áherslu á
skrifleg gögn, rit og bækur sem tengjast ljósmæðrum.
Í sumar hafa Ljósmæðrablaðið og fyrsta kennslubók fyrir ljós-
mæður, Sá nýi yfirsetukvennaskóli :eður stutt undirvísun um yfir-
setukvennakúnstina, sem gefin var út árið 1749 á Hólum í Hjaltadal
verið kjörgripir mánaðarins. Við opnunina voru skjöl frá 100 ára
sögu Ljósmæðrafélagsins afhent til varðveislu í Kvennasögusafninu.
Ljósmæðrafélag Íslands 100 ára
Við tökum vel
á móti þér
Sýning í Þjóðarbókhlöðu
opnuð 5. maí 2019
KVENNASÖGUSAFN
Í veislunni voru heiðraðar 3 ljósmæður, Ása Marinósdóttir, María Björnsdóttir
og Ólöf Ásta Ólafsdóttir með þeim á myndinni eru núlifandi heiðursfélagar
Ljósmæðrafélags Íslands, þær Áslaug Hauksdóttir, Hulda Jónsdóttir, Hildur
Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir og Kristín I. Tómasdóttir. Á myndina
vantar Elínu Hjartardóttur.
LÍFSINS ÖLDURÓT
Hálsmen, sem vísar til starfs ljósmæðra, var hannað og smíðað
í Raus Reykjavík jewelry. Hönnunin er óður til fortíðar, nútíðar
og framtíðar kvenna og barna.
Hringurinn táknar lífið og hringrás þess. Í botni hringsins liggur
framtíðin, fóstur, sem er samofið þráðum formæðra sinna sem
báru víravirkissilfur sitt með stolti. Inni í fóstrinu má sjá öldur sem
tákna lífsins öldurót. Menið er úr 925 sterling silfri Það kemur í
tveim stærðum með val um 45 cm eða 80 cm silfurkeðju. Einnig
er menið fáanlegt með svartri rhodium húð.
Að sýningunni unnu fyrir Ljósmæðrafélagið, Ólöf Ásta Ólafsdóttir
og Erla Dóris Halldórsdóttir sagnfræðingur ásamt Áslaugu Vals-
dóttur. Af hálfu Landsbókasafns og Kvennasögusafns voru þau
Ólafur J. Engilbertsson (sem tók myndina) og Rakel Adolphsdóttir
í sýningarnefnd.
Kynningarmynd sýningarinnar af höndum ljósmóður er eftir Huldu
Sigurlínu Þórðardóttur.
Fjölmenni var við opnun sýningarinnar. Hér virða gestir fyrir sér ljósmæðra-
tösku og áhugaverða muni.