Bændablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Óður til kindarinnar
– Maja Siska sýnir í Grafíksalnum í Reykjavík
Maja Siska á bænum Skinnhúfu
í Holta- og Landsveit opnar sýn-
ingu á verkum sínum sem hún
kallar „Óður til kindarinnar“
fimmtudaginn 23. mars kl. 18.30
í Grafíksalnum, Tryggvagötu 17
í Reykjavík.
Við opnunina mun Bára
Grímsdóttir kveða nokkrar rímur
og kindabjúgu og hangikjöt verða
í boði. Sýningin er opin til 9. apríl.
Verkin á sýningunni eru öll unnin
úr ull eða gæru, ullin er ýmist þæfð
eða ofin. Hún er spunnin, toguð og
mótuð en þannig er látið reyna á
fjölbreytileika hennar. „Með notkun
fornra hefða í handverkinu næ ég
að að tengjast fortíðinni, fjárbú-
skapnum og ekki síst þjóðarsálinni.
Sýningin „Óður til kindarinnar“
miðlar þakklæti fyrir afurðir henn-
ar, fegurð og hugrekki,“ segir Maja
Siska. /MHH
Fréttir
Sunnlendingar ekki sáttir
við framlög til vegamála
Stjórn Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga (SASS) lýsir yfir
gríðarlegum vonbrigðum með að
dregið verði úr fjárframlögum til
vegamála á landsbyggðinni.
Stjórnin furðar sig enn fremur
á að samgönguáætlun, sem fjöl-
mörgum var send til umsagnar og
samþykkt var samhljóða á Alþingi
í október 2016, skuli meðhöndluð
sem alger markleysa.
„Hvað varð um samráðið og
samtalið sem sífellt er boðað?“ spyr
stjórnin sig um leið og hún hefur sent
frá sér eftirfarandi bókun.
„Stjórn SASS telur að ráðherra
og ríkisstjórn fari fram í fullkomnu
heimildarleysi með breytingu á
forgangsröðun samgönguáætlunar
án þinglegrar meðferðar. Við þetta
munu Sunnlendingar ekki una.“
/MHH
Fimmta ráðstefna Matvælalandsins Íslands stendur fyrir dyrum:
Þekking og færni innan matvælagreina
Maja Siska.
Verkin á sýningunni eru öll unnin úr ull eða gæru. Mynd / Maja Siska.
Mikil umferð er um Suðurland allt árið um kring, ekki síst í gegnum Selfoss
þar sem þúsundir bíla aka þjóðveg 1 á hverjum degi. Mynd / MHH
Hörður Kristinsson, rannsókna- og nýsköpunarstjóri Matís, mun halda erindi um það hvernig tæknin er að bylta
matvælaiðnaði. Hér er Hörður á ráðstefnu Matvælalandsins sem haldin var í fyrra en þá gegndi hann hlutverki
fundarstjóra. Mynd / smh
Samstarfsvettvangur um Matvæla-
landið Ísland efnir til opinnar ráð-
stefnu á Hótel Sögu fimmtudaginn
6. apríl þar sem fjallað verður um
leiðir til þess að efla þekkingu og
færni innan matvælagreina.
Þetta er fimmta ráðstefnan sem
haldin er á jafn mörgum árum en að
hópnum standa helstu hagsmuna-
aðilar í matvælageiranum.
Þekking og hugvit er grundvöllur
aukinnar verðmætasköpunar
Einn af lykilþáttum í að auka verð-
mætasköpun, byggða á mat og
matarmenningu, er að starfsfólk í
greininni búi yfir viðeigandi þekk-
ingu og færni.
Á ráðstefnu Matvælalandsins
verður fjallað um það hvernig fyr-
irtæki byggja upp og viðhalda þekk-
ingu hjá sínu starfsfólki og hvaða
tæki og aðferðir eru fyrir hendi.
Hörður Kristinsson, rannsókna-
og nýsköpunarstjóri Matís, heldur
erindi um það hvernig tæknin er að
bylta matvælaiðnaði og þá verður
sagt frá ýmsum leiðum til þess að
miðla fræðslu til starfsmanna.
Meðal annars mun Hlíf
Böðvarsdóttir hjá Securitas
fjalla um þjálfun starfs-
fólks á þenslutímum og
Hróbjartur Árnason,
lektor við HÍ, mun
ræða um nýjar
leiðir við miðlun
kennsluefnis.
Sagðar verða
reynslusögur úr
fyrirtækjum þar sem
meðal annars koma fram
Bára Eyfjörð Heimisdóttir,
gæðastjóri Norðlenska,
og Vignir Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins.
