Bændablaðið - 23.03.2017, Síða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Góð aðsókn á Matarmarkað Búrsins í Hörpu
Líf og starf MÆLT AF
MUNNI FRAM
Skarphéðinn Ásbjörnsson heitir maður einn mikill og margslunginn. Hann er fæddur Skagfirðingur og ólst
þar upp til unglingsára, og hlaut atlæti gott
og andlegt fóður sem títt er um þaðankomið
fólk. Skarphéðins hefur ekki verið getið að
neinu í þessum vísnaþáttum, en hagyrðingur
er hann góður og hefur fætt af sér a.m.k.
eina ljóðabók, „Rökkur“, sem hann tileink-
aði Áslaugu Jónsdóttur frá Kimbastöðum,
en henni þakkar Skarphéðinn þann ljóða-
áhuga sem hann hefur ræktað með sér síðan.
Skarphéðinn hefur síðan í haust verið að
mylgra til mín vísum af ýmsu tagi og birtist
hér lesendum sýnishorn af þeim afurðum.
Einhverjir muna ugglítið eftir fellibylnum
Matthíasi sem skók veröldina á sínum
tíma, og sendi íbúum sunnanlands dágóð-
ar skvettur. Að baki ítarlegum fréttaflutn-
ingi í fjölmiðlum af þeim „hamförum“ orti
Skarphéðinn:
Matthías nú hryðjum hreytir,
hratt um loftin skýjum þeytir,
holdið inn að beini bleytir
brjálæðisleg veðursmíð.
Flæða ár um farveg lækja,
frussi ofan skýin hrækja.
Lýðir undan skúrum skrækja,
skriður falla niður hlíð.
Allt sem fýkur, hefur fokið,
fyllist upp af regni kokið,
enginn fær um enni strokið
áhyggjulaus þessa tíð.
Þrumuský um foldu flýgur
ferlega á landið mígur,
regn að beru baki smýgur,
bleytir auman Frónsins lýð.
Mennirnir sig gramir gretta
er gengur yfir drullusletta,
fossum á þá skúrir skvetta,
skelfa þá í erg og gríð.
Allt er vott af himnahlandi,
hann er leiður þessi fjandi,
svona er líf á Suðurlandi,
sífellt rok og vætutíð.
Nokkrir dáleikar eru með Skarphéðni
og títtnefndum Einari Kolbeinssyni í
Bólstaðarhlíð. Fyrir utan ágætt vald á vísna-
gerð, eiga þeir saman áráttu þá að drepa
dýr. Þar hafa þeir verið sem einn maður
og með einn huga. En einnig hafa þeir ást
við í vísnagerð, og þá ekki verið „gutlað í
ódýru“. Þeir ortu eitt sinn „árstíðavísur“
undir oddhentum sléttubandahætti. Einar
kveður vorvísu:
Sunna skrýðir fjöllin fríð,
foldin síðan hlýni,
unna tíðum brjóstin blíð,
birta á hlíðar skíni.
Skarphéðinn orti svo um sumarið:
Ljósin tæru skína skær,
skartar mærin þokka.
Rósin hrærist blómguð, blær
bærir kæra lokka.
Haustvísan er Einars:
Dofnar tæra skinið skært,
skartið kæra fölnar.
Sofnar blærinn varmi vært,
vallar hæran sölnar.
Skarphéðinn lýkur svo samstarfinu með
vetrarvísu:
Fella prýði blómin blíð,
björkin fríða grætur.
Hrella víða stormar,stríð,
stinnings hríðar nætur.
Þetta ætti að geta glatt brageyru ykkar,
lesendur góðir.
En fyrir réttri viku sendi svo Skarphéðinn
mér símavísu. Upphafinn af einhverri
ótímabærri vorvelgju orti hann:
Niðar lindin, laufgast börð,
leiðum hrinda trega.
Dansa vindar, vermir jörð
vorið yndislega.
174
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Eyjólfur Friðgeirsson, eigandi Íslenskrar hollustu, gefur að smakka og fræðir gesti um vörur sínar úr
náttúrunni sem eru af margvíslegu tagi; jurtate, krydd, sultur, söl, þari, fjallagrös og ýmislegt eira.
Geitfjárafurðir frá Háafelli; kjöt, sápa, bað-
sölt, krem og eira.
Ljósmyndari Bændablaðsins brá sér í Hörpu síð-
degis á sunnudaginn og fangaði stemninguna á
Matarmarkaði Búrsins. Smáframleiðendur komu þar
saman með vörur sínar, flestir með matvöru en einnig
mátti finna smyrsl og heilsuvörur á markaðnum.
Þessar voru ánægðar með ostasnakkið frá
Lava Cheese.
Omry Avraham rekur Krydd Tehúsið.
Á Sólheimum er gróskumikil framleiðsla, t.a.m.
súrkál, sultur, marmelaði og pastasósur.
Urta Islandica kynnti fjölbreytt vöruúrval; salt-
tegundir, jurtate, jurtasíróp, sultur og krydd.
Lesið á innihaldslýsinguna á smyrsli sem minka-
bændurnir á Syðra-Skörðugili framleiða.
Ferðamenn gæða sér á gulrótarsmárétti úr
smiðju Gísla Matthíasar Auðunssonar.
Súkkulaði frá Omnom hefur mikið aðdráttara .
Guðný Harðardóttir frá Gilsárstekk kom með
Breiðdalsbita og kæfu að austan.
Dóra Svavarsdóttir rekur Culina veitingar og
býr til ljúfmetisvörur sem gestir bragða hér á.
Gulrótinni var sérstaklega hampað á markaðn-
um. Hér eru vörur frá SR grænmeti á Flúðum.