Ungt fólk úr matvælagreinum í
pallborði
Eftir erindin, sem verða öll í styttri
kantinum, verða pallborðsumræður
þar sem ungt fólk úr ýmsum greinum
matvælageirans tekur þátt. Meðal
annarra þau Anna Fríða Gísladóttir,
markaðsstjóri Dominos, Viktor
Örn Andrésson matreiðslumeistari
og Einar Freyr Elínarson, formaður
Samtaka ungra bænda. Kynnir og
ráðstefnustjóri er Pétur H. Pálsson,
framkvæmdastjóri Vísis.
Allir velkomnir
Ráðstefnan verður
sem fyrr segir
haldin á Hótel
Sögu fimmtu-
daginn 6. apríl. Hún
hefst með hádegis-
hressingu kl. 11.30 þar
sem meistarakokkar Grillsins
láta ljós sitt skína. Áætlað er að
ráðstefnunni ljúki kl. 16.00 en
aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
Matvælalandið Ísland er sam-
starfshópur Bændasamtaka Íslands,
Háskóla Íslands, Íslandsstofu,
Matís, Samtaka ferðaþjónustunn-
ar, Samtaka fyrirtækja í sjávarút-
vegi, Samtaka iðnaðarins og fyrir-
tækja innan viðkomandi samtaka.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið á einnig fulltrúa í hópnum.
Allir aðstandendur hafa áratuga
reynslu í að starfa að málefnum
matvæla og tengdra greina. /TB
Bændasamtök á Norðurlöndunum taka höndum saman:
Ný matarverðlaun sem hampa
hinu norræna eldhúsi
Í sumarlok verða í fyrsta sinn veitt
samnorræn matarverðlaun en öll
bændasamtök á Norðurlöndunum
standa að framkvæmdinni.
Verðlaunin hafa hlotið nafnið
Embla og nú þegar er byrjað
að safna tilnefningum á vefnum
emblafoodaward.com.
Emblu er ætlað að efla samnor-
ræna matarmenningu og einkenni
hennar ásamt því að auka áhuga á
norrænum mat utan Norðurlandanna.
Verðlaunin njóta styrks Norrænu ráð-
herranefndarinnar en Bændasamtök
Íslands halda utan um þátttöku
Íslands í keppninni. Verðlaununum
er ætlað að hampa því sem skarar
fram úr í hinu norræna eldhúsi:
hráefnum, matvælum, framleiðslu-
aðferðum og fólkinu sem stendur á
bak við allt saman. Markmiðið með
verðlaununum er að deila þekkingu
og reynslu og vekja athygli á nor-
rænum mat.
„Við höfum svo margt gott á
Norðurlöndum. Bragðgott hráefni
og öfluga nýsköpun á meðal fagfólks
í matvælaiðnaði. Við njótum öll góðs
af því að deila þessum sögum hvert
með öðru,“ segir Andreas Buchhave,
ráðgjafi hjá dönsku bændasamtök-
unum Landbrug & fødevarer og
verkefnisstjóri hinna nýju, norrænu
matvælaverðlauna.
Embla skiptist í sjö flokka þar
sem einn er tilnefndur í hvern þeirra
frá hverju landi á Norðurlöndunum.
Þriggja manna dómnefnd kemur frá
hverju landi sem velur keppendur og
einnig verður sameiginleg dómnefnd
sem sker úr um hver hinna tilnefndu
vinnur til verðlaunanna.
Verðlaunaflokkarnir sjö
Á vefsíðunni emblafoodaward.com
er tekið við tilnefningum í sjö flokka
sem eru:
• Matvælaiðnaðarmaður Norðurlanda
• Hráefnisframleiðandi Norðurlanda
• Norðurlandaverðlaun fyrir mat fyrir marga
• Matarblaðamaður Norðurlanda
• Mataráfangastaður Norðurlanda
• Matvælafrumkvöðull Norðurlanda
• Norðurlandaverðlaun fyrir mat fyrir börn
og ungmenni.
Verðlaunin afhent annað hvert ár
Embla verður afhent annað hvert
ár, í fyrsta sinn í Kaupmannahöfn
24. ágúst 2017 í boði Landbrug &
fødevarer. Við athöfnina verður til-
kynnt hvar Embla verður afhent næst,
árið 2019. Verðlaunaafhendingin
verður í samstarfi við ráðstefnu
danska umhverfis- og matvæla-
ráðuneytisins, „Better Food for
More People“ á matarhátíðinni
Copenhagen Cooking.
Frestur rennur út 17. apríl
Hægt er að tilnefna til Emblu-
verðlaunanna til hádegis 17. apríl
2017. Skráningareyðublöð á íslensku
fyrir flokkana sjö er að finna á www.
emblafoodaward.com, en þar má
einnig fræðast betur um verðlaunin
og tilurð þeirra. /TB